Norðurljósið - 01.01.1980, Page 7

Norðurljósið - 01.01.1980, Page 7
NORÐURLJÓSIÐ 7 framin af ásettu ráði. Hún var vanrækslusynd. Á hún sér ekki oftsinnis stað hjá okkur, vanrækslusyndin? Nefna verður hættuna á því, að vér gleymum þeim áminningum, sem oss hafa verið veittar. Á meðan Jósúa og öldungar þeir voru á lífi, sem séð höfðu dásemdarverk Drottins, héldu ísraelsmenn að nokkru leyti fast við skyldur sínar gagnvart Guði. Síðar meir féllu þeir hræðilega frá Guði. Leiddu þeir þá yfir sig ægilega refsidóma frá Guði. Það, sem eftir er kaflans, leiðir þetta skýrt í ljós. Þeir hnigu aftur í þá deyfð, er þeir höfðu snöggvast verið vaktir af. Fyllilega voru þeir sannfærðir um, að þeir höfðu breytt óskynsamlega, er engill Drottins spurði þá: „Hví hafið þið gjört þetta?“ Þeir gátu ekki afsakað sig á nokkurn hátt. En á þetta sér ekki oft stað hjá okkur? Guð gefi, að það verði ekki svo. Megi elska okkar til Guðs ekki verða „eins og döggin, er snemma hverfur.“ Eigum við ekki að leita á fund Drottins Jesú nú og segja við hann: „Drottinn, þú þekkir hjörtu allra. Er kærleikur okkar til þín minni nú en áður fyrr? Ef svo er, endurnýjaðu okkur, endurnýjaðu mig í kærleika mínum til þín. Bænheyr það, Drottinn Jesús fyrir þíns nafns sakir. Amen.“ (Þessi málsgrein viðbót) S.G.J.) „Drekktu og vertu glaður“ Hvað á að segja um þetta? „Vei hinum drembilega höfuðsveig drykkjurútanna í Efraím, hinu bliknandi blómi, hinni dýrlegu prýði þeirra, sem stendur á hæðinni í frjósama dalnum hinna víndrukknu. Sjá, sterk og voldug hetja kemur frá Drottni, eins og haglskúr, fárviðri, eins og dynj- andi, streymandi regn í helliskúr, varpar hann honum til jarðar með hendi sinni. Fótum troðinn skal hann verða, hinn drembilegi höfuðsveigur drykkjurútanna í Efraím. (Jesaja 28. 1.-3.) „En einnig hérna reika menn af víni og skjögra af áfengum drykkjum. Prestar og spámenn reika af afengjum drykkjum; þá svimar í vitrunum sínum og allt hringsnýst fyrir þeim í úrskurðum þeirra.“ (Jes. 28.7.) Bindindi stuðlar að því, að skilningarvit vor varð- veitist skýr og ósljógvuð. I andliti þínu verður meira líf og tignarbragur að persónu þinni. Yfir höfði þínu hefur þú vald, heilsan þín tryggari. Ástand þitt verður þannig, að þú getur sinnt starfi þínu. (Þýtt úr „Sverði Drottins.“) Biblíulestur Lúther sagði, að hann læsi biblíuna á svipaðan hátt og hann safnaði eplum. Fyrst hristi hann allt tréð, til þess að fullþroskaðir ávextir dyttu niður af því. Þar næst klifraðist hann upp í tréð og hristi hverja stóra grein á því. Er hann hafði hrist þær, þá skók hann allar smá- greinar. Eftir það athugaði hann hvem kvist og að lokum leit hann undir hvert lauf. Vér skulum rann- saka ritninguna sem heild. Síðan skulum vér taka fyrir sérhverja bók hennar. Þar áeftir hvern kapítula, máls- greinar og hvert vers. (Þýtt). Ritstj. Nlj. vill mælast til þess, hinir mörgu lesend- urr Nlj., sem eru í lúterskri kirkju, fari að dæmi hans og lesi meir en fyrr heilaga ritningu með nákvæmni og íhugun. Vakni þá einhverjar spurningar, sem áleitnar gerast og krefjast svars, má senda þær til Norðurljóss- ins. Ritstj. á biblíulega Alfræðibók, sem hægt er að leita til. Samvinna við Guð Wellington hertogi var í herferð. Einn af hans undirforingjum átti að leysa hættulegt verk af hendi. Hann tafði eins og hann væri hræddur. Síðan mælti hann: „Látið yðar allt sigrandi hönd grípa um hönd mér, og þá get ég gert það.“ Allt-sigrandi hershöfðingi vor, Jesús Kristur, gjörir betur við oss en þetta: að grípa um hönd vora með henni, sem sigrar allt. Ástúðlega fullvissar hann oss um, að hann verði alltaf hjá oss til að varðveita oss frá öllum hættum og til að styrkja oss til sérhverrar baráttu. Ættu ekki hjörtu vor að fagna mikið, er þau vita það, að hann verður alltaf með oss? Meiri blessun geta þau ekki girnst. Þetta er blessunin mesta, sem oss getur hlotnast. „Guð með oss“ merkir, að góður árangur næst. Mörgum sinnum hefur þetta reynst sannleikur. Strax í fornöld varð þetta reynsla fólks. Vér sjáum það, ef vér lesum biblíuna. Hvað eftir annað sjáum vér, að allt heppnaðist vel, meðan Guð var með einhverjum. En yfirgæfi hann Guð, þá dundi ógæfan yfir. Þetta er óbreytt enn. Manni þeim, sem reynir að gera eitthvað án Guðs, mæta þá ófarir. (Þýtt úr ensku.)

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.