Óðinn - 01.07.1934, Page 16

Óðinn - 01.07.1934, Page 16
64 ÓÐINN Kristján kennari Sigurösson fimtugur, Þann 27. ágúst í fyrra varð Kristján kennari Sigurðsson á Brúsastöðum í Húnavatnssýslu fimtugur. Hann er fæddur að Pálsgerði í Höfða- hverfi í Suður- Þingeyjars. 1883, og kominn af góðu bændafólki þar nyrðra. Föðurætt hans er úr Reykja- dal og Keldu- hverfi, en móður- ætt úr Bárðardal og Kinn. Faðir Kristjáns hjet Sigurður Páls- son, gáfaður mað- ur og víðlesinn. Voru þeir Kristján »Fjallaskáld« Jóns- son þrímenning- ar. Móðir hans var Hólmfríður Krislbjörg yfirsetukona Árna- dóttir Bjarnasonar frá Fellsseli. Voru foreldrar Kristjáns altaf mjög fátæk og bjuggu á ýmsum stöðum norður þar. Þegar Kristján var 12 ára gamall, fór hann frá foreldrum sínum að Stóruvöllum í Bárðar- dal, einhverju mesta myndarheimili þar í sýsl- unni og þó víðar væri leitað. Vóru það góð umskifti fyrir hann að fara úr fátækt og alls- leysi á slíkt myndarheimili. Var Kristján þar í nokkur ár, en síðar í vinnumensku hjer og þar nyrðra uns hann fór i Hólaskóla, en þar dvaldi hann veturinn 1905—1906. Á þeim árum voru engin próf í skólanum heldur veitt verðlaun. Hlaut Krislján, ásamt þremur öðrum, fyrstu verðlaun. Sumarið 1906 varð hann fyrir því sorglega óhappi að fá lömunarvetki, sem hann hefur aldrei fengið bót á. Samt sem áður lauk hann námi í Hólaskóla veturinn eftir. Eftir að Kristján fjekk lömunarveikina, var honum mjög erfitt um alla erfiðisvinnu. Fór hann þvi að læra skósmiði, var hann við það í tvö ár, en það átti illa við hann og auk þess þoldí hann ekki kyrseturnar. En mentalöngun Kristjáns var ekki nándar- nærri fullnægt enn, þrátt fyrir námið á Hóla- skóla og mikinn lestur upp á eigin spýtur. Mun hann á þeim árum oft hafa fundið sárt til þess, að fátæktin skyldi hamla honum frá því að ganga »mentaveginn« sem kallað er. Fór hann nú í lýðháskólann á Hvítárbakka og dvaldi þar veturinn 1908—1909. En haustið eftir gekk hann upp í þriðja bekk kennaraskól- ans í Reykjavík og lauk þar fullnaðarprófi vor- ið 1910. Rjeðist hann þá strax kennari i Vatns- dal í Húnavatnssýslu og hefur verið það síðan, eða í 23 vetur. Árið 1914 kvæntist Kristján Margrjeti Sigríði Björnsdóttur, aí hinni alkunnu Blöndalsætt og ætt Snæbjarnar frá Grímstungu. Þau reistu þeg- ar bú á Brúsastöðum í Vatnsdal og hafa búið þar síðan, fyrst á parti, en síðan á hálfri jörð- inni. Heilsuleysi hefur oft barið að dyrum hjá þeim og farið illa með lítil efni. Prjú börn hafa þau eignast, sem öll lifa. Námstjóri var Kristján skipaður 1931 og hef- ur haldið því starfi síðan. Kristján er ágætur kennari. Var jeg svo hepp- inn að njóta kenslu hans í tvo vetur fyrir rúm- um 20 árum, og jeg verð að segja það, að hann vakti hjá mjer hina fyrstu verulegu lær- dómslöngun. En auk þess sem hann er ágætur kennari, er annað, sem jeg held að mjer þyki ennþá mætara í fari hans. Það er hin mikla viðleitni hans í þá átt að hafa góð áhrif á nem- endur sína, ekkí aðeins í skólanum, en líka ut- an hans, og einnig eftir að þeir eru komnir aí skólaaldrinum. Sú fræðsla og þau áhrif, sem sumir unglingar hafa notið hjá honum á þennan hátt, hefur orðið þeim veganesti á lífsleiðinni, ef til vill meira en hann sjálfan grunar. Jeg á það t. d. mest honum að þakka, að jeg vandist ekki á áfengi og tóbak þegar á unglingsárum, en hef borið gæfu til þess að hafna því hvorutveggju fram á þennan dag. Þetta þykja ef til vill smámunir, en fyrir mig er það mikils virði. Jeg gæti nefnt fleiri dæmi um það, hvernig þessi góða viðleitni hans hefur borið árangur, en Iæt þetta nægja að sinni. Kristján er vel skáld- mæltur eins og hann á ætterni til. Eru sum tæki- færiskvæði hans ágæt, og margir munu kannast við hinar fallegu ferskeytlur, sem birtust fyrir nokkrum árum eftir hann í Stuðlamálum. Kristján Sigurðsson.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.