Norðurljósið - 01.01.1980, Page 69

Norðurljósið - 01.01.1980, Page 69
NORÐURLJÓSIÐ 69 ar um tíma áður en þær gátu ákveðið sig, að þær skyldu stíga þetta spor: að taka þannig opinbera afstöðu með Meistara sínum. Huggun mikil var þeim að því, að frú Fan frá Hælinu ætlaði að láta skírast við sama tæki- færi. Einkennileg mundi virðast löng dagleið yfir sléttuna, sem lyki á strætum borgarinnar. Þær mundu sjá kristniboðshúsið, verða boðnar velkomnar af þess- um erlendu vinum sínum og verða kynntar svo mörg- um, er voru sömu trúar, en höfðu aldrei séð. Jú, frú Fan var þar og frú Liu frá So-pu og alls ekki fáar aðrar að auki, sem hlýna mundi um hjartarætur, því að nafnið Hsi var orðið öllum kunnugt. „Ég er einungis þróttlítil, gömul kona yfír sjötugt,“ svaraði frú Hsi kveðjunum, sem alstaðar dundu yfír hana. „Erfítt hefur verið að takast þetta á hendur, en ég gat ekki haldið mér frá því. Á mínum aldri er lífið ekki tryggt. Hvemig gat ég verið fús til að hverfa héðan án þess að hafa játað Drottin minn Jesúm fyrir mönnunum?“ Önnur ástæða til að gleðjast var í sambandi við skapraunir, sem Hsi hafði orðið fyrir. Voru þær vegna tilrauna bókmenntamanna í fylkinu að knýja hann til að yfirgefa trú sína á Krist. Eða þá að láta bera minna á henni. Ofsókninni lauk með því, að kanslari háskólans svipti hann B.A. titli hans, þessum heiðurstitli lista- manns eða fræðimanns. Óvirðing sú var óttaleg öllum, sem tilheyrðu fjölskyldunni. Hsi fann sárt til hennar þrátt fyrir augljóst ranglætið í þessu. Þegar hann ræddi við kanslarann, fékk hann það svar, að titilinn gæti hann fengið aftur, ef hann óskaði þess. Tiltók hann einhverja fjárhæð. Hún var hærri en svo, að Hsi hefði efni á þessu, þótt hann hefði viljað það. Ekkert var unnt að gera, því að mútur komu ekki til greina. Lögsókn vildi Hsi ekki beita sér til hagsmuna. En langt var frá því, að létt væri fyrir mann í svo hárri stöðu og ráðríkan að eðlisfari: að beygja sig með þolinmæði undir slíkt opinbert ranglæti og gys. Stöð- ugt var beðið fyrir honum og honum var hjálpað til að bera þessa raun með kristilegum anda. Kristniboðunum fannst ekki rétt að bera þetta mál fram á grundvelli samningsbundinna réttinda. En Mr. Drake taldi sér frjálst: að bera þessar staðreyndir undir landsstjóra fylkisins, að hann endurkallaði ákvörðun sína. Landsstjórinn gaf þessu engan gaum. Leit út fyrir, að ólöglegu athöfninni fengist ekki hnekkt. Loksins hugsaði landsstjórinn málið betur, og Hsi fékk aftur titil sinn með heiðri. Svo farsæl mála- lok leiddu af sér mikla þakkargjörð. Allir þeir, sem skildu meðferð slíkra mála, töldu þetta baaiheyrslu mikla. Það var um þetta leyti, áður en dr. Schofield dó (hann sýktist af taugaveiki af sjúklingi í sjúkrahúsinu), að Hsi heimsótti höfuðborgina til að sjá einhverja af kristniboðunum. Fréttir af starfí þeirra höfðu borist til hans, þótt hann ætti heima langt frá þeim. Heim- sókn hans var stutt, en minnisverð. Hún var fyrsta kynning hans af nokkru því, er líktist erlendu þjóðfé- lagi. Framkvæmdir hjá kristniboðum, jafnvel á þess- um dögum, höfðu þróast í þá átt, er gat að einhverju leyti líkst erlendu þjóðfélagi. Tvö kristniboðsfélög höfðu þar talsvert starfsíið, erlent (sex eða átta fjöl- skyldur), sem vann að fræðslu og framleiðslu bók- mennta, sömuleiðis lækningastarf og kristniboð. Allt var þetta opinberun honum, sem var kristinn fræði- maður úr suðurhluta fylkisins. Hjálpaði það til að víkka sjóndeildarhring hans. En safnaðarfólk var fátt í höfuðborg fylkisins og var ekki vant því andlega lífi og krafti, sem Hsi var kunn- ugur. Þau atvik, er hann sagði frá, voru fólkinu hvatn- ing og engin smáræðis uppörvun kristniboðunum heldur. Á meðal hinna kristnu, sem voru þama, var öldruð kona, sem hann gat rætt við mjög kunnuglega. Það var hið sama með hana og konu hans og móður, að skím hennar hafði dregist lengi. Ástæða þess mun hafa snortið hami. Hún hafði snúið sér til Krists einu eða tveimur árum áður. Kærleikur hennar, trú og staðfesta í kristi- legu líferni, - þetta efaðist enginn um. Aldrei hafði hún samt beðið um inntöku í söfnuðinn. Henni virtist líða illa, ef minnst var á skírnina við hana. Kristni- boðakonunum var þetta ráðgáta. Þeim gat ekki hug- kvæmst neitt, er haldið gæti aftur af frú Han. Er þau ræddu í rólegheitum saman, sagði hún frá því, hvað henni lá á hjarta. „Æ,“ sagði hún og var þrá í málrómnum, „ef ég gæti aðeins verið sannur fylgjari Jesú oglátið skírast.“ „Hvers vegna ekki,“ sagði krismiboðinn með mikl- um áhuga. „Er nokkuð, sem hindrar þig?“ „Mig?“ mælti gesturinn hryggum rómi, „auðvitað. Hvemig gæti ég verið sannur lærisveinn hans? Ég gæti aldrei framkvæmt verkið.“ „En hvaða verk?“ spurði vinur hennar góðgjarn- lega. „Gerði Jesús það ekki alveg til fulls?" „Ó, jú, og ég elska hann og treysti á hann einan mér til hjálpræðis. En ég veit, að Drottinn Jesús sagði, að lærisveinar hans ættu að fara út um allan heiminn og boða gleðiboðskapinn allri skepnu. Æ, þetta get ég ekki gert.“ „Ég elska það að segja frá honum,“ hélt hún áfram, því að kristniboðinn vinur hennar virtist snöggvast ekki geta svarað. „Ég hef sagt það syni mínum og kon- unni hans og öllum mínum nágrönnum. Á sumrin get ég farið til þó nokkurra þorpa hér í grennd. Ó, ég er ekki hrædd við að segja frá Jesú! Ekki er það þetta.“ „En ég er að verða gömul og mjög þróttlítil. Dimma

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.