Norðurljósið - 01.01.1980, Side 6

Norðurljósið - 01.01.1980, Side 6
6 NORÐURLJÓSIÐ Tvískipt hugarfar Eftir C. H. Simeon Og engill Drottins kom til Gilgal frá Bókím og mælti: „Ég leiddi yður út af Egiftalandi og færði yður í það land, sem ég sór feðrum yðar, er ég sagði. „Ég mun aldrei rjúfa sáttmála minn við yður. En þér megið ekki gjöra sáttmála við íbúa þessa lands, heldur skuluð þér rífa niður ölturu þeirra.“ En þér hafið ekki hlýtt raustu minni. Hví hafíð þér gjört þetta? Fyrir því segi ég og: „Ég mun ekki stökkva þeim burt undan yður, og þeir munu verða broddar í síðum yðar og guðir þeirra verða yður að tálsnöru.” Og er engill Drottins hafði mælt þessum orðum til allra Israelsmanna, þá hóf lýðurinn upp raust sína og grét. Og þeir nefndu stað þennan Bókím. Og þeir færðu þar Drottni fóm. (Dómarabókin 2. kafli, 1.-5. grein.) Vér dáumst að því hvflíkt lítillæti Drottinn sýndi, hvernig hann kom fram gagnvart fólkinu sínu útvaida. Hann vakti þeim upp spámenn til að fræða þá. Ekki var það heldur fátítt, að hann sendi engla til að veita þeim þjónustu. En sá engill Drottins, sem hér er talað um, virðist hafa verið engill sáttmálans, Drottinn sjálfur. Oruggt er, að Drottinn tók stundum á sig engils mynd, eins og t.d. þegar hann kom til Abra- hams, er hann boðaði honum dóminn, sem dynja átti yfír Sódómu og Gómorru. Greinilegt er það, að þessi engill, sem kom þarna til Israels, var ekki nein sköpuð vera. Heldur var þetta sá Drottinn, sem leitt hafði Israel burt úr Efgiftalandi. Það var ekki nein sköpuð vera, sem gert hafði sáttmála við þá, heldur sjálfur Drottinn. Það var engin sköpuð vera, sem þeir áttu að gera reikningsskil vegna óhlýðni. Það var sjálfur Drottinn. Hann hafði áður birst Jósúa hjá Jeríkó. Þá birtist hann sem vopnaður hermaður. Á því var enginn vafí. Hann bauð Jósúa að draga skó af fótum sér. Nærvera Drottins gerði stað- inn heilagan. Þar nefndi hann sig fyrirliða fyrir her- sveit Drottins. Það var þess vegna mjög viðeigandi, að hann birtist fólkinu nú og spyrði: hvers vegna þeir höfðu ekki framkvæmt fyrirmæli hans. Hann birtist lflca til að hóta þeim því, að hann mundi ekki framar berjast fyrir þá. I Gilgal höfðu karlmennirnir verið umskornir. Þar hafði fólkið haldið Drottni páska. Með þessu hvoru- tveggju hafði fólkið helgað sig Drottni á ný. Allt þetta leiðir okkur til að íhuga, hve hættulegt er að vera tvískiptur, óákveðinn. Sömuleiðis, að þetta gerir enn vart við sig hjá þeim, sem teljasig vera Guðs börn. Við eigum óvini, sem aldrei má þyrmaeðahlífa, svo að þeir nái ekki oss á vald sitt og drottni yfír oss. Hinn fyrsti þeirra er heimurinn. Þeir, sem tilheyra Jesú, heyra ekki heiminum til. Þeim er boðið að greina sig frá honum, eins og Drottinn Jesús gerði. Hvaða samfélag hafði hann við heiminn? Okkur er boðið að líta á okkur sem krossfesta heiminum, ef við tilheyrum Kristi. Annar óvinur vor er holdið, okkar gamla, synduga eðli. Við það má aldrei semja um vopnahlé. Vér verð- um að „deyða limina, sem við jörðina eru bundnir,“ og „krossfesta holdið með ástríðum þess og gimd- um.“ Vér megum ekki hlífa neinu, sem er á þessu sviði. Það verður að deyðast. Enga miskunn má sýna því. Hatri okkar á því má aldrei linna. En í hvaða ástandi erum við? Finnum við til þessa vandlætis hjá okkur? Erum við ekki ánægð með návist þeirra, ef þeir drottna ekki yfir oss? Ef þeir láta ekki sjá sig á almannafæri? Varar ekki Guð oss við því, að hið illa, sem við hlíf- umst við að útrýma, verði broddar í síðum okkar og þyrnar í augum okkar, reynist sálum okkar tálsnörur? Segi sá maður til, sem bundið hefur félagsskap við heimsins menn, hvort honum fínnist ekki, að þeir séu honum til hindrunar á andlegum vegi hans? Hvort það komi ekki stundum fyrir, þegar hann vill þóknast þeim, að það flæki hann í syndsamlegt athæfí? Hefur ekki ótti hans við vanþóknun þeirra haldið honum frá því: að vitna á móti vondri breytni þeirra? Vill nokkur halda því fram, að hann hafí látið Ijósið hafa samfélag við myrkrið? Eða hann hafi fundið nokkra samhljóðan með Kristi og Belíal? Sá maður þekkir lítið innsta eðli sitt, sem veit ekki, að syndin er eldur, og sé hann ekki slökktur, kveikir skjótt í hjóli tilveru hans. Segi sá til, er hlustar á freist- ingar Satans, hvort nokkur leið sé til að reka hann á flótta, nema með stöðugri mótspyrnu gegn honum? Þetta er líka skylda vor gagnvart Guði. Ef Guð skyldi segja um einhvern okkar: „Hann er orðinn skurðgoðafélagi, látið hann eiga sig?“ Þetta yrði oss þyngri dómur en bráður dauði, því að ævi okkar yrði aðeins til þess, að við söfnuðum okkur reiði Guðs á reiðidegi hans, baka okkur eilífa eymd. Boðskapur engilsins kom tvennu til leiðar hjá ísra- elsmönnum: Hið fyrra var, að þeir auðmýktu sig fyrir Guði. Lýðurinn hóf upp rödd sína og grét. Hefur nokkurt okkar ekki líka ástæðu til að gráta? Þurfum við ekki líka að auðmýkja okkur fyrir Guði? En þeir gerðu l£ka meir en að gráta. Þeir færðu Drottni fórn. Þeir vissu, að grátur gat ekki friðþægt fyrir synd þeirra. Þess vegna færðu þeir Drottni fórn. Við verðum að snúa okkur til Drottins Jesú Krists, koma til Guðs fyrir milligöngu hans. Þaðer hann, sem sættir okkur við Guð. Það er blóð hans, ekkert nema blóð hans, sem hreinsar okkur. Synd Israels var ekki

x

Norðurljósið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.