Óðinn - 01.07.1935, Blaðsíða 33

Óðinn - 01.07.1935, Blaðsíða 33
Ó Ð I N N 81 Jón Árnason framkvæmdastjóri. Hann er fæddur í Syðra-Vallholti í Skagafirði 17. nóvember 1885, og á því fimtugsafmæli nú í haust. Foreldrar hans voru Árni Jónsson trjesmiður og Guð- rún Þorvaldsdóttir frá Framnesi í Skagafirði, sem lengi bjó á Stóra-Vatnsskarði, og er mynd hennar og æfiágrip í »Óðni« 1924. Árni hafði numið trjesmíði í Kaupmannahöfn og dvalið þar nokkur ár. Var hann á sinni tíð talinn einn af allra fremstu smiðum hjer á landi og var mjög vel að sjer í dráttlist og reikn- ingi, að kunnugra sögn. Þau Árni og Guðrún voru um eiít skeið á Hólum í Hjaltadal, hann við smíðar, en hún bústýra á hinu nýja skólabúi þar. Síðan bjuggu þau í Borgarey í Hólmi og áttu þá jörð. Þau eignuðust þrjú börn: Ingibjörgu, Jón og Árna. Eftir andlát Árna giftist Guðrún Pjetri Gunnarssyni frá Syðra-Vallholti og bjuggu þau fyrst áfram í Borgarey, síðan á Löngumýri í Hólmi, en fóru 1899 að Stóra-Vatnsskarði. Þau eignuðust fjögur börn: Þorvald (dáinn), Benedikt, Ingvar (dó ungur) og Kristínu. — Guðrún andaðist 31. janúar 1924. En börn hennar fjögur, sem á lífi eru, systkini Jóns Árna- sonar, búa enn á Stóra-Vatnsskarði og eiga jörðina. Jón fór ungur á Möðruvallaskóla og úískrifaðist þaðan 1905. Eftir það stundaði hann barna- og ung- lingakenslu nokkur ár. Var síðan um hríð í Kaup- mannahöfn og kynti sjer verzlunarmál. 1917 varð hann starfsmaður hjá Sambandi íslenzkra samvinnu- fjelaga og hefur verið það síðan. 1922 varð hann framkvæmdastjóri útflutningsdeildarinnar, og er það enn. Hefur starfið það í för með sjer, að hann hefur mjög orðið að ferðast um erlendis meðal viðskifta- vina Sambandsins, bæði um Norðurlönd, England og Þýzkaland. Hann var einn af stofnendum Framsóknar- flokksins, og eftir að sá flokkur fjekk í hendur stjórn una. Hann starði á mig undrandi; bilið breikkaði, jeg veifaði til hans hendinni og hann á móti. — Hann hefur víst komist að, hver jeg væri, því að hann heim- sótti mig nokkrum árum seinna, og við erum góðir kunningjar þann dag í dag. — Vjer sigldum svo frá ísafirði og höfðum bezta veður fram með Vestfjörð- um, komum til Patreksfjarðar. Þar var stutt viðdvöl. Þó fór jeg í land og heimsótti frænku mína, dóttur Erlendar Pálssonar frænda míns á Hofsós, sem áð- ur er um getið, konu gamals vinar míns, Jóns Ólafs- sonar, sonar Ólafs gestgjafa Jónssonar, en hjá systur landsins, hafa hon- um verið falin ýms hin vandasömustu og ábyrgðarmestu störf í almennings þarfir. Hann átti sæti í milliþinga- nefnd þeirri, sem kom kæliskipamál- inu í framkvæmd. — 1923 varð hann fulltrúi ríkisins í stjórn Eimskipafje- lags Islands, og 1928 varð hann formaður í banka- ráði Landsbankans. Gegnir hann báðum þeim störfum enn. 1933 vann hann, fyrir hönd ríkis- stjórnarinnar, að viðskiftasamningunum við Norðmenn, og aftur að viðskiftasamningunum við Itali síðastl. vor. 1933 var hann skipaður í milliþinganefnd í afurðasölu- málunum, og nú á hann sæti í kjötverðlagsnefnd og stjórn Sölusambands fslenzkra fiskframleiðenda. — Hann á og sæti í miðstjórn Framsóknarflokksins. Sagt er, að hann hafi átt kost á ráðherrastöðu, en ekki viljað. Sýnir alt þetta, hve starfhæfur maður Jón Árnason er, og eins hitt, hve mikils álits hann nýtur meðal flokksbræðra sinna. Hann er og vinsæll maður út í frá og hinn liprasti og viðkynningarbezti í allri fram- komu, jafnan rökfastur og kurteis, er hann heldur vörnum uppi fyrir málstað sínum í blöðum eða á mannfundum. 1925 kvæntist hann Sigríði Björnsdóttur, frá Kornsá í Vatnsdal, og eiga þau þrjú börn: Björn, Árna og Ingunni Guðrúnu. Ólafs hafði jeg verið smali á Síðu, eins og frá er greint í »Undirbúningsárunum«. Það hittist svo á, að Höskuldur litli sonur þeirra varð 6 ára þann dag, en hann var lasinn í rúminu. Mjer leist hið besta á þennan litla frænda minn og bað fyrir framtíð hans. Mjer þótti merkilegt að hitta tvo sama daginn, sinn á hvorum firði, er hjetu hið sama og áttu báðir sama afmælisdag, þótt ekkert annað samband væri þeirra á milli. — Svo segir ekki af ferðinni meir, fyr en vjer komum heilu og höldnu heim. Alt hafði gengið á- gætlega, meðan jeg var í burtu. Jón Árnasotí framkvæmdastjóri.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.