Lögrétta - 01.07.1932, Síða 19
325
LÖGRJETTA
326
Auðvitað hefur hver alveldisstefna sitt
hámark. Nokkur byrjun hrunsins er þegar
fólgin í því, að sá, sem alveldið skapar er
einlægt óvenjulegur maður, undantekning.
Ilann er nokkuð sviplegur, flöktandi, eins
og alt sem er undantekning. Veldið getur
staðið í nokkrar aldir eða í nokkur ár.
L u d w i g: Og því verður ekki haldið
uppi nema með styrjöldum?
M u s s o 1 i n i: Nei, alls ekki. Hásætum
er haldið uppi af styrjöldum, einræði ekki
altaf. Hjá sumu einræðisvaldi koma styrj-
aldir alls ekki til greina. Vald þjóðar er
afleiðing af mörgum orsökum, og ekki ein-
ungis af hernaðarástæðum. Samt verð jeg
að bæta því við, að fram að þessu hefur
aðstaða þjóða venjulega verið metin eftir
herstyrk þeirra. Fram á þennan dag hafa
menn álitið heraflið ímynd allra þjóðlegra
afla.
L u d w i g: Fram á þennan dag. En á
morgun ?
M u s s o 1 i n i (dræmt): Á morgun? Það
er óvíst. En framvegis þurfum við einhvern
milliþjóðadóm, að minnsta kosti hver heims-
álfa um sig. Eftir að hafa náð ríkjaeiningu
verðum við nú að stefna að einingu heims-
áifanna. En það er býsna erfitt í Evrópu,
af því að hver þjóð hefur sinn sjerstaka
svip, mál, siði og einkenni. ... Viss hluti,
við skulum segja x hluti, hverrar þjóðar er
alveg frumlegur og setur sig á móti öllum
samsteypum. 1 Ameríku er það óneitanlega
auðveldara að halda hinum 48 ríkjum sam-
an af því að þar er töluð sama tunga og af
því að þau eiga sjer ekki aldagamla sögu.
L u d w i g. En er þá ekki í hverri þjóð
viss hluti, sem nefna má y, sem er alveg
evrópiskur?
M u s s o 1 i n i: Hans gætir ekki í valdi
þjóðarinnar. Napóleon vildi sameina Ev-
rópu, það var kapp hans að sameina hana.
Á okkar dögum væri þetta máske auðveld-
ara en þá, en einungis á þann hátt, sem
Karl mikli eða Karl fimti reyndu að fram-
kvæma það, frá Atlantshafi til Úralfjalla.
L u d w i g: Og ekki aðeins að Weichsel ?
M u s s o 1 i n i: Máske aðeins að Weichsel.
Ludwig: Hafið þjer hugsað vður slíkt
Evrópusamband undir stjórn fascista?
Mussolini: Við hvað eigið þjer með
stjórn? Fascismi okkar er eins og hann er.
En í honum eru nokkur einkenni, sem aðrir
gætu líka tekið upp.
L u d w i g: Þegar maður heyrir til yðar
finnst manni einlægt, að skoðunum yður
sje meir í hóf stilt en hjá flestum fascist-
um. Þjer munduð undrast ef þjer vissuð
hvað útlendingur fær að heyra í Róm. Það
or mjög sennilegt, að eins hafi verið um
Napóleon, þegar hann stóð á tindi valds
síns. En getið þjer skilið það, hvernig á því
stóð, að hann gat aldrei unnið alveg höfuð-
borg sína, hversvegna hann var alla æfi
sína „le fiancé de Paris“?
M u s s o 1 i n i (brosti og sagði á frönsku):
Les maniéres n’ étaient pas trés parisi-
ennes. Ef til vill var eitthvað svolalegt í
fari hans. Þar að auki voru Jakobínarnir
á móti honum, af því að hann kyrkti bylt-
inguna, konungssinnarnir af því, að hann
var aðskotadýr, trúmennirnir af því, að
liann átti í deilum við páfana. Það voru
ekki aðrir en alþýðumenn, sem unnu
honum. Þeir höfðu nóg að borða og þeir
eru fúsastir til þess að taka við heiðri, því
að sæmdin verður ekki skýrð rökfræðilega,
hún er tilfinningamál.
L u d w i g: Þjer talið næstum því af sam-
úð um Napóleon. Virðing yðar fyrir hon-
um hefur þá ekki þorrið á stjórnarárum
yðar, þegar þjer hafið getað prófað hann
dálítið ? j lj
M u s s o 1 i n i: Nei, aukist.
L u d w i g: Þegar hann var ungur her-
foringi sagði hann einu sinni, að þegar hann
sæi autt hásæti, langaði sig til þess að setj-
ast í það. Hvað segið þjer um það?
M u s s o 1 i n i (brosti hæðnislega): Síð-
an hafa hásætin mjög mist aðdráttarafl
SÍtt.
7Áussolíní og Cæsar
Ludwig: Vita menn um nokkurn
sem hrifsað hefur alræði og verið vinsæll?
M u s s o 1 i n i: Máske Cæsar. Morð Cæs-
ars var ógæfa fyrir heiminn. Mjer þykir
vænt um Cæsar. Hann einn hefur sameinað
vilja hermannsins og vitsku snillingsins. í
raun og veru var hann heimspekingur, sem