Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 29

Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 29
ÓÐINN 77 var líka aleinn í klefa allan daginn; lestin fór hægt og kom við á hverri smá-stöð og var ekki komið til Kaupmannahafnar fyr en kl. 9 um kvöldið. Jeg var orðinn dálítið þreyttur, en það borgaði sig samt, því að starfsnæðið var svo gott. Jeg var jólanóttina hjá mínum ágæta vini Edv. Sörensen, sem talað er um í sambandi við Leckey. Faðir hans, prófessor Sör- ensen, var þá dáinn og Edvard orðinn verkfræðingur og vann aðallega fyrir heimilinu og sínum yngri systkinum. Ríkti hið innilegasta trúarsamfjelag á heimilinu. Synirnir og dæturnar voru vel mentuð og varð þessi jólanótt mjer hin unaðslegasta. Annars man jeg ekki mjög vel eftir hinum einstöku dögum jólanna, nema gamlársdeginum. Jeg var allan síðari hluta dagsins heima hjá Ricard og þar voru ýmsir ungir latínuskólapiltar. Jeg kyntist þar sjerstaklega einum pilti, sem hjet Börge Helweg-Larsen, bráð- gáfaður piltur og skemtilegur. Við urðum miklir mát- ar, og seinna fóru fram talsverðar brjefaskriftir milli okkar. Hann varð mjer sjerlega kær og helst sú vinátta enn þann dag í dag. Hann er nú fulltrúi stiftamtmannsins í Viborg og er hans hús mjer opið eins og væri það mitt eigið. — Upp úr nýárinu hugsaði jeg mjer að fara í ferðalag út um Jótland, og hafa enga ferðaáætlun, heldur fara eftir því sem verkast vildi og beðið kynni að verða um mig á leiðinni. Jeg hafði aðeins einn stað vísan, það var Skaginn, þangað hafði jeg verið beðinn að koma. Rjett áður en jeg ætlaði af stað frá Kaupmannahöfn, fjekk jeg brjef frá manni nokkrum, sem nefndi sig Láritz Jensen, kvaðst vera húsgagnasmiður og eiga heima í Lögstör; hann kvaðst hafa verið á fundi í Álaborg 1901, og gæti aldrei gleymt ræðu minni um »yrðlingana, sem skemdu víngarðana*. Nú væri hann formaður fyrir V. D. (Vngstu deildinni) í K. F. U. M. í Lögstör og langaði sig til að jeg kæmi þangað. Jeg lagði svo af stað þann 4. jan. 1908 og hjelt til Skaga í einum áfanga. Jeg hitti á leiðinni framkvæmdar- stjórann í Randers, Anders Kristensen (nú sóknar- prestur við Trínitatiskirkjuna í Kaupmannahöfn). Hann bað mig um að koma til Randers og halda tvo fundi þar, er jeg kæmi frá Skaga. Svo settum við dagana þannig, að jeg skyldi koma næstkomandi miðvikudag þ. 8. og vera þar á fimtudag, og svo gæti jeg farið til Lögstör þaðan á föstudag. Jeg hjelt svo til Skagans og var jeg í miklu yfirlæti hjá Dr. Damgaard, og fanst mjer tíminn líða alt of fljótt. Jeg skrifaði það- an til Láritz Jensen og sagði að jeg gæti komið föstudaginn þann 10. ef hann gæti notað mig það kvöld, því næsta dag færi jeg til Álaborgar, þar sem Ingólfur Gíslason Iæknir. Hann átti sextugsafmæli 17. júlí síðastl., fæddur á Pverá í Dalsmynni 17. júlí 1874. Er sagt frá foreldrum hans i fyrra hefti Óð- ins 1913. Ingólfur varð stúdent 1896, gekk svo á Læknaskóiann hjer og útskrifaðist 1901. Dvaldi svo um tíma á sjúkrahúsum erlendis, en var skipaður lækn- ir í Reykdælahjeraði 1901, en fjekk Vopna- fjörð 1906 og var par til 1923, er hann fjekk Borgarnesshjerað, og hefur hann þjónað því siðan. Hann er vin- sæll læknir og vask- leikamaður, hefur þjónað erfiðum hjer- uðum, en þó lítt látið á sjá, er enn hraustur, fríður sýnum, fjörugur, glað- vær og góður heim að sækja. Hann er skáldmæltur vel og yrkir snjöll og skemtileg kvæði við ýms tækifæri. Kona hans er Oddný Vigfúsdóttir, áður borgara á Vopnaíirði og síðar gestgjafa á Akureyri (sjá Óðinn 1916). jeg ætlaðl mjer að vera heila viku. Á leiðinni frá Skaga fjekk jeg mikla snjóhríð, og tafðist lestin við það, svo jeg náði rjett aðeins á fundinn, sem jeg átti að halda. Jeg átti að gista hjá vefnaðarvöru- kaupmanni einum, ágætum mar.ni, að nafni Zacho. Hann átti son 3 — 4 ára, sem varð afarhændur að mjer; drengurinn hjet Alfred og er nú læknir í Kaupmannahöfn og er enn einn af bestu vinum mín- um. Fimtudaginn, sem jeg var í Randers, snjóaði mikið og ýmsar járnbrautir voru ófærar, þar á meðal lestin til Lögstör. Mig langaði alls ekki þangað, því að jeg hafði heyrt að þetta væri mikill úfkjálkabær og leið- inlegur, og hægfara lestir þangað. Var jeg nú farinn að hlakka til að losna við ferðina þangað, ef snjórinn yrði nógu mikill. Til þess að geta náð fundi þeim, sem jeg var búinn að vita að jeg átti að halda, þurfti jeg að fara af stað frá Randers kl. 1 síðd. Rjett fyrir kl. 1 þann dag, fjekk jeg að vita að búið væri að moka brautina, og svo varð jeg að fara af stað. Leiðin var leiðinleg og kalt í lestinni og jeg var í hálfömurlegu skapi, er jeg kom á járnbrautar- stöðina í Lögstör. Ekki batnaði heldur er jeg kom út, og sá engan mann kominn til að taka á móti mjer. Jeg ranglaði þar um í svo sem tvær mínútur

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.