Óðinn - 01.07.1935, Blaðsíða 18

Óðinn - 01.07.1935, Blaðsíða 18
66 Ó Ð I N N sinnaðisf, að þeir fóru stundum í áflog saman. Hús- freyjan var viðkvæmari fyrir slíku tuski en búsbónd- inn, og spurði hann þá stundum óþolinmóðlega: »Af hverju ferðu ekki að skilja þá?« Arni var rólegur og svaraði fáu. En er honum þótti ástæða til, gekk hann til þeirra og sagði aðeins þetta með þungri alvöru: »hættið þið þessu*. Löbbuðu þeir þá þegjandi sinn í hvora áttina, og aldrei þurfti hann að leggja höndur á þá, til þess að fá þá til að hætta« — segir Sigríður1)- Nú þykir mjer hlýða að gera um sinn hjónaskilnað, eða öllu heldur drjúgan aðdraganda að tilhugalífi þeirra. Keldur á Rangárvöllum. Keldur eru alkunnar að fornu fari og langt fram eftir öldum, sem eitt af hinum mestu bændahöfðingja- setrum. (Voru lengi 60 hndr. jörð, síðar 40 hndr. en lægst 12 hndr., sökum sandfoks um 6 aldir a. m. k., frá eldi og brennisteini, vikri og ösku úr Heklu). í Njálu (116. k,), sjest það, að Ingjaldur hefur haft þarmarga húskarla. Bændahöfðinginn mesti, ]ón Lofts- son, flutti þangað frá Odda, setti þar kirkju og andaðist þar, og Hálfdán Sæmundsson frá Odda bjó þar eftir afa sinn. Svo lítur út sem andi þessara þriggja göfug- menna og friðsemdar höfðingja hafi æ síðan svifið yfir bústað þeirra. Jörðin hefur oftast verið í sjálfs- ábúð. Frá dögum ]. L. (d. 1197) má rekja ábúendur að mestu leyti, og þar hafa aldrei búið bardaga- menn, ribbaldár eða sundurgerðarmenn. Eigi heldur neinar bleyður eða skálkaskjólsmenn. Andi hreinlynd- is, drenglundar, friðsemi og hagsældar virðist hafa tekið sjer þar bólfestu. Aldrei hafa þar heima við orðið nein vígaferli, svo kunnugt sje. En hafi búend- ur verið áreittir, hafa þeir jafnan haldið hlut sínum. 1) Af 24 samfeðra systkinum Árna, giftust þessi, og eru niðjar þeirra á lífi: 1. Alsystur, ingiríðar tvær, önnur átti Gunnar Guðmundsson frá Hlíð í Gnúpverjahreppi, bróður Lýðs hreppstjóra þar), bjuggu á Stokkalæk. Hin átti Árna Árna- son frá Galtalæk, bjuggu lengst á Skammbeinsstöðum, áttu 16 börn, og yfir 90 niðja, er hún dó. II. Hálfsystkini: Jón (f. 1831, utan og milli hjónabanda föður hans), bjó á Hlíðarenda í 01- fusi og víðar — afi Jóns Helgasonar prófs. ! Kaupmh. Mið- konubörn Guðm. Br.: 2. Páll hreppstj. á Selalæk (afi Magn- úsar Kjarans kaupm. o. fl.). 3. Brynjólfur hreppstj. í Ketilhús- haga (faðir Guðmundar á Sólheimum í Vtri-Hrepp). Þriðjukonubörn Guðm. Br.: 4. Ingibjörg, átti Hatldór Jóns- son frá Eyvindarmúla, bjuggu á Rauðnefsstöðum, fóru til Ame- ríku. 5. Jóíi, bjó á Ægisíðu. 6. Guðrún, átti Filippus Filipp- usson á Bjólu, bjuggu þar og í Gufunesi. 7. Sigurður, bjó á Selalæk. 8. Skúli, býr á Keldum. 