Alþýðublaðið - 24.12.1962, Page 13
Út úr Hiyndagátunni getið þið lesið eina stórpólitíska setningu, lausn myndagátunnar er að finna á bls. 53 eins og allar aðrar lausnir á dægradvölinni.
JÚLALEIKIR
Hér er einn ágætur samkvæm-
isleikur, sem hægt er að nota
meðan fólk silur við kaffiborð eða
hvenær, sem vera skal.
Einhver skrifar upphaf sögu
á blað, nokkrar línur. Ilann brýt-
ur síðan blaðið um þannig, að
aðeins sjáist hvað hann hefur
skrifað í síðustu línuna, og sú
lína þarf helzt að vera hálf og
ekki enda á punkti.
Blaðið er síðan fengið næsta
manni, sem bætir tveim til þrem
línum við söguna, og þannig koll
af kolli, unz allir við borðið hafa
lengt söguna með nokkrum setn-
ingum. Síðan er einhver til þess
valinn að lesa söguna upp. Og
mun þá koma í Ijós, að sagan er
orðin sprenghlægileg og sjálf-
sagt í litlu samræmi við það, sem
byrjað var á.
Hér er annar leikur, sem get-
ur verið mjög skemmtilegur. —
Hver þátttakandi fær tvo pappírs
miða. Á annan miðann skrifar
þátttakandinn einhverja setningu,
þar sem hann lýsir ánægju sinni
eða óánægju með eitthvað, eða þá
að hann kemur með einhverja
fullyrðingu.
Á hinn miðann skrifar hann
svo ástæðu ánægju sinnar, óá-
nægju eða rök fyrir fullyrðingu
sinni í stuttu máli (einni setningu)
. Setningin á (fyrri miðanum
ætti alltaf að byrja á ÉG, en setn-
ingin á hinum miðanum að byrja
á VEGVA ÞESS. T. d. Eg sé |
ekki veginn. Og á hinum miðan- i
um — vegna þess, að það er svoi
dimmt.
Þegar miðunum er síðan bland-j
að í tvennu lagi, og einhver val- i
inn til að lesa upp miðana meði
því að taka einn af handahófi úr:
hvorum hóp, fer ekki hjá því, aðj
margt spaugilegt kemur fram.
:
Hér er einn leikur enn, skemmti ;
Iegur og „fróðlegur", en ekki fyr-:
ir þá, sem ekki þola meinlaust;
grín:
Allir viðstaddir fá miða í hend-íi
ur. Efst á miðann eiga þeir aðj
skrifa nafn sitt. Einn stjórnar
þessum leik. Hann sér nú um, aðj
þátttakendur láti miðann gangá;
áfram til næsta manns og síðant;
áfram hringinn, eftir að stjórniíj
andinn hefur hverju sinni spurij
eiunar spurningar og fengið skrif-j
legt svar á hvern miða. Ætluniii
er að fá fram lýsingu á hverjumj
manni, sem gefin er sameigin*:
lega: Hvernig er hárið? Hvemiffj
eru tennurnar o. s. frv.
Eftir að hverri spurningu hef«;
ur verið svarað, er blaðið brotif|
um, áður en næsti maður fær það
í hendur, svo ekki sjáist hvatf
kemur á undan.
Með líflegum skriftum og hug-f
myndaflugi er hægt að fá stórf
kostlegar mannlýsingar f þessuni
leik.
JÓLABÓK ALÞÝÐUBLABSINS 1982 j'j