Lögrétta - 01.07.1932, Qupperneq 14
315
L ÖGRJETTA
31G
staðurinn sjálfur verður að safni, og safnið
verður að samfeldum lifandi veruleika, eftir
t>ví sem unt er.
Það er slíkur uppg-röftur, sem Iram-
kvæmdur hefur verið í Herculaneum, máske
betur en nokkursstaðar annarsstaðar. Menn
sjá bæinn í sinni fornu mynd, göturnar eins
og' fornrómverjar gengu á þeim, húsin að
utan og innan eins og þeir bjuggu í þeim,
búsáhöld þeirra og listaverk og skraut eins
og það var. Forn bær hefur risið upp til
nýs lífs fyrir atbeina fornfræðinnar og ný-
tísku aðferðir hennar, áhalda og þekkingar.
Sír 'Ronald 'Ross
Einn af merkustu læknum nútímans, Eng-
lendingurinn Sir Ronald Ross, er nýlega dá-
inn. Það var hann, sem fann orsök malarí-
unnar og lækning við henni og er því einn
af velgerðarmönnum mannkynsins. Hann
var fæddur í Indlandi 13. mars 1857, sonur
fcringja í indverska hernum, manns er var
mjög listhneigður og erfði sonur hans einn-
ig þá eiginleika og ætlaði sjer fyrst að
verða listamaður, en fjekst við læknisfræð-
ina með hangandi hendi og fjell fyrst á
læknaprófi. Seinna varð hann skipslæknir
og að lokum læknir í Indlandi. Þar fór hann
aftur að fást við listræn viðfangsefni, sem
hugur hans hafði áður hneigst að, en gaf
sig nú ekki aðallega að teikningum, eins og
áður, heldur að ritstörfum. Hann hefur
orkt góð kvæði, skrifað leikrit og skáld-
sögu. Smámsaman fór hann einnig að
leggja aukna rækt við læknisfræðina og
tók einkum að athuga malaríuna, sem var
hinn versti vágestur. Ýmsir höfðu fengist
við þessar rannsóknir áður, án þess að
skilja til fulls orsakir og eðli sjúkdómsins
og án þess að geta læknað hann. Ross datt
í hug, að það mundi vera fluga sem völd
væri að sjúkdóminum, hann bærist út með
ílugnabiti. Þetta reyndist rjett og þar með
var grundvöllurinn lagður að tilraunum til
þess að útrýma sýkinni, en það var aug-
ljóst, að ef það tækist mætti gera stór
svæði, sem áður voru óbyggileg, aðgengileg
fyrir mannabýli og menningu. Þannig varð
vísindaleg uppgötvun á sviði gerlafræða og
læknisfræða til þess að skapa nýja pólitíska
og menningarlega möguleika. Ross fjekk
Nobelsverðlaun fyrir læknisfræði 1902.
Ýrd 7A.ustafa Ývemal
Gazi Mustafa Kemal hefur verið aðsóps-
inikill í stjórn sinni í Tyrklandi og látið
mörg mál til sín taka. Hann hefur ætlað
að gerbreyta þjóðinni á skömmum tíma —
alt of skömmum tíma segja margir —,
breyta lifnaðarháttum hennar, hugsunar-
hætti og stjórnarfari. Hann hefur skipað
fyrir um nýjan klæðaburð, nýja leturgerð
o. s. frv. Nú hefur hann einnig hafist handa
til þess að endurreisa og umsteypa tyrkn-
eska tungu — eða til þess að skapa nýtt
tyrkneskt mál, að því er ýmsir segja, svo
róttækar eru margar þær breytingar sagðar,
sem hann hugsar sjer. Tyrknesk tunga er
okkur að vísu mjög fjarlæg og fjarskyld,
svo að slíkar framkvæmdir sem þessar eru
að því leyti lítið í frásögur færandi hjer.
En þær eru athyglisverðar einnig hjer í
fjarlægðinni, af því að þær eru vottur um
merkilegt menningarstarf, stórfelda tilraun
á sviði þjóðernismálanna og andlegrar end-
rrnýjungar, ein stærsta tilraun, sem sögur
fara af til þess að koma á skipulagsbund-
inni, róttækri endurskoðun á tungumáli. Það
er ætlun Kemals að hreinsa tunguna af ýms-
um erlendum orðum, orðmyndum og beyg-
ingum, sem komist hafa inn á undan-
förnum öldum fyrir erlend áhrif, fyrst og
fremst persnesk og arabisk, ennfremur ætl-
ar hann að koma skipulagi á nýyrðamyndun
ruálsins og orðaforða þess, að því er snertir
orð um ný hugtök, eða menningartæki, en
slík orð kváðu mjög vera á ringulreið.
Kemal hefur boðað málfræðinga á ráðstefnu
út af þessu og ætlast til þess, að hún verði
ekki einungis sótt af Tyrkjum, en einnig
iiðrum þjóðernum í ríkinu og af erlendum
málfræðingum. Það er sagt, að hann hafi
sjálfur lagt grundvöll þeirra málbreytinga,
sem hann vill framkvæma og sökt sjer til
þess ofan í rannsókn á sögu og eðli málsins.