Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 22

Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 22
70 Ó Ð I N N lögðu þeir á stað, en erfið var sú ferð, Flutn- ingsfærin voru tveir uxar og vagnræfill, sem þeir nafnar höfðu keypt í fjelagi; á honum voru fluttar fjölskyldur þeirra, og það sem til var af farangri, sem ekki var fjölbreytt. Hitar voru miklir og flugur óþolandi, vegleysur og óbygðir á löngum svæðum, svo ilt var að rata rjetta leið. Enginn i förinni kunni ensku, svo illa gekk að spyrja til vegar, þótt menn hittust á einstöku stað. Börnin öll voru meira og minna veik, og eilt þeirra dó á ferðinni. Viku voru þeir á leið- inni þessar 65 mílur. Höfðu hinir þá lokið bygg- ingunni og var það bjálkahús með torfþaki, 12 X 10 fet á stærð. Varð það að duga handa hjónunum og börnum þeirra yfir sumarið, en karlmenn bjuggu í tjaldi. En um haustið bygðu þeir stærra hús, 14 x 16 fet, og bjuggu þeir nafnar þar, og þau öl), um veturinn. Ekki var gripaeignin önnur en uxarnir, og ein kýr, sem Eyjólfur Eyjólfsson hafði gefið Jóni fiænda sínum. Heyja handa þeim var aflað með orfi og hrífu á islenskan hátt. Um haustið kom upp sljettueldur, sem nær hafði eyðilagt allar eignir þessara fáu bygðar- manna, en þó tókst með harðfylgi að slökkva hann, áður en mikið tjón varð af. Vorið eftir nam Jón Sigurðsson land og bygði sjer lítið bjálkahús. Heimili sitt nefndi hann á Lundi. Hjeltst það nafn síðan á pósthúsi, er sett var þar skamt frá, og síðar á bænum Lundar (með vanalegri enskri afbökun). Ekki voru enn allar þrautir úti fyrir Jóni Sig- urðssyni, því fyrsta veturinn, sem hann bjó á Lundi, brann hús hans með öllu, sem í þvi var. Par fórst bókasafn Jóns og taldi hann það mestan skaðann, þvi fátt var þar fjemætt annað. Gott varð Jóni til að koma upp húsi aftur og nauðsynlegustu áhöldum, því hjálpsemi var þá almenn meðal þessara fátæku frumbyggenda. Efnahagur Jóns lagaðist ótrúlega fljótt, enda lágu þeir bræður ekki á liði sínu með að bjarga sjer. Fiskiveiðí mátti hagnýta til búbóta í Mani- tobavatni, þótt langsókt væri, en slíkt var ekki sett fyrir sig á þeim árum. Landnemar bættust nú við árlega, þar á meðal allmargir sveitungar Jóns að heiman, og áttu þeir allir athvarf hjá Jóni, og alla þá hjálp, sem hann gat veitt þeim. Eftir nokkur ár var orðið svo þjettbýlt kring um Jón, að hann skorti landrými fyrir gripi sína. Seldi hann því landeign sína, en keypti aftur tvö lönd af kynblendingi nokkru vestar í bygðinni. Síðar keypti hann fleiri lönd við lágu verði af útlendingum, er burtu fluttu, og jók þannig Iandeign sína, því þá hafði hann komið upp allstóru gripabúi. Betta nýja heimili nefndi hann Geysir. Dró hann það nafn af brunni, er hann gróf, sem gaus vatni í loft upp. Þar hafa þeir feðgar nú búið nær 40 ár. Á þessu nýja heimili bygði Jón Sigurðsson fyrst stórt og vandað bjálkahús, því ekki var annað efni fáanlegt á þeim árum, nema með ókleífum kostnaði. En þegar hann var 70 ára bygði hann mjög vandað timburhús, með 10 herbergjum. í því er miðstöðvarhitun, raflýsing og flest þægindi, sem hægt er að veita sjer í sveitum. Einnig eru öll úthýsi raflýst. Mun húsið hafa kostað full 6000 dollara. Komst hann þá í skuldir nokkrar, en að 5 árum liðnum voru þær að fullu goldnar. Þá afhenti hann Jóni syni sín- um alla eignina, með 6 löndum og allstóru gripa- búi, skuldlausa. Eftir það hafði hann lítil afskifti af búinu, enda var heilsa hans þá farin að bila; en fram að sjötugu var hann hraustur og vann sem ungur væri. Síðasta áratug æfi sinnar kendi Jón innvortis meinsemdar, sem læknar gátu ekki ráðið bót á. Þó var hann oftast á fótum, og glaður og skemt- inn er gest bar að garði, ef hann hafði viðþol. Hann fylgdi trúlega hinni hrausllegu kenningu Hávamála: »Glaör ok reifr skyli gumna hver uns sinn biðr bana«. Hann þjáðist mikið síðastl. vetur, en naut nákvæmrar umhyggju sonar síns, konu hans og dætra. Jón Sigurðsson ljetst 4. mars 1933, og skorti þá rúman mánuð i áttrætt. Hann var jarðaður 12. s. m., að viðstöddu meira fjölmenni en sjest hafði við jarðarför hjer í sveit. Var þó kalt veður og færð hin versta. Margir hjerlendir menn voru þar viðstaddir og nokkrir Indíánar, því allir virtu hann, sem kynni höfðu haft af honum. Dr. Rögnvaldur Pjetursson og Guðmundur prestur Árnason hjeldu ágætar ræður. Litið var þar um Biblíulestur, en hinum látna var vel lýst og drengilega. Þar var ekkert oflof. Dr. Rögnvaldur lagði út af þessu erindi í Hávamálum: »Deyr fje, deyja frændr, deyr sjalfr et sama.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.