Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 42

Óðinn - 01.07.1934, Blaðsíða 42
90 ÓÐINN Mintist hann löngum móður sinnar með inni- legri elsku og virðingu. En nú kom þar, að högum föður hans hrakaði svo mjög að hann þóttist eigi mega án Sigurðar vera. Hjet hann og að kenna Sigurði smíðar. Fjórtán ára fer hann aftur til Flesjustaða. Duldist honum eigi að faðir hans vildi honum í alla staði vel. En þar um var hann ekki einráður, auk þess að fátæktin batt honum þá orðið fjötur um fót. Ekkert varð af smíðanáminu, því að alla vetur stóð Sigurður yfir fje og hirti úr húsi og í. Á þessum árum var fræðahneigð Sigurðar sem óðast að vakna. Las hann allar skruddur, er hann fjekk hönd á fest. Ennfremur lærði hann að skrifa. Hafði hann komist yfir skriftar- stafróf frá listaskrifaranum Fórði alþingismanni á Rauðkollsstöðum, og skrifar enn, á níræðis- aldri, ágæta rithönd. Snemma kendi þeirrar ástriðu hjá honum, að lesa alt það, er í varð náð, um grasafræði og lækningar. Fann hann hjá sjer knýjandi löngun til þess, að öðlast þekkingu á gerð og starfi mannlegs líkama. 1 því efni voru þó framan af flest sund lokuð. Annar sterkur þáttur í upplagi hans var smiðahneigðin. Sú var von hans og fyrirætlan, að læra handverk, með því að »vinna fyrir drenga sem kallað var. 1 þessu skyni rjeði hann sig loks, 19 ára gamall, til járns-og kopar- smiðs þar í sveitinni. Var það orðlagt svaka- heimili, svo að eigi toldu þar hjú, og var íllu spáð um fyrirtæki Sigurðar. Enda ærðist hús- móðirin á því ári út af skærum við grannkonu sína. Var þá lokið smiðanáminu í það sinn. Næstu tvö árin vann Sigurður fyrir sjer með vinnumensku og smíðum. Fá ber að druknun Sigurðar Jónssonar bónda á Fursstöðum í Borgarhreppi. Ljet hann eftir sig unga konu og eina dóttur. Ekkja hans var Ingiriður, dóttir Eiríks Bjarnasonar á Þursstöð- um, er ýmsar sögur fara af, sakir forneskjulegrar einþykni hans og kynlegra uppátækja, er jafnan báru þó vott um djúpa og sjálfstæða hugsun, er nánar var að gáð. Dóttir Sigurðar Jónssonar og Ingiriðar er Guðbjörg ekkja eflir Svein Oddsson kennara á Akranesi. Á útmánuðum 1873 kemur umboðsmaður ekkjunnar á fund Sigurðar og leggur að honum að ráðast til Ingiriðar sem ráðsmaður og fyrir- vinna. Tókust samningar og fór hann þangað um vorið. 2. nóvember sama ár gekk hann að eiga Ingiríði, og voru þá bæði á 23. aldursári. Hún var myndarkona, og ástrík manni sinum og börnum. Á Þursstöðum bjó Sigurður í 5 ár. Tók hann þar við litlum efnum. Bráðapest drap fje hans á hverju ári. Eigi að síður óx búið, og bygði hann þó upp öll hús jarðarinnar, bæjarhús, hlöðu, fjós og fjárhús, er alt var áður að hruni komið. Loks undi hann ekki landkreppu og litlum slægjum á Þursstöðum, og fluttist að Jörfa í Kolbeins- slaðahreppi. Einnig þar bygði hann bæjarhúsin frá grunni með ærnum tilkostnaði. En jörðin var stór og erfið. Og nú dynja á hörðu árin, hvert öðru verra. Ráku þau Islendinga i striðum straumi vestur um haf. Eigi feldi Sigurður fje sem flestir aðrir 1882. En árið áður hafði bráða- pestin drepið fullan helming fjár hans. Fram að þessum tíma hafði Sigurður fremur amast við Ameríkuferðum, og verið staðráðinn í því að lifa og deyja á íslandi. Veturinn 1882 skifti hann skoðun í því efni. Segir hann jörðinni lausri og ákveður að halda til Vesturheims á komandi sumri, með konu og 7 börn. Atti hann nóg í farareyri fyrir sig og sína, þótt alt væri i lágu verði sökum hællæris. En alt fór þetta á annan veg. Örlögin tóku allhastarlega af honum ráðin. Um sumarið tók mislingaplágan að geysa um hjeraðið. Sýktust bæði hjónin samdægurs. Dó hún eftir viku, og litlu síðar synir þeirra tveir, annar 6 ára, hinn 2. Lá Sigurður í 8 vikur, og var eigi hugað líf. Fyrir því ruku nokkrir sveit- ungar hans i það að selja eigur hans á uppboði, og varð litið sem ekkert úr. Komst hann loks á fætur, og var þá hvorttveggja, heilsubilaður og eignalaus. Höfðu reiðarslög síðustu mánaðanna svo lamað hann, að eigi hafði hann sinnu á neinu, og þá ekki heldur á þvi, að reka rjettar sins í sambandi við áðurtjeða meðferð eigna hans. Þá bjó að Staðarhrauni i Hraunhrepp sjera Jónas Guðmundsson og hans ágæta kona Elín- borg, dóttir Kristjáns kammeráðs. Frjetta þau af Iíðan Sigurðar, og bjóða honum til sin, til hvildar og heilsubótar. Þau voru bæði lækninga- fróð. Þar dvaldi Sigurður árlangt og hlaut dýr- mæta endurreisn sálar- og likamskrafta. Hafði hann þar úrval bóka, en las þó mest lækninga- bækur þeirra hjóna. Komst hann brátt vel niður í þeim, þótt flestar væru á danskri tungu. Jafn-

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.