Óðinn - 01.07.1935, Page 1
OÐINN
7.—12. BLAÐ
]ÚLÍ — DESEMBER 1935
XXXI. ÁR
Pjetur Halldórsson borgarstjóri.
Á fundi bæjarstjórnar 1. ágúst sl. var Pjetur Hall-
dórsson bæjarfulltrúi kosinn borgarstjóri Reykjavíkur.
Mjer er óhætt að fullyrða,
að með þessu sýndi bæjar-
stjórnin,að hún valdi mann,
sem hafði óvenju staðgóða
þekkingu á bæjarmálum til
brunns að bera, og er þess
utan framúrskarandi mann-
kostamaður. Þaðverðurþví
ekki annað sagt, en að
borgarstjóravalið hafi lán-
ast bæjarstjórn sem bezt
varð á kosið, enda hef jeg
engan heyrt halda öðru
fram.
Pjetur Halldórsson hefur
átt sæti í bæjarstjórn síðan
í ársbyrjun 1920, og er því
einn allra reyndasti bæjar-
fulltrúi Reykjavíkur. Hann
hefur verið varaforseti bæj-
arstjórnar síðan 1926, og
átt sæti í öllum helztu
nefndum, lengri eða skemri
tíma, svo sem bæjarráði,
fjárhagsnefnd, rafmagns-
stjórn, hafnarstjórn, gas-
nefnd,skólabyggingarnefnd,
húsnæðisnefnd, vatnsnefnd
og skólanefnd. Það er því
ekki smáræðis reynsla,
sem hann hefur aflað sjer í meðferð bæjarmálanna
öll þau ár, sem hann hefur setið í bæjarstjórn, því
það er viðurkent af öllum, sem til þekkja, að hann
hefur rækt þessi störf með þeirri einstöku samvizku-
semi og trúmensku, sem honum er eiginleg.
Engan þarf að undra, þó ýms deilumál komi upp
í bæjarstjórn á svo mörgum árum, enda hafa þau
verið mörg. Því verður heldur ekki neitað, að oft
hefur skorist í odda milli flokka þeirra, sem í bæjar-
stjórn eru, og hefur Pjetur
Halldórsson þá jafnaðar-
lega staðið framarlega í
sókn og vörn, og aldrei
hlíft sjer eða dregið sig í
hlje. En þrátt fyrir þetta
þori jeg, sem hef verið
samstarfsmaður Pjeturs síð-
an hann kom í bæjarstjórn,
og haft meira saman við
hann að sælda en flestir
aðrir, að fullyrða, að and-
stæðingar hans þar bera
honum þann vitnisburð,
að hann sje manna sann-
gjarnastur og drenglynd-
astur, þó hann fylgi því,
er hann veit rjettast og
bezt, út í ystu æsar. Jeg
hef heldur aldrei heyrt
nokkurn mann segja ó-
vildar- eða kalaorð um
Pjetur Halldórsson per-
sónulega.
Borgarstjórinn okkar,
Pjetur Halldórsson, er
manna glæsilegastur í allri
framgöngu, og ber það
með sjer, hvar sem hann
er, að hann er prúðmenni
hið mesta. Einarður og skörulegur er hann í bezta
lagi, og heldur fast á þeim málstað, sem hann er
sannfærður um að sje rjettur. Hann er trygglyndur
og vinfastur umfram flesta menn aðra, og munu þeir
æði margir, sem átt hafa hauk í horni þar sem
hann er.
Við, sem bezt þekkjum Pjetur Halldórsson borgar-