Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 23

Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 23
ÓÐI N N 71 Kveðja. Flutt við jarðarför Jóns Sigurðssonar á Lundar, Manitoba, 4. mars 1933. Kveðju mína, kæri Jón minn, klökkur les jeg yfir þjer. Pað jeg harma’, að þjóðai blómin þjett og stöðugt hverfa mjer; látbragð þitt og líf i flestu líktist fegurð geislastafs, þú varst einn með allra bestu íslendingum vestanhafs. Pú varst stólpi þinnar bygðar, þjer var kærast íslenskt mál. Merkisberi dáða’ og dygðar, djörf og frjáls þín glaða sál. Pað mun ávalt sagt með sanni — samleið þó að endi hjer — sannri konu’ og sönnum manni sómi væri’ að líkjast þjer. Púsundfaldar þakkir streyma þöglum vinahjörtum frá, þina minning margir geyma, má það glögt á öllum sjá. Fagnandi þinn frjálsi andi finnur bústað Guði nær, yfir þjer á lífsins landi Ijómar sólin dýrðarskær. Vigfús J. Guttormsson. En orðstírr deyr aldregi hveim er sjer góðan getr«. Jón yngri Jónsson er nú algerlega setstur í sæti föður síns, en það var eins og hann sæti í skugganum meðan gamli maðurinn lifði. Jón er nú vel miðaldra maður. Hann er bráðskarpur gáfumaður, en dulur i skapi og lætur lítið á sjer bera. Likist hann að því leyti meira móður- frændum sínum en föður sínum. Þá er hann þjettur í lund sem gamli maðurinn. Ekki hefur Jón notið skólamentunar, en fáa hygg jeg þó fjölfróðari en hann, sem á alþýðuksóla hafa gengið. Hann hefur aldrei að heiman farið til dvalar, en einlægt unnið að búinu með föður sínum. Samdi þeim jafnan vel, þótt ólíkir væru. Jón er vinsæll maður og vel metinn, og liklegur til að halda mannvirðingum föður síns. Kona hans er Ingibjörg Eiríksdóttir, Jónssonar, Halls- sonar, er um mörg ár hefur verið nágranni þeirra feðga. Þau eiga 6 börn, sem nú eru flest fullþroskuð. ÖIl hafa þau verið heima til þessa, og unnið að búinu með föður sinum. Slíkt er fátítt mjög hjer á landi. Jón Sigurðsson var meðalmaður á vöxl, þrek- vaxinn og vel bygður. Hann var fríður sýnum, svipurinn hreinn og djaiflegur. Augun snör og gáfuleg. Hann hafði stóra lund, en viðkvæma. Vel var hann vili borinn; dómgreindin og skiln- ingurinn var frábær, og minnið var traust. Ekki naut hann mentunar í æsku, sem teljandi var; það var meira hugsað um vinnubrögð en bók- nám á þeim árum, og engin tækifæri fyrir eigna- lausa unglinga að ganga mentaveginn. Hann mun lika hafa ásett sjer að brjóta sjer braut í heim- inum með starfsemi og framkvæmdum þegar á unglingsárunum, þvi sú hugsun fylgdi honum til æfiloka. Þó var hann mentavinur og las mikið, og fylgdist vel með bókmentum yngri og eldri. — Jón var gleðimaður og hafði manna best lag á að skemta gestum sínum. Hann var orð- heppinn og vel máli farinn, málrómurinn var skýr og sterkur, og mátti ætíð heyra að hugur fylgdi máli. Mótmæli þoldi hann illa, enda var ekki heiglum hent að fara í orðakast við hann. Hreinlyndi og drenglyndi var honum meðfætt; liktist hann í því, sem öðru, fremur fornmönn- um en nútíðarmönnnm. Frjálslyndur var hann í öllum mannfjelagsmálum, og var þar jafnan heill og ákveðinn. Átti hann því marga and- stæðinga og voru sumir þeirra bestu vinir hans. Þó varð jeg þess aldrei var, að slíkt hefði áhrif á vináttu þeirra. Drengskapurinn mátti þar meira en kappgirnin. Um hjálpsemi Jóns Sigurðssonar mætti margt segja, og vissi þó enginn um hana til hlítar, því svo mátti kalla að vinstri hönd hans vissi ekki hvað sú hægri ljet úti. Best kom það í ljós, þegar ástvinamissir eða snögg vandræði bar að höndum. Hann var jafnan þar kominn áður en nokkurn varði, og sparaði þá hvorki fje nje fyrirhöfn til bjargráða. Margir eignalitlir bændur fluttu í nýlenduna á fyrri árum hans. Allir áttu þeir athvarf hjá Jóni og alla þá hjálp vísa, sem hann gat úti látið. Var þá oft þröngt í híbýlum hans, þegar hann tók fjölskyldur lil vetrarvistar. Fáir munu hafa borgað þá hjálp að fullu, enda var ekki eftir því leitað. Tvö dæmi vissi jeg stærst um hjálpsemi Jóns, og munu fátíð önnur slik. Annað var harðindavorið 1982, þegar hann bjó á Ketilsstöðum. Þá bjargaðt hann tveim heimil- um frá algerðum gripafelli, og að líkindum L

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.