Norðurljósið - 01.01.1980, Qupperneq 19
NORÐURLJÓSIÐ
19
líffæri smekksins, sem greinir á milli ólíkra tegunda
fæðu.
Bóndinn, sem ræktar korn, ætti að lúta höfði með
þakkargjörð, að hann skuli ekki þurfa, er hann sáir, að
láta kornin niður, svo að annar endinn snúi upp. Þetta
gæti hann ekki né heldur fengið nógu margt fólk til að
vinna hjá sér.
Hvað hefur lifandi Drottinn lagt í hvert sáðkom?
Það, sem við köllum „eðlishvöt“. Sáðkorn verður
aldrei áttavillt, heldur „kemur upp“ alltaf. Sama er,
hvernig þau snúa. Stráið ratar alltaf upp í ljósið. Léti
Guð þetta bregðast einu sinni, hve hörmuleg óham-
ingja yrði það fyrir heiminn! ....
Vér erum vanþakklátt hyski. Vér hrifsum hverja
góða gjöf, sem Guð hefur að bjóða oss, teljum þetta
sjálfsagt og gleymum oftast að þakka honum fyrir.
Mikilvægustu æðar líkamans og taugar eru settar
innan í líkamann eða eru innan á örmum og ganglim-
um. Vitur Guð óg skilningsgóður þekkti þær hættur,
sem bíða vor á vegi lífsins. Hann gjörði því sérstakar
ráðstafanir til að vemda þessa líkamshluta, sem nauð-
synlegir mjög eru lífi voru.
Veist þú, hvers vegna, hvernig eða hvenær hjarta
mannsins slær í fyrsta sinn? Framan af ævi ófædds
barns slær hjartað ekki. Blátt áfram er það að myndast.
En dagurinn kemur, þegar það slær í fyrsta sinn.
Hvers vegna gerir það þetta? Hvað kemur því til að
gjöra það? Hvorki móðir né faðir eiga nokkurn þátt í
því. Ekki er það fyrir viljakraft bamsins. Mikilmenni
jarðarinnar láta það ekki gerast... Ekki hafa lög verið
sett í nokkru landi, sem ráði þessu.
Guð setur það af stað. Guð mun stöðva það. Sá
Guð, er setti það af stað og sá Guð, er mun stöðva það
- hann vill, að þú leyfír sér inngöngu í hjarta þitt.
Vér ættum að vera þakklát fyrir gæsku Guðs, að
hann sér fyrir þörfum líkama vors og sálar. Hann hef-
ur gefíð oss ull, baðmull, lín, silki og leður til að skýla
líkama vorum, vernda hann fyrir hita og kulda eftir
því, sem þarfir lífsins krefja. Hann hefur gefíð oss
kornmat, grænmeti, ávexti, kjöt og drykki til að halda
líkamanum við, að við séum heilbrigð, sterk og heilsu-
góð. Hann hefur gefíð oss hæfileika til að menntast,
læra reikning og stærðfræði, tungumál, hljómlist,
vísindi, listir og líkamlega þjálfun, að vér megum lifa
skynsamlega, nytsamlega og leysa af hendi gagnlega
þjónustu með dugnaði og góðum árangri.
Hvert ætti allt þetta að leiða okkur? Til að vilja
þiggja frá hendi hans, ríkri af náð og auðugri af kær-
leika, þetta, sem hann hefur fyrirbúið sálum vorum:
Orð Drottins til að gera vilja hans. Verk Guðs að opin-
bera oss huga sinn, og Son sinn til að hreinsa oss af
syndum vorum. Treystu honum.
13. KAFLI
Hvers vegna sápa?
Framleiðsluvara kristindómsins er sápan. Heiðingja
skortir sápu. Sé gefin örlítil sápa, fæst heilt dagsverk
fyrir tilvikið. Hvernig þætti þér að vera sápulaus?
Erfítt yrði að halda hreinum líkamanum, þvo matar-
ílát í eldhúsinu eða gera þvottinn hreinan án þessarar
nauðsynjavöru menningar vorrar.
Vér gleymum mjög gildi sápunnar, af því að hún er
svo algeng. I þessum stutta kafla skal það nú athugað,
sem vakið getur áhuga vorn, og líka hitt: Hvað vér get-
um lært af sápunni.
Sápan fæst í margs konar myndum. Kringlótt
stykki eru til og önnur egglaga. Sápustangir eru til og
lítil ferhyrnd stykki. Hún fæst líka fljótandi og stund-
um í flyksum. Fá má hana sem duft og einnig sem
hlaup. I mörgum litum fæst hún: bláum og grænum,
hvítum og gulum, rauðum og brúnum.
Stundum er ilmefnum blandað í hana, svo að sæt
angan streymi frá henni. Tegundir eru til, sem nota
má, ef vatnið er hart, kalk í því. En allar tegundir hafa
sama markmið: hreinsun. Drottinn vor sagði í Jeremía
bók 2. kafla, 22. grein: „Þótt þú þvægir þér með lút og
brúkaðir mikla sápu á þig, þá verður samt misgjörð
þín óhrein fyrir mér, - Drottinn Jahve segir það.“
Sápan er til margra nota. Skurðlækna-sápa er í
hverri uppþvottastofu í sérhverju sjúkrahúsi. í henni
er falið sýkla-eyðandi efni til að hreinsa með hendum-
ar á undan uppskurði. Aðrar tegundir eru svo mildar,
að þær eru auglýstar sem sápur til að þvo með korn-
börnum. Séð hef ég líka sápur með grófum efnum í til
að hreinsa burtu smurningarolíu og fastloðandi
óhreinindi eins og oft eru í viðgerða-verkstæðum.
Sérstök sáputegund er til að hreinsa burt slæma lykt af
líkamanum. Þá kemur fyrir, að lækningin verður verri
en sjúkdómurinn. Fljót-leysanleg sápa er líka til í upp-
þvotta og á fíngerðan fatnað. Allar þessar tegundir
eiga þó eitt markmið: að hreinsa á brott óhreinindi.
Tilvera sápunnar sýnir þörfína og auglýsir tilvist
óhreininda. Gagnsæjar sápur eru líka til á markaðin-
um. Þær eru bjartar í sér og fagrar að útliti. Ógagn-
sæjar eru þó flestar sápur. Sumar sápur geta flotið, en
aðrar sökkva til botns. Er mjög erfítt að fínna þær, sé
baðvatnið djúpt. Tegundirnar sumar eru dýrar, en
aðrar em framúrskarandi ódýrar.
Drottinn vor segir oss í ritningargreininni hér að
ofan, að syndasektin varir og syndablettirnir kyrrir,
þegar þú hefur gert allt, sem þú hefur getað, með
bestu mannlegum aðferðum og einlægasta ásetningi.
Hvort sem sápan er dýr eða ódýr, þá gagnar hún
ekkert til að þvo í burtu syndir ævinnar eða til að