Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 6

Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 6
54 ÓÐINN slægjulandi og Þingvallasveit1). Sum býlin eru nálega engjalaus. Túnin eru lílil. Á sumum bæj- um verða þau ekki grædd út vegna naktra hraunlióla, sem umhverfis þau eru. Þingvellir, sem jafnan eru taldir skársta jörðin, hafa fóðrað í meðalári að eins 2 nautgripi. Heyafli allra jarðanna í sveitinni er, að samanlögðu, í meðal- ári álíka og á einni góðri jörð í sumum öðrum sveitum landsins. Áður fyr hjelt skógurinn nær eingöngu lífinu í búpeningi bænda, sem bjuggu á Þingvallahrauni. Hann var alt í senn: fóður og húsaskjól sauðkindanna, og eldsneyti handa fólkinu. Hann skýldi öllum gróðri, sem óx við rætur hans. En þrátt fyrir skóginn, þennan mikla fóðurgjafa, kom það fyrir í Þingvallasveit, eins og víðar á íslandi, að saufje fjell úr hor og króknaði úr kulda úti á víðavangi köldu vorin. Sem dæmi þess, hve mikil harka var sýnd sauð- fje á sjálfu prestsetrinu á Þingvöllum, fyr á tímum, er það, að engin fjárhús voru reist á staðnum fyr en nokkru eftir árið 1822. Fram að þeim tíma var sauðfje látið ganga úti allan veturinn, hverju sem viðraði. Þó voru sauðir aldrei hýstir eftir að fjárhús voru reist, og hey var þeim ekki gefið öðruvísi en að strá því á gadd. Raunar voru óvistlegir hraunhellar ætlaðir skepnum til skjóls í aftaka veðrum. Varla er hægt að halda hiklaust fram, að Þingvallahraun sje skógi vaxið samkvæmt þeirri merkingu, sem felst i orðinu skógur. Það á bet- ur við að kalla það vaxið kjarri. Það er sjald- gæft að þar finnist beinvaxin, einstofna trje, vaxin upp af sömu rót, eins og birkinu er eðlilegast að þroskast, og sem skipar því sess meðal erlendra skógartrjáa. Þessu veldur sauð- fjárbeitin. Þar sem bitið er ofan af sprota á aðalstofni birkiplöntu kemur sár, sem ekki grær aftur. Sprotinn hættir að vaxa, en neðar út úr stofninum, eða við rólarhálsinn, vaxa nýir ang- ar. Enn er bitið ofan af þeim, og vaxa þá nýir sprotar annarsstaðar út úr stofninum. Að lok- um fer svo, að trjeð verður að margstofna runna. Á vetrum veitir hann snjónum viðnám, sem beygir hann og sveigir niður að jörð og gerír hann að vansköpuðum krippling. Slíkir birkirunnar nefnast kjarr, þó að kallaðir sjeu skógur í daglegu tali. Þannig er útlit ilmbjark- arinnar á Þingvallahrauni. Harðrjetti og kúgun varð hlutskifti hennar í uppvextinum og afleið- ingin bæklaður stofn og kyrkingslegur vöxtur. Ef engin ytri áhrif valda því, að toppgrein birki- plöntunnar særist, meðan hún er að vaxa, sam- einast vöxturinn í einn gildan og sterkan bol, sem lyftir greinum, með þroskuðu fræi, hátt yfir allan annan jurtagróður umhverfis hana. Auk beitarinnar var það viðarhöggið, sem spilti skóginum á Þingvallahrauni. Það var reglan að velja til höggs stærstu einstofna trjen, sem gáfu drýgstan eldivið, voru efnismest og munaði um til kolagerðar, eða í árefti í hús. Það voru trjen, sem líklegust voru til að bera þroskað fræ, sá því út frá sjer og þekja rjóðrin með nýgræðing og skapa þar visi að nýrri bjarkarkynslóð, ef fengið hefðu að standa ó- hreyfð. Sá þótti ganga vel um skóg, sem rjóð- urfelldi og skildi engan ánga eftir á rótinni. Eldri trjákynslóðin var þannig smámsaman upprætt. Henni blæddi til ólífis undan axar- egginni, ef svo mælti að orði komast. Æfi Þingvallaskógar er að mörgu Jeyti hlið- stæð sögu og æfikjörum Islendinga, fyr og síð- ar. Mestu atgervis- og afreksmenn fjellu oft fyrir sverðseggjum, jafnvel heilar ættir voru nálega upprættar eins og úrvalstrjen í skóginum. Gang- ur sögunnar er í stuttu máli þessi: Alþingi er valið heimili i frjósamasta skóglendi íslands, og við fiskisælt stöðuvatn. Bæir rísa upp kringum þingstaðinn, og þjettbýlið eykst innan um skóg- arauðinn, utan við þinghelgina. Fyrsta tímabil í sögu Alþingis og bygðarinnar á þessu svæði er glæsilegt. Skógurinn var mikill og fagur eins og hann gat best orðið á þessu landi. En langvar- andi fjárbeit, skógarhögg og eldsvoðar, flettu gróðrinum af stórum spildum á hrauninu. Lítil- fjörlegt kjarr verður að lokum eftir, þar sem á annað borð sjást leifar eftir af gróðri. Bæir veslast upp og bygðin færist saman, og að því rak, að Alþingi neyddist til að flýja sitt eigið heimili. En þegar niðurlægingartímabil staðar- ins nær hámarki sínu, stendur viðreisn hann fyrir dyrum. Þegar ábúendaskifti verða á leigujörðum er venja að taka út, sem kallað er, bæjarhús og önnur mannvirki, sem jörðinni eiga að fylgja. Fráfarandi ábúandi á að svara ofanálagi, ef það reynist svo, frá fyrri úttekt, að hús jarðar- innar hafi hrörnað og gengið úr sjer, vegna vanrækslu hans að halda þeim við. Hinsvegar 1) Hún er þriðja minsta sveitin á landi hjer.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.