Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 50

Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 50
50 NORÐURLJÓSIÐ 3. KAFLI Arangur og mistök t fyrstu. í austurátt var slétta, umkringd hæðum. Á henni var hópur þorpa. Fyrir þeim fékk Hsi áhuga um þetta leyti. I smáþorpinu Yang-Ts‘uen áttu heima bræður tveir að nafni Li. Þeir voru bændur. Þeir voru nú í erfíðleikum. Elskaður faðir þeirra í trúnni David Hill, hafði skírt þá við sama tækifæri, sem hann skírði Hsi. Kristniboðamir, sem eftir vom, áttu of annríkt í borg- inni, til þess að þeir gætu heimsótt þessa fjarlægu staði. Bræðurnir voru að missa kjarkinn sakir lang- vinnrar ofsóknar. Hvað var þá sjálfsagðara en það, að fræðimaðurinn kristni kæmi úr nálægu þorpi til að hjálpa þeim? Því var það, að viku eftir viku gekk Hsi þessa 10-11 km. aðra leiðina, til að halda ofurlitla guðsþjónustu á bóndabænum við Yang-Ts‘uen. Þetta voru óformlegar samkomur. Margar voru spurningarnar og upphrópanir, sem gripu fram í samkomuhaldið, en bornar fram af heiðnum nágrönnum til að vera með í litla hópnum. „Er allt þetta satt, Hsi kennari? Læknaði Jesús virkilega veika manninn, sem hafði illan anda og hélt til í gröfunum? Eða er þetta einungis heiðarlegt ævintýri? Opnaði hann virkilega augu hinna blindu, lét hann halta menn ganga og gerði hann hreina líkþráa menn?“ „Hvers vegna býður þú honum ekki, með allri virðingu, að koma hingað í nágrennið? Hér er nóg af sjúku fólki. Okkur þætti vænt um að sjá hann Jesús þinn, ef hann getur gert þetta, sem þú segir?“ Þetta var í sannleika einkennileg, ný saga. Aldrei var Hsi glaðari en þegar hann skýrði hana fyrir þeim, sem ekki höfðu heyrt hana. Syndin og fæðing Krists í mannlegum líkama, friðþægingin, trúin og kristilegt lífemi, - allt þetta varð að skýra í því ljósi, sem streymir frá Golgata. Og orðið var predikað með krafti. Þegar áheyrendur hans spurðu hann: „Getur Jesús gert þessa hluti nú? Þú segir, að hann sé lifandi og nálægur okkur. Getur hann læknað sjúka og rekið út illa anda nú á dögum?“ Svarið var gefíð eins blátt áfram og ákveðið: „Auðvitað getur hann það. Hann læknaði mig eftir löng sjúkdóms ár og tók líka í burtu löngun mína í ópíum. Heyrðuð þið ekki, hvernig hann frelsaði konuna mína undan valdi illra anda, nú fyrir stuttu? Það er ekkert, sem Jesús getur ekki gert fyrir þá, er algerlega snúa sér frá synd og treysta honum.“ Þetta var ágætt svo langt sem það náði. En þá var að færa sér þetta í nyt. „Viltu þá biðja fyrir mér, Hsi kennari? Móðir mín er veik, konan mín og sonur minn. Ó, komdu heim til mín og fáðu Drottin Jesúm til að gera þau heilbrigð aftur.“ Þetta var prófraun. En Hsi tók henni vel. Er hann sá, að fólk var í sannleika einlægt, og fann, að það vildi hætta við skurðgoð sín og synd til að fylgja Kristi, þá lagði hann glaður hendur yfír sjúka og bað um bata þegar í stað. Segja má að sumu leyti, að engri reglu væri fylgt. Hsi hafði aldrei lært þessa þjónustu og var ekki vígður. Ekki höfðu krisniboðarnir heldur kennt honum að vænta kraftaverka. Staðreyndin var, að á þessum dögum var naumst nokkur, sem hefði getað þjálfað hann eða haft vald til að vígja hann. I héraðinu öllu, þar sem bjuggu fímmtán milljónir manna, voru aðeins tvær trúboðsstöðvar Mótmælenda. Sjálfur var Hsi einn af hinum allra fyrstu, sem sneru sér. Leiðtoga hafði hann engan nema biblíuna. Hann átti heima langt frá borginni og hafði lengst af engan kennara nema heilagan Anda. En það er dásamlegt, hvað maðurinn getur lært í slíkum kringumstæðum, sé hann námfús og hlýðinn. Sú þekking, sem Hsi hafði á biblíunni, var mjög takmörkuð og ekki rétt á margan hátt. Sumt hafði hann þó lært, þar á meðal, að bókin meinar blátt áfram það, er hún segir. . . Þess vegna, á hinn einfaldasta og eðlilegasta hátt, vænti hann þess, að Drottinu mundi gjöra það, sem hann hafði sagt: „Þessi tákn skulu fylgja þeim, er trúa: I mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum, taka upp höggorma; og þó að þeir drekki eitthvað banvænt, þá mun það alls ekki saka þá; og þeir munu leggja hendur yfír sjúka, og þeir munu verða heilir.“ (Mark. 16. 17., 18.) Hann vissi, að postulunum hafði reynst allt þetta sannleikur. Þeir höfðu farið út og predikað, og „var Drottinn í verki með þeim og staðfesti orðið með táknunum, er samfara voru.“ Sjálfur sá hann ekki enn nokkurt tilefni þess: að tala nýjum tungum. Enn höfðu engir eitraðir höggormar orðið á vegi hans. En hér var nóg af sjúku fólki. Viðvíkjandi því voru fyrirheitin skýr. Jæja, við getum ekki, ef til vill, skilið þetta né skýrt í ljósi vísinda nútímans. En Hsi beið ekki eftir því. Uppi í litla þorpinu Yang-ts‘uen vissi hann, að hann gat beðið í nafni Jesú. Hann trúði því, að ennþá hefði nafnið ekki misst neitt af fornum krafti sínum. Dásamlegir atburðir voru það, sem fátæklegu heimilin sáu. Þeir minntu á forna daga, er postularn- ir sögðu: „Jesús Kristur læknar þig.“ Þegar svo fólk sá þetta með eigin augum, var það engin furða, þótt karlar og konur sneru sér til Drottins. Ekki var það heldur nokkuð einkennilegt, að fjandskapur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.