Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 20

Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 20
68 ÓÐINN Jón Sigurösson frá Geysi. »Pá kemur mjer hann jafnan í hug, er jeg heyri góðs manns getið«. Svo sagði Jón biskup Ögmundsson um ísleif fóstra sinn. Betur verður látins manns trauðlega minst í fám orðum. Engan hef jeg þekt þann, er slík ummæli ættu eins vel við eins og Jón Sigurðsson frá Geysi. Hann var fæddur á Torfastöðum í Jökulsárhlíð 20. apríl 1853. Faðir hans var Sigurður bóndi Jónsson á Torfastöðum, Jónssonar bónda á Hrolllaugsstöðum, Jónssonur bónda í Klúku Egilssonar. Er sú ælt komin af góðu bændafólki á Fljótsdalsbjeraði, en verður ekki langt rakin í beinan karllegg. En móðir Jóns, afa Jóns Sig- urðssonar, var Ingibjörg Árnadóttir, bónda í Syðrivík í Vopnafirði, Brynjólfssonar prófasts á Kirkjubæ, Einarssonar prófasts og skálds í Hey- dölum. — Móðir Jóns Sigurðssonar var Þorbjörg Jónsdóttir, bónda í Hlíðarhúsum, Bjarnasonar bónda á Ekru, Eiríkssonar bónda í Fjallsseli, Bjarnasonar bónda á Fossvelli. Er sú ætt fjöl- menn á Austurlandi. Hefur Einar prófastur Jónsson rakið hana til Lofts ríka á Möðruvöll- um og þaðan til landnámsmanna. Sigurður, faðir Jóns, drukknaði ofan um ís á Jökulsá, þegar Jón var tveggja ára. Móðir hans brá þá búi, og fluttist með drenginn að Húsey í Tunguhreppi, til Halldórs bónda Magnússonar, er síðar bjó á Sandbrekku. — En kona Halldórs var Guðrún, föðursystir Jóns Sigurðssonar. — Þar fæddi Þorbjörg annan son, er Sigurður var heitinn, eftir föður sínum. ólst hann upp hjá Halldóri bónda til fullorðinsára. Eftir tveggja ára dvöl í Húsey flutti Þorbjörg að Hlíðarhúsum til föður síns, og var þar nokkur ár, og síðar hjá Jóni bróður sinum, föður Jóns alþingismanns frá Sleðbrjót. Voru þeir jafnaldrar Jón Sigurðsson og hann, og hjelst með þeim trygg vínátta til æfiloka. Þegar Jón Sigurðsson var 10 ára, giftist Þor- björg öðru sinni, Jóni Sigurðssyni, fóstursyni Þorsteins bónda Jónssonar í Fögruhlíð. Vóru þau hjá Þorsteini nokkur ár, þar til vorið 1867 að þau fluttu að Hrafnabjörgum í Jökulsárhlíð. Þar fórst Jón, maður Þorbjargar, vofeiflega í Jökulsá sama vorið. — Fengu því báðir menn Þorbjargar sorgleg æfilok, en hún bar þær raunir með þreki og stillingu. Þau Jón og Þorbjörg áttu tvö börn, Guðrúnu, sem síðar varð kona Jóhannesar Jóhannessonar, bónda í Syðrivík, og Þorstein, er dó ógiftur heima á íslandi. Þau voru þá bæði ung, svo hún treystist ekki til að halda áfram búskap. Fiuttist hún því að Surtsstöðum í sömu sveit, til Jóns bónda Þorsteinssonar. Hann var fóst- bróðir og náfrændi síðari manns hennar, mikil- hæfur maður og valmenni. Þá var Jón Sigurðs- son 14 ára. Mun Jón Þorsteinsson hafa sjeð, að mikið mannsefni var í drengnum, því hann tók þegar ástfóstri við hann, og mat hann mest hjúa sinna. Þar dvöldu þau öll þar til Jón Þor- steinsson dó 1873, og eftir það hjá ekkju hans. Var Jón Sigurðsson ráðsmaður hjá henni í 3 ár, og fórst það vel úr hendi, þótt ungur væri. Vorið 1876 kvæntist Jón Sigurðsson húsmóður hvaða þýðingu sönn kona hefur, bæði fyrir heimilið og þjóðarheildina. Þessi næmi skiln- ingur hennar kom skýrt í ljós í heimilisstarfi hennar, en hann lýsti sjer líka einkar skýrt í þeim áhuga, sem hún sýndi í öllu þvi, sem lýt- ur að mentun og auknum rjettindum kven- þjóðarinnar, og eins í öllu því, er lýtur að aukn- um heimilisiðnaði, og skildi vel hvaða þýðingu það hefur, að heimilið sje sjálfu sjer nógt í sem flestu tilliti. Hún starfaði með lífi og sál í kven- fjelagi sveitarinnar, og með fráfalli hennar misti það eina hina áhugamestu og starfsöm- ustu konu sína. Þau Síðuhjón, Einar og Sigurlaug, hafa ver- ið, og munu af öllum þeim, sem þektu þau, æ og ávalt verða talin sönn sæmdarhjón, og hafa unnið dagsverk sitt með heiðri og sóma, verið til fyrirmyndar og eftirdæmis í öllum mynd- arskap og hverskonar gagnsemdarstarfi, bæði fyrir heimili sitt og fjelag, og allir, sem kynni hafa haft af þeim, minnast þeirra með velvild og virðingu og þakklæti fyrir gott og vel unnið starf. óskandi, að sem flest fjelög lands vors eigi og mættu eignast sem flest hjón, er líktust þeim Síðuhjónum, Einari og Sigurlaugu. Sv. G.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.