Norðurljósið


Norðurljósið - 01.01.1980, Qupperneq 57

Norðurljósið - 01.01.1980, Qupperneq 57
NORÐURLJÓSIÐ 57 ennþá hafist handa um eitthvað, sem var alveg nýtt. Lækninga-kristniboðsstöð, rekin alveg af innlendu starfsfólki og án eftirlitis útlendra manna, var alveg nýtt fyrirbæri á þessum dögum. Kristniboðarnir, sem dvöldu í borginni, höfðu samúðarkennd og áhuga. En viturlegast þótti þeim: að veita enga beina aðstoð. Aleinn og bænrækinn tók Hsi til starfa. Lyfjabúðin nýja var tilbúin bráðlega og lyíjaverslun hafin. Stofan bak við búðina var gjörð að gestasal. Stólar með háum bökum stóðu þar sem heiðurssæti. Gljáfægður látúnspottur og postulínsbollar stóðu á borðinu sem byðu þeir gesti velkomna. Kristileg einkunnarorð skreyttu veggina. Gnægð bóka og bekkir bentu til, að haldnar væru hér kvöldsamkomur og guðsþjónustur á sunnudögum. Sjálf var búðin snotur og aðlaðandi. í opnum gluggum sáust birgðir lyfja. En innifyrir var hefðbundna sætið, er læknirinn skipaði, er hann ræddi við sjúklinga sína. Yfir dyrunum voru orðin: Salur sælla hljóma eða Góðra frétta. Hsi átti mjög annríkt á þessum dögum, því að hann var læknirinn, predikarinn og forstjórinn. í vissum skilningi vann hann starf lækninga-kristniboða. En hafði það framyfir, að hann var innlendur sjálfboða- liði. Það var gott sambland. Abyrgðastörf hans jukust í heimaþorpi hans. Heimili hans, rúmgott eins og hjarta hans, var fullt af fólki, sem þarfnaðist hjálpar. Jafnvel sumarið 1881, tæpum tveim árum eftir afturhvarf hans, ritaði sá kristniboði, sem ábyrgð bar á starfínu í því héraði, á þessa leið: „Maður úr þorpinu, þar sem Hsi á heima, var hér á samkomum í gær. Velbúinn var hann og heilbrigður að sjá. Hann bað á fagurri kínversku, að við mættum öll læra, hvað það er: að deyja með Kristi, vera með honum greftruð og jafnvel nú að rísa upp og lifa upprisulífínu með honum. Fáir mánuðir eru liðnir, síðan þessi maður var í tötrum, óhreinn og aumlega á sig kominn. Hann neytti mikils ópíums, nálega 30 grömmum af þessu eitri á dag. Hsi tók hann að sér, hafði hann heima hjá sér, fór með hann sem bróður sinn, keypti lyf gegn ópíumsnautn, annaðist hann og leiddi hann til Krists. Ópíums-neysla er alveg horfín. Hann aðstoðar Hsi við allar samkomur. Hvort hann hefur öðlast fullkomið afturhvarf, veit ég ekki. En hann er gott sýnishom af því starfi, sem bróðir okkar Hsi rekur, og er til mikillar uppörvunar." .... Ekki gekk allt eins og í sögu, þó að lyfjabúðin væri opnuð. I Kína líkt og heima er til fólk, sem játast vill undir nærri því hvað, sem er, fyrir sakir ávinnings. A meðal þeirra, er komu sem leitandi menn, voru án efa einhverjir, sem héldu, að tækju þeir kristni, tryggði það kröfur um fjárhagslega hjálp. Fjarlægt var það Hsi að líta þannig á málið. Sjálfstæður og úrræðagóður var hann sjálfur. Háleitar voru hugsjónir hans um kínverska kristna kirkju. Hins vegar var hann gæddur sönnu hirðishjarta, bar umönnun mikla fyrir þjáðum og sjúkum. Aldrei gat hann sagt: „Vermið ykkur og mettið,“ en látið trúbróður frá sér fara hungraðan og aumstaddan. Það gerði hann aldrei. Hins vegar var ekki hægt að svíkjast að honum. Enginn komst fyrr að uppgerð eða óeinlægni en hann, ef hún var til staðar. Þannig var hann glöggskyggn á eðlisfar manna. Það bjargaði honum frá mörgum mistökum, hélt hjartgróinni samúð hans í jafnvægi. Hann var líka meðal eigin þjóðar, sem hann skildi svo vel, að ekki var líklegt, að hann yrði leiddur langt út af réttum vegi. Frá upphafi var hann of vitur til þess, að honum kæmi í hug, að kristniboðar frá öðrum löndum skyldu reyna að fást við þess konar góðgerðarstarf. Eðlilega þekktu þeir ekki, hvernig er kínverskt skapferli, eðlisfar og siðvenjur. Voru þeir svikurum auðveldari bráð, og afstaða þeirra önnur gagnvart kirkju landsmanna. Sjálfur sá hann aldrei nokkra ástæðu þess, að minnka nokkuð örláta gestrisni sína. Meðan hann lifði, var heimili hans opið öllum, sem hann gat þjónað vegna Jesú. Stöku sinnum varð hann fyrir vonbrigðum. Mennirnir, sem hann setti fyrst í lyfjabúðina, brugðust honum og vildu ekki vera, því að þeir högnuðust ekki nógu mikið á því. Hsi fékk áhyggjur út af þessu, aðallega þeirra vegna, því að hann óttaðist, að þeir yrðu aldrei að fullu gagni í framtíðinni. Og það varð svo. Með óbuguðum kjarki setti hann aðra í þeirra stað, og starfið hélt áfram í meir en tuttugu ár. 7. KAFLI Vandamálið skilið. Komið var upphaf ársins 1883, fjórða árið frá afturhvarfí hans Hsi. Orlagastund var að nálgast. Hann vissi það ekki. Nýjar framkvæmdir voru í vændum, er leiða mundu til ævistarfs hans. Þrjátíu og tveimur km. norðar en þorp hans var, fast við þjóðveginn, er lá til höfuðborgar héraðsins, vzr borgin Hung-Tung, höfuðborg fylkisins. Hún stóð sem vörður við þéttbýla sléttu. Fjöldi borga og þorpaa var þar á sléttunni og teygðu sig upp á lægri rana fjallanna. Mikilvægustu borgirnar voru meðfram straumharðri ánni. Er kristniboðar ferðuðust yfír þetta fagra hérað, hafði þeim orðið ljóst, hve mikil- vægt það væri, að þarna risi kristniboðsstöð. En fram að þessu hafði ekki fagnaðarerindið borist þangað. Þar sem kristin kirkja hafði látið fólkið sitja svo lengi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Norðurljósið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.