Lögrétta - 01.07.1932, Page 11
309
LÖGRJETTA
310
hefði kirkjan nú enga sanna trú á veg-
leiðslu og innblæstri heilags anda, sem
mundi gera henni það kleift að mæta
kreppu og erfiðleikum sögunnar með inn-
blásnum skilningi. Hann sagði að kristin-
dómurinn, sem lifandi trúar'brögð manna,
mundi vera úr sögunni, ef hin nýja siðbót
kæmist ekki á.
Dr. Major talaði einnig um það, hvort
menning nútímans eða menn nútímans
mundu vera siðspiltari en áður, en ýmsir
álíta að breytingar á siðferði hafi átt sjer
stað til hins verra og kenna það að ýmsu
leyti hnignun trúarinnar. Dr. Major sagð-
ist ekki sjá nein merki siðhnignunar. Hann
sagði að þrátt fyrir alt færi grimd og glæp-
um fækkandi, og drykkjuskapur og ólifnað-
ur væri nú einnig minni en áður. Hinsveg-
ar væri sjónarmið manna nú alment víðara
en áður, mannúðin færi vaxandi og alvarleg
viðleitni ykist til þess að minka mannlega
eymd og gera lífið gleðilegt fyrir alla.
Ummæli dr. Majors hafa vakið allmikið
umtal í Englandi og eftirtekt. Hann var á
köflum allhvassyrtur, en sumt af því, sem
hann sagði, voru almennar athugasemdir,
sem oft heyrast. Kirkjan verður oft fyrir
ómaklegum árásum, hún hefur þrátt fyrir
n.argt, sem að henni má finna, nú og á
liðnum öldum, verið merkileg menningar-
stofnun og sálubót mörgum mönnum, sem
betur gátu lifað í trúnni en án hennar.
Kirkjan hefur átt við marga erfiðleika að
stríða á þeim umbrotatímum, sem gengið
hafa yfir heiminn á seinustu árum og hef-
ur að margra manna áliti brugðist að ýmsu
leyti hlutverki sínu, ekki orðið sá frið-
flytjandi og sættir manna, sem hún átti að
vera og ekki getað veitt mönnum þá lækn-
ing sálarinnar, sem nauðsyn hefur verið á,
á upplausnar- og umbrotatímum í þjóðlífi
og vísindum. Þar að auki hefur kristin
kirkja verið klofin og sjálfri sjer sundur-
þykk, og ekki einlægt deilt um merkismál.
En kirkjudeildirnar hafa líka á undanförn-
um árum unnið að ýmsum merkilegum menn-
ingarmálum og lagt til þeirra góðan skerf.
Það er ekki ósennilegt, að ný siðbót eigi
enn eftir að auka veg og áhrif kristinnar
kirkju.
TAótmælendur
Tramtíð þeírra og stefna
Spurningin um framtíð og gildi kirkj-
unnar, einkum mótmælendakirkjunnar, var
líka rædd á kirkjufundinum í Bristol af
öðrum kennimanni, dr. Inge, dómkirkju-
presti. Togstreitan milli kirkjudeildanna er
orðin nokkuð hörð á köflum og trúmála-
deilurnar ærið svæsnar og sýnist sitt hverj-
um, þegar meta á það hvernig kirkjudeild-
unum vegni, eða hver áhrif þær hafi. Dr.
Inge er einn af helstu og ákveðnustu tals-
mönnum mótmælenda og hefur oft verið
þungorður í garð kaþólskunnar og svo var
hann einnig í þessu erindi sínu. Hann sagði,
að það aðdráttarafl, sem rómverska kirkj-
an hefði óneitanlega, væri af ýmsum rótum
runnið. Kaþólska kirkjan hefur athugað
nákvæmlega mannlegt eðli og hagað sjer
samkvæmt því, sem þær athuganir hafa
leitt í ljós. Starfsaðferðir hennar eiga að
vísu helst við fólk við Miðjarðarhafið, sem
er ennþá að mestu leyti heiðið, en þær
hafa einnig áhrif á norrænt fólk. Öll áföll
iðnmenningarinnar hafa orðið vatn á millu
kaþólskunnar, því að hún hefur eiginlega
aldrei haft samúð með nýtísku vestrænni
þjóðfjelagsstefnu og hefur verið best kom-
in í bændaþjóðfjelögum. Fyrir hundrað ár-
um var kaþólskan lítilsvirt í Englandi, nú
er það tíska, að mikilsmetnir rithöfundar
snúist til kaþólskrar trúar, þótt enginn
þeirra sje ef til vill í fremstu röð. En dr.
Inge bendir einnig á, að það sje einkenni-
legt, að jafnframt því, sem kaþólskunni
vaxi virðing í mótmælendalöndum, sje hún
sífelt að tapa innan sinna eigin vjebanda.
í Frakklandi, á Spáni, í Portúgal, Belgíu
og Mexíco og Suður-Ameríku hefur hún
verið að missa sjerrjettindi sín og eignir
og lítið getað hamlað upp á móti andstæð-
ingum sínum. Hann álítur, að kaþólska
kirkjan sje á undanhaldi þrátt fyrir alt,
jafnvel í írlandi og Póllandi, þar sem kirkj-
an hefur, eins og hann kemst að orði, sví-
virt sjálfa sig á því að taka þátt í pólitísk-
ii m undirróðri.