Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 39

Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 39
ÓÐINN 87 F. U. M. hafði fengið leyfi lil að nofa hermanna- skála rjett hjá Jægersprís á Sjálandi. Það voru her- búðir, þar sem fóru fram heræfingar á vissum fím- um fyrir herinn. í júlí stóðu þær auðar og þar hafði K. F. U. M. vikuflokka af drengjum á ýmsum aldri. Jeg átti að vera með flokki úr yngstu deildinni. Það voru um 40 drengir og nokkrir foringjar. Það var undursamleg vika; við sváfum í hermannaskálunum og bjuggum um okkur í hálmi sem breiddur var á gólfið og var ekki margt til þæginda, en hvað gerði það, því að dagarnir voru hver öðrum skemtilegri. Það var regluleg útilega og skiftust á íþróttir, leikir, gönguferðir til fallegra staða og svo andlegar upp- byggingarstundir. Einn dag gengum vjer til að heim- sækja F. D. F. (Frivillig Drengeforbund). en svo nefndist stór drengjastarfsemi með sjerstöku sniði, nokkuð sniðið eftir hermannaháttum. Þeir höfðu ein- kennisbúning. Það fjelag átti sjer sumarbústað á fögr- um stað og hafði nefnt hann Jómsborg. Þar lágu í útilegu á annað hundrað drengir. Bústaður þeirra var mjög fagur; þar var hringsalur með föstum sæt- um í kring og sátu menn þar í hvirfingu og aðal- foringi í öndvegi. Var salurinn allur í fornum stíl. Sett voru fram borð og veittur drykkur, það var kakao með nokkurskonar flatbrauði, sem var svo ól- seigt að það var aðeins fyrir vel tenta menn að vinna bug á því, en skemtun var þar nóg með söng og ræðuhöldum. Meðan verið var að drekka, orti jeg tvítuga drápu í Ijóðahætti, og stóð svo upp og flutti hana að fornum sið. Það var drápa um þessa nýju Jómsvíkinga. Var henni tekið með miklum fögnuði. Jómsvíkingar fylgdu oss á leið með fylktu liði og voru sungnir fjörugir söngvar undir hergöngulögum, en vjer foringjarnir urðum að þagga niður í vorum drengjum, því þeir byrjuðu hvað eftir annað á ein- hverri gamanvísu, og var í viðlaginu talað mikið um »sólaleðurc. Vjer vildum ekki að hún væri sungin þá, þótt saklaus væri, því gestgjafar vorir gætu haldið að strákarnir væru að skopast að seigu kökunum þeirra. Jómsvíkingar komu svo annan dag í heimsókn, og gerðum vjer veislu á móti þeim. Á þeirri viku orti jeg »Fánasöngc fyrir Vngstu deildina, sem kendur var og sunginn, er fáninn var dreginn að hún á morgnana. Sá söngur komst seinna inn í söngbækur fjelagsins. Eftir þessa viku dvaldi jeg annan vikutíma í litl- um bæ á Fjóni, sem Aarup heitir. Þar var lýðhá- skóli; hafði hið kristilega latínupiltasamband fengið húsakynni skólans til viku dvalar fyrir latínuskóla- pilta víðsvegar frá Danmörk. Voru þar saman komnir eitthvað á annað hundrað piltar og svo leiðtogar starfsins. Þetta starf stóð í nánu sambandi við nor- rænu stúdentahreyfinguna kristilegu, og við K. F. U. M Jeg var þar sem gestur fundarins. Þar voru þeir greifi J. Moltke og kammerherra Oxholm og ýmsir fulltrúar frá K. F. U. M. Fundirnir voru haldnir í líkingu við stúdentamótin, og var vandað mjög til ræðumanna. Gengu morgnarnir til hádegis til biblíu- lestra í flokkum og kristilegra fyrirlestra. Síðdeginu varið til viðkynninga og skemtilerða. Einn dag vor- um vjer í boði á herragarði einum. Þar var mjög stór og skrautlegur lystigarður. Bogabrú var þar yfir sýki eitt. Vfir brú þá lá leiðin. Jeg var nýkominn yfir brúna, er hún fjell niður undir mannfjöldanum, sem kominn var út á hana. Fjell margt fólk f sýkið og var ekki langt frá að slys yrði af. Var mesta skelf- ing á ferðum, meðan á þessu stóð, en brátt komst skap manna í samt lag, er öllum hafði verið bjargað og enginn slasast. Vakti samtýningsbúningur, þeirra er í sýkið fóru og þur föt höfðu fengið, drjúgt gam- an hjá ungu piltunum. Greifi Moltke kom fram í geisivíðum fötum, sem ekki voru á hann sniðin, og fleiri af tignarmönnum mótsins höfðu fengið sömu útreið. Varð þetta að gamni og fyndni, eins og Dön- um er títt, og voru þeir, sem fyrir urðu, ánægðir hver með sinn hlut. Mínir bestu vinir á mótinu af skólapiltum voru auð- vitað Álaborgarvinirnir mínir, og þar fyrir utan er heill hópur af piltum frá Kbh. mjer minnisstæðastur. Börge Helwey Larsen, sem áður er um getið, og greifi Ernst Moltke, hafa báðir verið mjer alúðarvinir síðan. Eftir mótið dvaldi jeg í Kaupmannahöfn það sem eftir var tímans þar til jeg tók mjer far með »Láru« heim. Bar ekkert markvert við á leiðinni heim. Þann 14. ágúst komum við til Vestmanneyja, og kvöldið 15. ágúst til Reykjavíkur. Þetta kvöld hafði jeg enga drengi eða pilta til þess að minnast með mjer þess sama dags fyrir 11 árum, er jeg kvaddi Unglinga- deildina í Kaupmannahöfn. En það hefur altaf verið vandi minn að halda upp á þann dag. Klukkan var um 11, er jeg kom í land; allar götur voru mann- lausar. Jeg rakst þó á tvo unga vini mína; var ann- ar þeirra Jón Hermannsson, einn af stofnendum fje- lagsins. Hann var mjer einkar kær og varð jeg feg- inn að sjá hann. Þeir fylgdu mjer svo heim til mín á Lindargötu 14 og varð mamma næsta glöð að fá mig heimtan heim. Gestur var fyrir, það var Jóhannes föðurbróðir minn, nýkominn úr Norðurlandi á leið til Ameríku, heim til sín. — Þannig lyktaði ferð þessari, og hafði jeg verið í þeirri ferð 1U/2 mánuð. o°®o

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.