Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 79

Norðurljósið - 01.01.1980, Blaðsíða 79
NORÐURLJÓSIÐ 79 mönnum, og þolinmæði sýndi hann þeim, þó að aðrir höfðu gefið upp alla von. Stundum, jafnvel með þá erfíðustu, vann trúin sigur. Stundum virtist allt hafa verið til ónýtis. En þannig fór oft með þá, sem vildu ekki beygja sig, að þeim var kippt burt án þess, að Hsi ætti þar nokkurn hlut að máli, og stundum á mjög alvarlegan hátt. Einn leyndardómur þess kraftar, sem hann óefað hafði, var kærleikurinn, sem gerði honum kleift: að gefast ekki upp, en sýna þessum mönnum svo dásamlega þolinmæði. Hið góða í þeim sá hann alltaf og vænti hins besta. En þegar þeir syndguðu, þjáðist hann þannig, sem kærleikurinn einn þjáist. Þar sem þeir dvöldu hjá honum dag og nótt á heimili hans, bakaði þetta honum oft hjartakvöl. Var það einna sárast af því, sem hann varð að bera. Athugasemd ritstjórans. Maður nokkur lét þá ósk í ljós við mig, að ég sneri ein- hverri góðri bók á íslensku. Datt mér þá þessi helst í hug. Aðallífsstarf þessa merka manns, hirðisins Hsi, er varla byrjað enn. Starf hans: lausn sem flestra landa sinna, er reýktu ópíum, er meginefni bókar þessarar. Hvað er vandamál ofdrykkjumannsins? Léttbært í samanburði við böl ópíumneytandans. En voldugur kraftur Krists stendur báðum til boða og öllum eitur- lyfja neytendum. En farvegur þessa kraftar er trúin á Drottin Jesúm Krist. Komi öll bókin út, er ólíklegt, að það geti orðið á þessu ári. Sennilega yrði hún í tveimur bindum. - S. G. J. Gömul bæn - og svar Þú, Frelsarinn góði, mér gefðu þá náð: að geti ég sigrandi stríðið mitt háð, svo freisting mig fái ei unnið. Hið illa, það freistar mín dag eftir dag. Ó, Drottinn minn! Gættu að barnsins þíns hag, uns skapaða skeiðið er runnið. Hve mannsviljinn slappur og magnlítill er gegn mögnuðum, harðskeyttum ástríðu her! Hve vonlaust, að vinnist þau stríðin. Sem úlfur, er fylgir í ferðamanns slóð og frá eigi víkur, uns smakkar hans blóð, svo fylgdi mér freistinga hríðin. Hve oftsinnis varð ég þeim úlfi að bráð! en almáttug, bjargandi Frelsarans náð mig yfirgaf aldrei í nauðum. Hann brotin mín fyrirgaf, stund eftir stund. Hann stíflaði rennslið úr blæðandi und. - Eg samt var þó einn af hans sauðum. Ég helgaðist Drottni. Mitt hreinsaðist líf, því Hann varð minn skjöldur, hin máttuga hlíf og stoð mín og styrkur að berjast. Ég horfí ei lengur á mig eða mann, en mænandi stara mín augu á Hann. Ég veit það eitt ráð til að verjast. Ég vitnisburð flyt þann: Ég veit, það er Hann sem vemdar og frelsar hinn óstyrka mann, ef hjarta hans heilt er við Drottin. Ef Kristur er sjálfur hans kraftur og líf, af kærleikans brynju og Guðs-trúar hlíf öll skyti’ eru skjótlega dottin. S.GJ. „Guð dýrðarinnar“ Öll dýrð og tign, þér Drottinn, veitist, þú dýrðar-faðir hár. Þú lifir einn og aldrei breytist um alda þúsund ár. Þú öllu líf og anda gefur, og eins og blæju himna saman vefur. Þótt eilífð hverfí í alda sjá, þú enn ert morgni tímans á. Þú, Faðir, upphaf alls, er lifír, og alls, er skapað er, þitt ríki tekur alheim yfir, og allir lúta þér. Þú lítur allt, sem er og hrærist og innstu kennd, í hjarta manns er bærist. Þín hönd á ótal hjálparráð, þitt hjarta er fullt af elsku og náð. Þitt auglit maður enginn skoðar, samt augljós dýrð þín er, sem verk og máttarvald þitt boðar, og vitni um þig ber. Þú birtist, er þú son þinn sendir, að sjá þig í hans dýrð þú mönnum kenndir. Hann veru þinnar ímynd er, í öllu ljóma þinn hann ber.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Norðurljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.