Norðurljósið - 01.01.1980, Side 36
36
NORÐURLJÓSIÐ
Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag heilags Anda
sé með yður öllum.“ Hér er talað um þrjár persónur.
Hver getur haft samfélag við ópersónulegan kraft, t.d.
segulmagnið? Svari þeir því, sem geta það.
Sæmundur G. Jóhannesson.
Stekkjagerði 7, Akureyri.
Svar við fyrirspum
Kæra systir mín í trúnni á Krist Jesúm.
Náð Guðs, miskunn og friður margfaldist með þér.
Ég þakka þér fyrir bréfíð. Viðvíkjandi fyrirspum
þinni, þá hefur enginn Aðventisti nokkm sinni beðið
mig að útskýra Poct. 21. 26.-31. En ef hann gerði það,
þá mundi ég svara því til, að þetta var rógur, álygar,
sem Gyðingar beittu oft, þegar þeir vildu koma
einhverjum fyrir kattarnef, það er: láta múgæsingu
drepa hann. Sbr. Post. 6.8.-14. með Stefán og Mark.
14. 55.-59. með sjálfan Drottin vorn Jesúm Krist.
Páli var fullkunnugt um, hvað Guð hafði sagt við
Abraham, er hann gerði sáttmálann við hann, sem sagt
er frá í 1. Mós. 17. 7.-14. Maður, sem ekki var
umskorinn, taldist ekki með í þjóðinni. Páll elskaði
þjóð sína of mikið til þess, að hann færi að kenna slíka
villu, að við nú ekki nefnum kærleika hans til
sannleikans.
Það er hvíldardagshaldið, helgihald laugardagsins,
sem mest hefur komið mér í árekstra við Aðventista.
Þar virðast vera svo harðlokaðir mannshugir, að
ómögulegt sé að koma þar inn nokkurri ljósglætu.
Biblían segir afdráttarlaust, að heiðingjar hafa ekki
lögmál, heldur ísraelsþjóðin ein. Það er skýr kenning
heilagrar ritningar. Einn starfsmaður þeirra hélt því
fram við mig, að hvíldardagurinn hefði alltaf verið
haldinn frá því í Edensgarði og fram úr. Á móti þessu
tefli ég því, sem segir í 2. Mós. 31. 12-17. Ef allir
heiðingjar héldu hvíldardaginn, hvemig gat hann þá
verið sambandsteikn milli Guðs og Israels? Ef allar
þjóðir færu að nota þjóðfána okkar Islendinga, þá
mundi hann hætta að vera þjóðfáni Islands, sem
greindi hann frá fánum annarra þjóða.
Sæmundur G. Jóhannesson.
Svar við fyrirspum
Viðvíkjandi fyrirspurn þinni verður að taka fram:
að lögmálið, sem gefið var á Sínaí og þær skýringar á
því, sem koma fram í bókum Móse, eiga eingöngu við
ísraelsmenn og koma okkur sem erum ekki af kyni
ísraels, ekki fremur við en lögin í Bretlandi.
Eitt sinn, er Aðventisti spurði mig, hvað ég segði
um blessaðan daginn (laugardaginn sem hvíldardag),
fékk hann þetta svar: „Hvaða dag halda líkin í
kirkjugarðinum heilagan?“ Biblían segir, að við, sem
trúum á Drottin Jesúm, erum dáin lögmálinu með
öllum þess boðum og skipunum, og deydd því fyrir
líkama Krists eða dáin. Rómverjabr. 7. 1.-7.
Þá er að svara hinni fyrirspurn þinni: „Hvaða
leiðbeiningar gefur Nýja testamentið konum í
sambandi við búnað sinn?“
Við lesum í 1 Tím. 2. 8-9.: „Ég vil, að karlmenn
biðjist hvarvema fyrir..., sömuleiðis, að konur skrýði
sig sæmilegum búningi, með blygð og hóglæti.“
Klæðnaðurinn átti að vera úr þannig efni, að blygðun
þeirra eða sköp sæust ekki í gegnum hann. En þannig
klæddu sig girndarfullar, heiðnar konur, t.d. í Róm.
Senmlega hjá Grikkjum líka.
Ég á alfræðilega biblíu-skýringabók. Hún sýnir
mynd af herkonungi. Er leiddur til hans hópur fanga.
Eru það bæði konur og karlar. Sést nálega enginn
munur á búnaði kynjanna, en mér virðist þó, að
kyrtlar kvenna séu vitund síðari.
Þóra mín las bréf þitt og bjóst við, að í þessu væri
fólgið bann við kynvillu. Kynvillingur, sem leikur
hlutverk konunnar, mundi þá vera búinn sem kona.
En við kynvillu lá líflátsdómur. 5. Mós. 22.5.3. Mós.
20.13.
Bið að heilsa manninum þínum, og Guð blessi
ykkur öll og stóra drenginn. Guð geri hann að andlegu
stórmenni, ef það dregst svo lengi, að Drottinn Jesús
komi. - S.G.J.
Þakklæti sýnt í verki.
Þvottamaður kínverskur, Tong Jack að nafni, átti
heima í Cambridge, Maryland, í Bandaríkjunum.
Hann hafði þvottahúsið í byggingu, sem var rétt hjá
húsi, er McAllister átti. Hann var ekkert hrifinn af því,
en hann virti réttindi nágranna síns. Er drengir voru
að stríða Kínverjanum og skaprauna honum, rak
McAllister þá í burtu. Tong Jack hagnaðist vel á
atvinnu sinni. Er McAllister varð sjúkur, sendi Tong
Jack honum stöðugt blóm og sælgæti. En er hann dó,
varð vesalings maðurinn ákaflega hryggur. Hann
leigði þrjátíu vagna, til þess að allir gætu ekið að
jarðarförinni, en sjálfur gekk hann á eftir líkkistunni,
klæddur í hvítan sorgarbúning. - Svo er til fólk, sem
heldur, að Kínverjar séu ekki þakklátir. (Þýtt).