Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 35

Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 35
ó Ð I N N 83 verunnar og starfsins í Álaborg, án þess að nokkuð skygði á. Skömmu fyrir páska fjekk jeg mjög rækilegt brjef frá pastor Hoffmayer um það, að taka að mjer það starf niður við höfnina og knæpurnar, sem hann hafði áður talað við mig um, og minst er á hjer á undan. Brjefinu fylgdi skjal frá nefndinni fyrir þessu fyrir- hugaða starfi, og var þar lagt að mjer að hugsa um fyrir Guði og samvisku minni, hvort jeg gæti ekki tekið þetta að mjer; launakjör og aðstaða í starfinu var mjög glæsileg. Undir skjalinu stóðu nöfn merkra manna. ]eg svaraði brjefinu strax á þá leið, að jeg vildi það gjarna, ef Guð vildi það, og kvaðst koma til Kaupmannahafnar á pálmasunnudag, því þá ætti jeg að tala þar á samkomu, sem halda átti til fjár- söfnunar til starfs K. F. U. M. á Islandi og öðrum útlöndum, sem voru í sambandi við Danmörk. — Vikuna fyrir pálmasunnudag hafði jeg mikið að gera og var orðinn þreyttur. Það var því hvíld í því, að bregða mjer burtu. ]eg fór á laugardagskvöldið af stað á leið til Hafnar. Það var þriðja farrými og tók jeg klefa næst eimvjelinni. ]eg var aleinn og lá endi- langur á trjebekknum með litla ferðatösku undir höfð- inu og sofnaði jeg svo vært, að jeg svaf alla leið til Fredericia og vaknaði ekki fyr en lestarstjórinn vakti mig og spurði, hvort jeg ætlaði til Suðurjótlands. — ]eg hafði rjett tíma til að hlaupa út úr lestinni með tösku mína í annari hendinni og skóna mína í hinni, og varð jeg að setja þá upp þar á stjettinni. — ]eg kom til Kaupmannahafnar um morguninn kl. 8. ]eg fór svo heim í K F. U. M. og fjekk að vita, að jeg átti að tala á fjórum stöðum þann dag. ]eg fjekk samt tíma til að tala við nefndina, og hafði pastor Hoffmayer skotið á skyndifundi. ]eg gaf þeim sömu svör og í brjefi mínu, að jeg skyldi gera þetta, ef Guð vildi það. Þeir spurðu, hvernig jeg ætlaði að komast að raun um það. ]eg sagði að það væri mjög auðvelt. ]eg vissi að Guð hefði sett mig til starfs heima á Islandi. Hann gæti breytt því, ef hann vildi. ]eg færi heim og hjeldi starfinu áfram þar, ef ekk- ert kæmi fyrir, sem sýndi mjer ótvírætt að jeg ætti að breyta um. Til þess að vera við starfið heima, þurfti jeg enga nýja bendingu, en ef hann vildi senda mig eitthvað annað, yrði hann með rás viðburðanna að grípa þannig inn í, að enginn vafi ljeki á um hans vilja, og gæti hann þannig knúð mig inn á þá nýju braut, með eða mót vilja mínum. Þeir urðu að láta sjer þetta lynda. Um kvöldið kl. 8 talaði jeg á stórri samkomu í K. F. U. M. og eftir samkomuna fór jeg heim til Pastor Hoffmyer og tók þátt í ferm- ingarveislu Páls sonar hans; var jeg þar í besta fagnaði framundir miðnætti og fór svo með miðnæt- urlestinni til baka til Álaborgar. Á annan í páskum átti jeg að prjedika við hámessu í Frelsaranskirkju fyrir sóknarprestinn, og var 2. prestur kirkjunnar fyrir altarinu, ]eg hafði búið mig undir að prjedika út af fyrsta guðspjalli dagsins: »Emasusgöngunni«, en hafði gleymt að prjedika átti út af 2. guðspjalli dagsins: ]óh. 20, 1 — . Presturinn tónaði fyrst guð- spjallið frá altarinu. í sálminum milli guðspjalls og stóls kom jeg inn í skrúðhúsið og spurði prestinn, hvort nokkuð gerði til þótt jeg talaði um «Emasus- gönguna*. Hann sagði, að það væri algerlega ólög- legt, og varð mjög órólegur af því að hann bæri á- byrgð á þessari messu, og þar að auki sæti sjálfur biskupinn niðri í kirkjunni. Prestinum leið svo illa út

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.