Norðurljósið - 01.01.1980, Síða 21

Norðurljósið - 01.01.1980, Síða 21
NORÐURLJÓSIÐ 21 og reglur í lögmáli Móse. Þeir máttu ekkert af vínviði eta eða drekka áfengan drykk. Ekki heldur eta nokkuð það, sem talin var óhrein fæða samkvæmt lögmálinu. Hér var það móðir drengsins, sem varð að hlíta þessum reglum. Þegar kona Manóa sagði manni sínum frá vitjun engilsins, efaðist hann ekki um, að boðskapur hans væri sannur. En sá ótti greip hann, að svo gæti farið, að sú miskunn, sem Guð ætlaði að sýna þjóðinni, mis- færist vegna einhverra mistaka af sinni hálfu eða kon- unnar. Þess vegna bað hann til Guðs um, að maðurinn kæmi aftur. Og hann fékk bænheyrslu. Manóa var gestrisinn og vildi veita gestinum beina. En engill Drottins vildi ekki þiggja mat hans, en bauð honum að leggja kjötið á klett og hella súpunni yfír það. Síðan snart hann klettinn með staf sínum. Kom þá eldur upp úr klettinum. Og er logann lagði upp frá klettinum, fór engill Drottins upp í loganum. Eftir þetta birtist hann aldrei framar Manóa eða konu hans. Frásagan bendir til þess, að Manóa efaðist ekki um fyrirheit Drottins, heldur hitt, að þeim hjónum tækist að fara rétt að, svo að fyrirheitið gæti rætst. Af þessu skulum vér læra þetta: Vér verðum að vaka yfir því, að það, sem vér hugs- um í sambandi við Guð sé ekki of lágt, að hugmyndir vorar um hann, séu ekki svo lágar, að þær séu honum ósamboðnar. Jafnvel hjá góðu fólki getur það átt sér stað, að það hugsi á þá leið, að velgengni þess geti ekki orðið varanleg. Það fer að efast um, að hún geti orðið varanleg. En þetta vanheiðrar Guð. Hví ættum vér að tortryggja hann? Hví skyldum vér tortryggja dýrlega fullkomnun hans? Vér eigum að minnast þess, að hann er þannig í sér að hann vill gefa oss langt fram yfir það, sem vér getum skilið. 2. Vér ættum að meta með réttlæti allar þær miskunnsemdir, sem hann hefur veitt oss. Vér gjörum vel, ef vér miklum náð Guðs, er vér hugsum um hann. Vér skulum innræta öðrum þetta sama hugarfar. Er Davíð konungur leit um öxl á liðna ævi, þá komst hann þannig að orði við Guð: „Þú hefur frelsað sál mína frá dauða, og fætur mína frá hrösun, svo að ég megi ganga frammi fyrir Guði í ljósi lífsins.“ . . . „Guði treysti ég, ég óttast eigi. Hvað geta menn gert mér?“ Sálmaskáldið Asaf komst þannig að orði: „Eg íhuga fyrri daga, ár þau, sem löngu eru liðin. Eg minnist strengjaleiks míns um nætur, ég hugleiði í hjarta mínu og andi minn rannsakar: Mun Drottinn þá útskúfa um eilífð og aldrei framar vera náðugur? Er miskunn hans lokið um eilífð, trúfesti hans þrotin um aldir alda? Hefur Guð gleymt að sýna líkn, lokað fyrir miskunn sína í reiði. Þá sagði ég: „Þetta er kvöl mín: að hægri hönd hins Hæsta hefur breytt sér. Eg víð- frægi stórvirki Drottins. Ég vil minnast furðuverka þinna frá fyrri tíðum.“ (Sálm. 77.6.-12.) Það er ekki eingöngu til að hugga einstakan mann, að Guð gefur þessi dásamlegu orð vonar. Þau eru til uppörvunar öðrum líka. Þetta var reynsla Páls post- ula. Hann ritar í 2. Korintubréfí 1. kafla 3. og 4. grein: „Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists, faðir miskunnsemdanna og Guð allrar huggunar, sem huggar oss í sérhverri þrenging vorri, svo að vér get- um huggað aðra, í hvaða þrenging, sem er, með þeirri huggun, sem vér höfum sjálfir af Guði hlotið.“ En það má ekki gleymast, hvað Guð hefur gert fyrir oss, er hann lét son sinn verða bölvun fyrir oss, er hann leið á krossinum á Golgata. Fyrst hann sýndi oss aðra eins miskunnsemi, hvemig getum vér þá efast um, að hann er fús til að veita oss allt annað líka? Getum vér þá efast um, að hann veiti oss það, sem minna er? Manóa fékk leiðbeining frá Drottni um, hvað móð- ir drengsins ætti að forðast, til þess að sveinninn yrði Guði helgaður. Aheyrandi minn, hefur þú nokkum tíma átt þá stund á ævi þinni, að þú hafir leitað Krist, t.d. á fjöl- mennri samkomu, þegar margir komu fram til fyrir- bænar eða til að veita Kristi viðtöku? Hefur þetta svo allt eins og dofnað og runnið út í sandinn? Viltu þá ekki nú koma á fund frelsarans á ný? Viltu ekki síðan ganga með honum daglega með því að lesa orð hans og tala við hann í bæn. - Þvottakona í Englandi, var mikið verkfæri Guðs. A morgnana bað hún Drottin að gefa sér texta, er hún las í ritningunni. Hún hugleiddi hann og bað, meðan hún vann verk sitt. A kvöldin kom svo fólk til hennar, sem vildi fá andlega hjálp eða upp- byggingu. Og þetta fengu margir. Vilt þú ekki byrja með því að biðja, núna meðan ég les: „Drottinn Jesús, ég kem til þín. Taktu mig eins og ég er. Fyrirgefðu mér allar yfirsjónir og syndir. Hjálpaðu mér til að segja öðrum frá þér. Fyrir þíns nafns sakir. Amen.“ Leiðin til friðar Hún er að gleðjast yfir lífinu, af því að það gefur þér tækifæri til að elska, vinna, leika þér og að líta upp til stjamanna. Það gefur þér líka tækifæri til að vera ánægður með eignir þínar, en ekki ánægður með sjálfan þig, þangað til þú hefur varið þeim á sem allra bestan hátt. Það gefur þér tækifæri til að fyrirlíta ekkert í heim- inum nema lygafals og ódrenglyndi og óttast ekkert nema bleyðiskap. - Henry Van Dyke. (Þýtt úr Sverði Drottins.)

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.