Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 52

Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 52
52 NORÐURLJÓSIÐ mörg önnur atvik full sársauka, var undir st jóm Guðs. Hsi þurfti svo margt að nema og afnema, að hann gerði framan af glappaskot mörg. En hann var í fylgd með Guði. Og aldrei hefur hjarta svarað né sýnt meiri hollustu því, er gefur meiri þekking á guðlegum vilja. 4. KAFLI Vöxtur t náð. Þetta voru byrjunar tímar. Hsi var enn þá nýgræð- ingur í andlegum efnum, þrátt fyrir kærleika sinn til Krists og afdráttarlausa helgun. Á síðari árum varð hann maður, er sjaldgæfa þekkingu hafði á Guði. Hægt er að hrökkva við, þegar sést, hve langan tíma það tók hann: að koma auga á hluti, sem augljósir virðast. Guð hefur sína uppeldis skóla, jafnvel meðal heiðinna manna. Kristniboðar eru ekki kennaramir einu. Oft ber það við, séu þeir nógu vitrir til að sjá það, að sjálfír em þeir nemendur, þegar heilagur Ándi starfar í námfúsum hjörtum. Vér gemm oft glappa- skot, er vér leitumst við að uppfræða, verðum til hindmnar einmitt af því, að við flýtum okkur að hjálpa. Kennarinn mikli er svo vitur og þolinmóður, missir aldrei kjarkinn, skortir aldrei eðlilegar og einfaldar aðferðir til að láta námskaflann lærast. Þannig þroskaðist Hsi. Hann lærði allt, sem hann gat, þegar svo bar við, að hann hitti kristniboðana í borginni. En Guð kenndi honum, oft á einkennilegan og furðulegan hátt, er orð Guðs upplýsti hann og var heimfært til reynslu daglega lífsins. Má nefna forfeðra dýrkun sem dæmi, þessa , þar vom notaðar aðferðir, sem engum af oss hefðu komið til hugar. I nokkra mánuði eftir það, að Hsi varð kristinn, geymdi hann í gestaherber^i sínu töflu, sem á var letrað nafn fyrri konu hans. I henni átti að búa einn af þremur öndum hennar. (Annar andi dvelur í gröfinni og er tilbeðinn á viðeigandi tímum. Hinn þriðji er þegar farinn til ósýnilega heimsins og verður að sjá fyrir honum með því að fóma öðm hvom pappírspen- ingum, húsum, fatnaði, o.s.frv.) Svo er að sjá, að honum hafi aldrei komið til hugar, að geymslan á töflunni, sem hann var hættur að tilbiðja, væri eins konar bandalag við hið illa. Hann viaðist alls ekki hafa hugsað um þetta. En hafi hann gert það, ályktaði hann svo, að töfluna gæti hann geymt, þó að hann tilbæði hana ekki lengur. Hún gæti verið kyrr hjá hinum og sýnd virðing. Væri hún fjarlægð, mundi það valda hneyksli og misskilningi. Hvað var unnt að gera í þessum kringumstæðum? þar sem enginn var til að sýna honum ósamræmið í þessu, hvemig átti Hsi þá að öðlast þessa sannfæringu, svo að hann yrði sterkur, vitur leiðtogi í söfnuðinum? Tíminn leið, taflan var kyrr. Hsi þekkti alls ekki skyldu sína gagnvart henni. Þá bar svo til einn morgun, er hann kom inn í herbergið sem venjulega, að hann varð alveg undrandi, er hann sá þennan nærri heilaga hlut liggjandi á grúfu á gólfinu. Engin af hinum töflunum hafði verið snert. Þessi hafði fallið, sjáanlega án snertingar mannlegra handa. Hún lá á grúfu framan við staðinn, sem hún hafði verið á. Hsi flýtti sér að reisa hana við. Undmn hans óx, er hann sá, hvað orsakað hafði fallið. Neðsti hluti þessarar trétöflu hafði verið nagaður sundur af rottum. Þetta hafði aldrei komið fyrir áður. Vandlega gerði hann við skemmdimar og setti töfluna á sinn stað. Ein lexía var ekki nægjanleg. Einkennilegt er að segja frá því, en hið sama endurtók sig fáum dögum síðar. Ráðist hafði verið á sömu töfluna. Hún var dottin niður. Þetta var of merkilegt til þess, að gengið yrði fram hjá því. Hsi gat ekki annað en velt fyrir sér, hvers vegna þetta hafði komið fyrir töfluna, sem hann átti aleinn? Atvikið leiddi til umhugsunar og innilegrar bænar. Tók þá sú sannfæring að ná valdi á honum, að forfeðra dýrkunin öll væri hjáguðadýrkun og frá djöflinum. Hann sem sannkristinn maður gæti ekki iðkáð hana framar. Þetta skar úr málinu. Taflan var eyðilögð þegar í stað, og vitnisburður hans í þessu efni varð skýr og afdráttarlaus. Hins vegar fann hann, að Drottinn hafði í þessu máli látið Ijósið koma smám saman. Á þennan einkennilega hán, til þess að hann yrði Ijúflyndur og þolinmóður við aðra í sömu kringumstæðum. „Við þurfum að vera mjög varfærin,“ var hann vanur að segja, „er við vekjum athygli ungra trúskiptinga og leitandi fólks. Auðvitað er forfeðra dýrkvmin hjáguða dýrkun. Hún setur dáið fólk, karla og konur, í sess Guðs. Samt er margt, viðkvæmt og fagurt, í sambandi við hana; minningar úr fortíð, þakklæti, virðing og náttúrulegur kærleikur. Við verð- um að sýna dómgreind. Mikinn skaða getur það gert, sé það fordæmt, sem maðurinn áður þekkti sem hið besta. Þú verður fyrst að vera viss um, að hann hafi hlotið eitthvað betra. Líkt og dauð laufblöð á tré detta rangar og vafasamar venjur af manninum, þegar hann eignast eitthvað betra.“ Þannig var það svo um hann, og ekki einungis, er forfeðradýrkun átti hlut að máli. Það vekur undrun, að fyrsta sumarið eftir aftur- hvarf sitt hélt hann áfram með góðri samvisku að rækta og selja ópíum þrátt fyrir það, að hann þekkti svo vel banvænar afleiðingar efnisins. Enginn hafði bent honum á, að hann sem kristinn maður ætti ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.