9. Júlía, kona Ingvars prests Nikulássonar í Gaulverjab* og Skjeggastöðum í N.-Múlasýslu, (foreldrar Helga læknis á Vífilsstöðum o. fl.), 10. Vigfús bjó í Haga og Engey. ■— Nú er að eins nr. 6, 8. og 10. á lífi. Þó Keldur hafi oftast verið, og sjeu enn ættaróðal, hefur jörðinni oft verið skift milli erfingja, og ekki haldist ávalt í sama aettlið óslitið. — Þetta hef jeg tekið fram vegna æskuheimilis hjónaefnanna, og vegna þess, að Keldna-andinn (ef svo mætti kalla) skildi ekki við þau á Reynifelli. Meðan sýslumennirnir í Árnessýslu, Sigurður Sig- urðsson (landsskrifari eldri) og Brynjólfur sonur hans áttu Keldur, voru þær í leiguábúð; en komust aftur í sjálfsábúð með Ingibjörgu dóttur hans og manns hennar Quðmundar stud. Magnússonar, síðar prests að Kálfatjörn. Bjó hann fá ár á Keldum (1775—82) og einna Iakast þeirra, er sagnir greina, fór hann því og seldi jörðina. En nafni hans, Guðmundur Erlendsson bónda í Gunnarholti Þorsteinssonar, bónda á Kornbrekkum og síðari kona hans Guðrún Pálsdóttir í Keldnaseli, keyptu og fluftu að Keldum. Búnaðist þeim vel, og urðu allvel efnuð, þrátt fyrir Móðuharðindin, og eigi síður fyrir hjálpsemi sína þá. (Sagnaþ. Br. ]. II.). Næstu ættmenn Guðrúnar á Reynifelli. Síðastnefnd hjón voru langafi og langamma hennar. Og verða hjer aðeins rakin sambönd þar á milli. — Einn af sonum þeirra Guðmundur Erlendssonar og Guðrúnar Pálsdóttur hjet Páll'). Hann hefur ment- ast nokkuð í æsku, lært a. m. k. skrift og reikning, því hann stóð fyrir útbúi Eyjakáupmanns í Landeyjum. Giftist hann 9/5 1723 Þuríði dóttur ]óns undirkaup- manns í Vestmanneyjum, systur Páls prests skálda. Bjuggu þau fyrst í Bakkahjáleigu, og þar fæddist Guðrún 3/7 1793, móðir Guðrúnar á Reynifelli. — Síðar bjó Páll á Brúnum í Stóra-Dalssókn, en flutti að Keldum 1817, eftir að móðir hans hafði búið þar ekkja í 2 ár. Hún flutti þá að Króktúni, hjá Keldum, og bjó þar 9 ár, þá aftur að Keldum til sonar síns og andaðist þar 2/9 1827, 84 ára. Tæpu ári síðar 20/8 1828 andaðist merkisbóndinn Páll Guðmundsson, úr brjóstveiki, 59 ára. Var hann þá orðinn stór- eignamaður, bæði að jörðum og. lausafje. — Átti í 21 jörð = 219 hdr., 43'/2 kvígildi, 11 hdr. 25 álna landskuldir 5279 Rbd. — Með konungsleyfi sat ekkja hans, Þuríður ]ónsdóttir, í óskiftu búi þar til hún andaðist ,]/5 1833. Guðrún dóttir þeirra Páls og Þuríðar giftist 1814, 1) Hann var fæddur í Keldnaseli 2q/3 1769, d. 1828. Al- bræður hans voru Sleinn bóndi í Vetleifsholti, faðir Sleins í Bakkakoti o. fl. Og Halldór bóndi á Reyðarvatni, afi Tómasar bónda þar. En alsystir þeirra var Ingveldnr, kona Jóns bónda á Rauðnefsstöðum og móðir Þorgiisar bónda, er þar bjó Iíka,

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.