Norðurljósið - 01.01.1980, Page 71

Norðurljósið - 01.01.1980, Page 71
NORÐURLJÓSIÐ 71 um hennar. Hún virtist nú haldin af hræðilegri illum krafti en áður. „Hann er farinn! Hann er farinn! “ hrópaði hún. „Nú hræðist ég engan. Látum þá koma með Jesús sinn. Eg býð honum byrginn. Þeir skulu aldrei reka okkur alla út aftur, aldrei!“ Þetta hélt áfram í fáeina hræðilega daga, uns hún dó, úttauguð af áreynslunni. 10. KAFLI Hvernig starfið breiddist út Er Hsi var kominn heim frá höfuðborginni, varpaði hann sér með ennþá meiri ákafa út í starfíð, sem hann unni svo mjög. Allt, sem hann hafði séð, meðan hann var fjarverandi, sannfærði hann enn meir um þörfína og tækifærin, sem voru allt í kringum hann, sömu- leiðis nothæfi aðferðanna í sambandi við ópíums- neytenda hælín og það ástand, sem þá ríkti í Suður- Shan-si. Fan logaði enn af kærleika til sálna fólksins. Hælið var fullt af sjúklingum og gat því meir en mætt út- gjöldum. Áhugi fólksins breiddist út frá einu þorpi til annars, er menn komu aftur heim til sín og höfðu læknast af hræðilega ávananum. Fjöldi hins frelsaða fólks jókst einnig, eins og í So-pu. Litlir ljósdeplar voru farnir að ljóma í myrkrinu, fólkið, sem gjör- breytst hafði fyrir kraft Jesú. Vaxa hlaut starf sem þetta. Það var of gott til þess, að engan skyldi ekki langa til að njóta þess. Grund- vallar-reglan: að heimilin væru fjárhagslega sjálfstæð, gerði kleift, að þeim fjölgaði. Meðal þeirra, sem höfðu frelsast, voru menn, sem alveg voru færir um að reka lítil Hæli í sveitum, með hjálp og eftirliti. Úr ná- grannaborgum og þorpum hljómaði kallið á slíka menn og starf. Hið eina, sem þurfti, var maður, er skipulagt gæti Hælin og borið ábyrgð á þeim. Sömu- leiðs menn, fleiri menn, gæddir réttum anda og með þjálfun, svo að þau heppnuðust vel. Tækifærið sá Hsi. Hvfldi á honum þrá til að hagnýta þau sem best. „Starfíð, sem Drottinn hefur gefíð mér að vinna,“ sagði hann, „er ekki svo mjög starf sáðmannsins, er dreifír út sáðkornum. Það er starf fiskimannsins, er dregur upp netið sitt. Fagnaðarerindið boðað fjær og nær er sáning. Hjálp veitt mönnum, einum og einum, til að losna við ópíumsnaum og trúa á Jesúm, það er líkt fískiveiðum.“ Hann gaf sig að því hlutverki með hagsýni og framtakssemi. Sáðkornin falla ekki öll í góða jörð. Þótt fískar komi í netið, nást þeir ekki allir á land. Hsi fór að reka sig á, að oft fór svo, að leitandi menn, er mestar vonir voru tengdar við, sem barist hafði mest verið fyrir, að þeir frelsuðust, urðu valdir að vonbrigðum síðar. Eðli starfsins var þannig, að þaðgerði hann sérstak- lega berskjaldaðan. Það virtist bjóða fjárhagslega hjálp ekki síður en andlegt aðdráttarafl. Hælin voru rekin þannig, að þau borguðu sig og jafnvel veittu ofurlítinn fjárhagslegan stuðning. Aðeins með nákvæmri um- hyggju og góðri stjóm var unnt að ná þessu marki, sér- staklega í sveitunum. En er fólk sá, hve vel gekk með eldri Hælin, kom því til hugar, að þetta gæti reynst gróðavegur auðveldur. Það sá, að starfíð var gott og hræðilega mikil þörf á því. Fór það þá að líta þannig á, að sjálft gæti það auðgast samtímis því að gera öðrum gott. En það, sem það sá ekki, var öll bænin og sjálfs- fórnin, erfiðið, þolgæðið og hagnýtt skipulag Fan’ts’uen starfsins. Aðeins þetta með blessun Guðs gat veitt árangur. Þess vegna var það mjög snemma, að menn með blönduðum hvötum fóru að skapa erfiðleika. Gerðu þeir ráð fyrir, að þeir gætu grætt á guðrækninni. Ahyggjan, er þetta bakaði Hsi, var þó minni en sorg- in yfir fráfalli og flokkadrætti á meðal kristinna manna. Undir þetta var Hsi varla búinn. Hann vænti alls konar erfíðleika utan að frá. Það væri þáttur í eðli- legri andstöðu djöfulsins. Hræðilegar hrasanir og flokkadráttur krömdu hjarta hans. Að einhverju leyti var hann farinn að læra: að bera byrðina postullegu: „Ahyggjuna fyrir öllum söfnuðunum.“ Meðan þessu fór fram, óx starfíð hratt. Oreyndum mönnum hefði getað virst, að guðsríki væri að mynd- ast í Suður-Shan’si. í raun og veru var það svo. Þó ekki án flóðs og fjöru, sem ávallt fylgir hreyfingum, sem eru andlegs eðlis. Fimmtíu til sextíu menn komu saman reglubundið í þorpi Fans og tilbáðu Drottin. Hundruð manna, meir eða minna leitandi, voru á öðrum stöðum. Gaf þetta nokkuð góða ástæðu til bjartsýni um framtíðina. Er tímar liðu, reyndist það svo, að fjöldi af þessu fólki, karlar og konur, voru í raun og veru frelsuð og frædd af Andanum. Aftur á móti voru aðrir, sem orðið höfðu fyrir ein- göngu náttúrlegum áhrifum, bomir um tíma uppi af grunnfærnum tilfinningum. Reyndist ekki unnt að greina á milli hveitis og illgresis. Þetta tvennt varð að vaxa saman, uns prófraunin kæmi fyrr eða síðar, sem leiddi þá í ljós, hvemig eðlisfarið var. Hefur það ekki alltaf gengið svona til, jafnvel í lífs- reynslu Drottins vors sjálfs? „Upp frá þessu fóru margir af lærisveinum hans burt frá honum og voru ekki framar með honum.“ En alltaf hafa dýrmætar leifar orðið eftir, gullið, er skærar skín vegna eldanna: „Þér eruð þeir, sem stöðugir hafíð verið með mér í freistingum mínum.“ Þessi grundvallar-regla, sem Drottinn kennir svo skýrt í dæmisögum sínum, sé hún skilin rétt, mun hafa raungildi mikið í kristniboðsstarfi. Hún styrkir sálina,

x

Norðurljósið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.