Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 15

Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 15
ÓÐINN 63 slíka sumarkveðju byraðjaði hann með þess- ari ágætu visu: Aldrei brestur umbreyting, inna flestir gumar: Er nú sest í aldahring eitt hið besta sumar. Hina hreinu og djúpu guðs trú sina geymdi hann óbrotna til hinstu stundar, og þakkaði gjafaranum allra góðra hluta öll gæði sjer veitt. Eins fanst honum skylt að þjóðin öll lofaði og þakkaði góðar og hagstæðar tíðir, eins og lýsir sjer í einni vetrarkveðju, er hann sendi einum vina sinna og byrjaði þannig: Einn par tróð i tímans haf, tal svo hljóðað getur: Lofi pjóðin pann, er gaf pennan góða vetur. A.ð afloknu dagsins erviði, eða þá áhyggjur lífsins voru honum ekki þungar, var hans mesta yndi að tefla tafl við vini sína, enda var hann ágætur taflmaður. Ekki get jeg hugsað mjer skemtilegri taflfjelaga; hvað hann var lifandi glaður yfir hverjum vel leiknum leik, jafnt af andstæðing sfnum sem honum sjálfum. Komu þá oft laglega gerðir vísuhelmingar fram á varir hans meðan hann var að hugsa um leikinn sinn, ef honum þótti þungt fyrir á taflborðinu. Eins og fyr er sagt, fluttist hann til Reykja- víkur árið 1911, þvf hann hugði með því móti Ijeltara að koma sonum sínum til manns sem kallað er. Eftir það dvaldi hann í Reykjavík i 14 ár og leysti uppeldisskyldu sína vel af hendi, sem öll börn hans bera ljósastan vott um. En þá Magn- ús sonur hans fjekk prestsembætti i Ólafsvík fluttist hann með honum þangað vestur og dvaldi hin siðustu ár æfi sinnar hjá honum. Þar naut hann ástar og umhyggju sonar sins og ágætrar tengdadóttur, svo æfikvöldið varð hon- um bjart og hlýtt. Hann var lagður til hinstu hvíldar við hlið móður sinnar að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Hvalfjörður og alt hans umhverfi var honum einkar kært, því uppvaxtarár sin átti hann að sunnan verðu við fjörðinn, en þroskaár sín að norðan verðu við hann. Hann var ástríkur eiginmaður og faðir, og vinsæll af öllum, er kyntust honum. Í*ví geym- ist fögur mynd af gáfuðum, góðum og prúðum manni í hugum eftirlifandi skyldmenna og vina hins gengna sæmdarmanns. ^ m Sigurður Þórðarson sýslumaður frá Arnarholti. Sungiö við minningarathöfn í dómkirkjunni í Reykjavík, er lík hans var flutt út til að brennast. Af söngva guða gáfu þú gladdist alla tíð. Nú sýngjum við og svifum um sólarlöndin víð. Og undir vængi andar vor ást til göfugs manns. Jeg þekti frækni og fimi, en fárra betri en hans. Því annað vildi hann aldrei, en alt, sem rjeltast var. Hann sótti’ ekki' eftir samfylgd þess, sem að ljettast bar. Nú bið jeg guð, að geyma þig, góði nafni minn. Einn sit jeg hjerna heima og hugsa’ um sönginn þinn. Hann var svo hrein og djúpur sem hvarmasteinninn blár. Viltu nú þiggja, vinur, mitt vinar trygðartár? Nú lyftist alt hið lá’a og loftið vilt og hátt, hið lá’a og himinháa og hafið frítt og blátt. Sig. Sigurðsson frá Avnarholti. SL

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.