Óðinn - 01.07.1934, Qupperneq 17
ÓÐINN
65
Jeg óska þess að Kristjáni endist sem lengst
aldur og heilsa til þess að vinna að velferðar-
málum æskulýðsins heima í sveit sinni, svo
að Vatnsdælingum auðnist enn lengi að njóta
hinna góðu hæfileika hans.
Geir Gígja.
*
Stefán Árnason
bóndi á Ásunnarstöðum í Breiðdal.
Stefán var fæddur hinn 6. dag marsmánaðar
1867 í Tunguhaga á Völlum í Suður-Múlasýslu.
Foreldrar hans voru Árni Friðriksson, ættaður
úr Nesjum í Austur-Skaftafellssýslu, og Guðný
Pjetursdóttir og Katrínar, hjóna í Tunguhaga.
Ólst hann þar upp til þess er hann misti föður
sinn, var hann þá fimm ára. Fluttist hann þá
með móður sinni í Fáskrúðsfjörð og ólst þar
upp til fullorðinsaldurs.
Haustið 1889 giftist Stéfán Helgu dóttur Lúð-
víks Rúdólfs Kemp, var hann þýzkur að ætt
og giftur Oddnýju Einarsdóttur, ættraðri úr
Vopnafirði. Helga var meðal hínna yngstu af
sínum systkinum, en þau voru 21 að tölu.
Helga var fríðleikskona, skáldmælt og greind
vel. Hún andaðist eftir 8 ára sambúð. Stefán og
Helga eignuðust fjögur börn, lifa Ivö þeirra,
Lúðvik R. Kemp bóndi og verkstjóri á Illuga-
stöðum í Skagafirði, giftur Elísabetu Stefáns-
dóttur frá Jórvik í Breiðdal, og Oddný, gift
Björgúlfi Stefánssyni kaupmanni í Reykjavík.
Vorið 1890 keypti Stefán Ásunnarstaði í Breið-
dal og fluttist þangað með konu sína og móður
ásamt tveim ungum börnum hennar af seinna
hjónabandi, ólust þau bæði upp hjá honum til
fullorðins aldurs. Tvö börn önnur tók hann til
uppfósturs, er annað náði fullorðinsaldri en hitt
dó 9 ára.
Skömmu eftir að Stefán kom að Ásunnar-
stöðum keypti hann Hlíð, sem var nábúajörð,
og lagði undir ábýlisjörð sína, bygði hann skjótt
upp á Ásunnarstöðum bæði bæjarhús og fjen-
aðarhús, sljettaði túnin og girti, var hann að
öllu þessu stórvirkur, því framkvæmdahugur var
mikill, enda bera jarðirnar þess órækan vott,
því að nú eru bæði túnin alsljettuð og útgrædd
margfalt við það sem var þegar hann tók við.
Aftur giftist Stefán, Sigriði Marteinsdóttur frá
Árnagerði í Fáskrúðsfirði og voru þau í hjóna-
bandi í full tuttugu og fimm ár, þar til Sig-
ríður andaðist í febrúar 1922. Dóttir Sigríðar,
fjögra ára að aldri, fluttist með móður sinni
að Ásunnarstöðum og ólst upp þar með henni
og stjúpa sínum. Sigríður og Stefán eignuðust
tvær dælur, en
báðar dóu í æsku,
önnur fimm en
hin átta ára.
Sigríður var hin
mesta rausnar og
búsýslukona ogvirt
og mikilsmetin af
öllum, er hana
þektu, var þeim
hjónum samhent
gestrisni og góðar
viðtökur við hvern
sem að garði bar,
enda var heimili
þeirra orðlagt fyrir
höfðingsskap við
gest og gangandi,
stóð það og þá á þeirra búskapartíð í miklum
blóma og gnótt í búi, því ekki voru til sparaðir
aðdrættir.
Þriðja skifti giftist Stefán, Kristborgu Kristj-
ánsdóttur, ungri konu ættaðri úr Stöðvarfirði,
bjuggu þau saman um níu ára skeið, þar til
hann andaðist hinn 7. desember árið 1932, þá
farinn að heilsu og kröftum. Reyndist þessi
hans síðasta kona honum vel, og var honum
til umönnunar og aðstoðar á síðasta áfanga
æfinnar. Stutt varð á milli þeirra Stefáns og
Kristborgar, því hún ljest 31. desember sama
ár. Þau Ijetu eftir sig tvö börn, Pjetur 8 ára og
Sigríði á fyrsta ári.
Stefán var vel meðalmaður á hæð, með liðað
ljóst hár og blá augu. Fjörlegur, glaðlyndur og
aðlaðandi í viðmóti. Hann var á undan samtíð
sinni í hugsunum og gjörðum. Gæfumaður var
hann eins og forfeður hans í báðar ættir.
Hann Iætur eftir sig góðar endurminngar hjá
börnum sínum og samtíðarmönnum. — Myndin,
sem fylgir, er af Stefáni rúmlega sextugum.
*
Slefán Árnason.