Norðurljósið - 01.01.1980, Side 51

Norðurljósið - 01.01.1980, Side 51
NORÐURLJÓSIÐ 51 skyldi vakna. Myrkravöldin þama í Upplanda-döl- um, þau höfðu aldrei áður hlotið slíka hólmgöngu áskorun. Það sýndist líka eins eðlilegt og í frum- kristninni. En ofsóknin hélt áfram og magnaðist, uns sann- kristið fólk og hitt, sem var leitandi, átti erfítt með að standast þær. Mandarínunum bárust upplognar sakir á þá. Sumir voru rændir og barðir og öðmm ógnað með lífláti. Loksins kom sá tími, er mikil hátíð nálgað- ist, að heiðnir þorpsbúar tóku fasta ákvörðun: Sérhver sá, er ekki vildi tilbiðja guðina eins og venja var, skyldi færður til musterisins, hendur hans bundnar saman fyrir aftan bak, og böndin síðan dregin yfir bjálkana undir þaki hofsins, upp og niður, uns hann afneitaði trúnni útlendu. Þetta var of alvarlegt uppþot. Kristna fólkið í Yang- Ts’uen ákvað að flýja, meðan það var hægt. Bar því svo til, að Hsi í Vestur-Chang þorpinu vaknaði, er stöðugt var barið á hliðið hjá honum. Hann reikaði út í myrkr- ið. Hann þekkti rödd Li bónda, hleypti litla flótta- manna hópnum inn og heyrði sögu hans. Enginn vafi leikur á því, að haldin hefur verið bænasamkoma árla morguns. En Hsi var maður at- hafna eigi síður en trúar. Hann hafði ekki ennþá lært: að leggja slík mál í hendur æðri visku en hans eigin. „Enga mótspyrnu gegn hinu illa“ og „hefndin er mín, ég mim endurgjalda,“ segir Drottinn. Þetta voru kenningar, sem ennþá höfðu ekki snortið hann kröft- uglega. Þetta var alvarlegt mál, vissi Hsi vel, að vera flæktur í slíkri þrætu. Ógerlegt er að segja í Kína, hvað orðið getur úr þess konar deilum. An ótta við afleiðingar og öruggur um réttlátan málstað, lagði hann málið þeg- ar fyrir Mandaríninn á staðnum. Voru ekki samningar við Evrópu og Bandaríkin, sem tryggðu vernd þeirra, sem taka vildu kristna trú? Sagði ekki sjálfur Drott- inn: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu, farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum?“ Efalaust voru samningar þessir hluti af því valdi, sem lagt var í hendur Krists? Hæfileiki hans: að vinna þetta mál fyrir dómstólunum, var það sjálfsagt líka. Heyrði ekki öll hans orka Drottni til, og einnig þessi hæfileiki, efldur við notkun og sársauka liðinna ára? Vissulega var hér komið tækifærið: að láta gáfur sínar koma að gagni í þjónustu nýja Meistarans hans? Þetta var nógu líkleg röksemd. Margur eldri krist- inn maður hefur verið afvegaleiddur af slíkum rök- semdum. Hinar dýpri kenningar Krists eru mörgum torskildar enn, og mörgum augum eru þær huldar. Hsi hélt því málinu fram á sama hátt sem á fyrri dögum til þess að vekja yfirvöldin. Málið sótti hann fast og með svo miklum bægslagangi, að allt var gert til að losna við hann sem allra fyrst. Mandaríninn sendi hermenn til þorpanna, sem áttu hlut að máli, og kom í skyndi á lögum og reglu, og staðfesti réttindi hinna kristnu. Allt þetta tók svo sem mánaðartíma. Flóttafólkið naut á meðan gestrisni Hsi á heimili hans. An þess að finna ósamræmið áminnti hann fólkið um að treysta Drottni og fræddi það kostgæfilega um kenningarnar varðandi kristilegt líferni. Hann ól önn fyrir fólkinu, uns ró var komin á, svo að það gat snúið aftur heim til þorps síns í friði. Þakklátt og hughreyst hélt kristna fólkið í Yang- Ts’uen heimleiðis. Fann það þá, að grannar þess höfðu verið hræddir til hlýðni. Ofsókninni var ekki haldið áfram, heldur virtust allir bera heilnæman ótta fyrir trúnni kristnu. Þetta varð til uppörvunar leitandi, kjarklitlu fólki, þegar svo Li-bræðumir opnuðu hús sitt, til þess að haldin yrði þar almenn samkoma á sunnudögum, flykktist fólkið inn. Hsi kom þangað oft sem áður. Hann sá, að heilar fjölskyldur voru fúsar til að brenna skurðgoðin sín. Nágrannaþorpin fylltust sama áhuga. Jafnvel úr talsverðri fjarlægð kom fólkog flutti með sér sjúka vini, að þeir hlytu lækningu. Það bað líka kristna menn að fara með sér og boða fagn- aðarerindið. Smám saman hófust vikulegar samkom- ur á þessum stöðum líka. Hsi komst að því, að hann hafði nóg að gera við að gegna hirðisstörfum og predika. Á einum stað sneru sér sex fjölskyldur, á öðr- um stað voru þær átta eða níu, sem sneru sér til Drott- ins. Um þrjátíu manns komu reglubundið saman til guðsþjónustu. Er tímar liðu fram, varð Hsi órótt út af því, að einhvem veginn þroskaðist þetta fólk ekki á þann hátt, sem hann vænti og þráði. Allt gekk vel, meðan ekkert erfitt kom fyrir. En henti það, var sem trú þess yrði reikul og hjörtun köld. Hvemig sem hann reyndi að ala þá upp. og annast, þá blómguðust þessir litlu söfnuðir aldrei. Er tímar liðu fram, kom fráfall og hryggileg hnignun. Þetta varð heitum vini þeirra sár sorg, er loksins varð að djúpstæðustu lexíunum, sem hann lærði. Hann skildi það ekki í fyrstu, en sannleikurinn varð honum smám saman augljós. Er þetta hafði endur- tekið sig margsinnis, sannfærðist hann um, að ofsókn og erfiðleikar em leyfð sem nauðsynlegt próf þess, hvort fólk sé fúst til að líða sakir Krists og ganga á vegum hans, er það kostar fórn. Fór hann þá að meta, hvaða raungildi hafði slík reynsla. Hún var sáldun og styrking, verk, sem ekkert annað gat komið í staðinn fyrir. Með fáum orðum sagt: Hann skildi, að Guð veit best, hvernig á að annast þá, sem em hans. Við getum ekki verið án þeirra þrenginga, sem hann leyfir að mæti okkur. Þetta var mikilvæg aukning þroska. Hún, eins og

x

Norðurljósið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.