Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 25

Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 25
Ó Ð I N N 73 Halldóra Jakobsdóttir í Ögri. Hinn 20. janúar 1933 andaðist á Landsspit- alanum í Reykjavík, eftir uppskurð en stutta legu, Halldóra Þuríður Jakobsdóttir, búandi í Ögri í ísafjarðarsýslu. Halldóra var fædd 28. des. 1877 í Ögri, og dvaldi þar síðan alla æfi, að einu ári undanteknu, er hún var við nám í Kaupmannahöfn. Foreldrar hennar, þau Jakob Rósinkarsson og Þuríður Ólafsdóttir, voru meðal allra fremslu bændahjóna vestanlands. Jakob dó aðeins fertugur árið 1894, en Þuríður ljest háöldruð sumarið 1921. Hún var tvígift, en átti eigi börn á lífi frá fyrra hjónabandi. En frá seinna hjónabandi voru tvö börn auk Halldóru: Ragnhildur, sem heldur nú áfram búi í Ögri, og Árna, er Ijest í Danmörku 1906. — Æfiágrip þeirra Ögurhjóna er í óðni 1921. Ekki er það ofmælt, þótt Halldóra sje talin meðal fremstu kvenna í sínu bygðarlagi, og þólt víðar væri leitað. Hún var greind í besta lagi og mentuð vel. Las hún að jafnaði mikið og um fjarskyld efni og ræddi um alt af óvenju- mikilli dómgreind. Var því bæði skemtun og uppbygging að eiga við hana viðræður, og mátti einu gilda hvað á góma bar. Hún var og hög á hendur, og alt, sem hún fjekst við, bar vott um mikla smekkvísi. Þuríður móðir þeirra systra var, eftir lát seinni manns síns, bæði bóndinn og húsfreyjan, alt fram á áttræðisaldur. Stjórnsemi hennar og dugnaði var lengi við brugðið. Minti hún í skap- gerð og framkomu mjög á þær konur í söguín vorum, sem fremstar eru taldar. Nokkur sið- ustu ár hennar höfðu þær systur þó bústjórn- ina á hendi, og tóku við búinu að fullu við lát hennar. Ýmsir hugðu Halldóru á yngri árum hennar eigi búkonu, því henni var að jafnaði hliðrað hjá heimilisstörfum. En það fór á annan veg, er hún sjálf skyldi standa fyrir búi. Reyndist hún jafn gjörhugul um utanhúss-störf sem inn- an. Hin síðari árin rjeðust þær systur í um- fangsmiklar umbætur, bygðu mjög myndarleg peningshús, og reistu stóra rafstöð til hitunar, suðu og ljósa. Öllum byggingum og mannvirkj- um var haldið vel við og innan húss var alt í röð og reglu. Getur mjög óvíða jafn myndar- legt sveitaheimili og í Ögri. Þar fellur fornt og nýtt einkennilega vel saman, öllu haldið í föst- um skorðum frá eldri tímum, en jafnframt fylgst með nýrri háttum í framkvæmdum innan húss og utan. Rausn við gesti var viðkunn, og jafnan hefur verið í Ögri, einkum síðari árin, aðalsamkomustaður Mið-Djúpsins. Þar er því umferð mikil og mörgum erindum að sinna fyrir sveitamenn og aðra. Reyndist Halldóra jafnan ráðholl um margt, er sveitungar hennar báru undir hana. Rörn og unglingar voru jafn- an á vegum þeirra systra, og nokkur þeirra ólu þær upp, að meira eða minna leyti. Halldóra var jarðselt að Ögri 2. febrúar að fjölmenni viðstöddu úr nærsveitunum og af ísafirði. Ræður fluttu þeir sjera óli Ketilsson sóknarprestur og sjera Jón Auðuns fríkirkju- prestur í Hafnarfirði. Minning Halldóru í Ögri mun lengi lifa meðal djúpmanna og annara, er kyntust henni. Á myndinni eru, talið frá vinstri hendi: frú Margrjet Jónsdóltir, kona Jóns Auðuns alþingís- manns, Ágústa systir hennar, í Ameríku, Ragn- hildur Jakobsdóttir í Ögri og Halldóra, sem greinin hjer á undan segir frá. Kr. J. & Leiðrjetting. í síðasta hefti Óðins stendur á bls. 16, línu 16 að ofan: 882 fyrir 982. 0

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.