Óðinn - 01.07.1935, Side 45

Óðinn - 01.07.1935, Side 45
Ó Ð I N N 93 sem annara mundi hann bæta og græða á dásam- legan hátt. Henni varð jafnan að trú sinni. Eftir svörtu sorgarskýin og döpru dagana, sem svo oft dundu yfir hana, og skygðu á lífsgleði hennar, svo að henni fanst hún örmagnast undir byrði hrygðarinnar, rann upp heiðríkur himinn með dýrðlegum morgunroða, sem fylti hug hennar og hjarta með bæn og þakklæti. Svo mun og hafa verið hennar hinsta æfikveld. Björg andaðist í Borgarnesi 19. janúar 1919, rúm- lega 83 ára gömul, eftir árs vanheilsu af krabba- meinssjúkdómi. Guð blessi minningu hinnar hugumprúðu konu. II Jósef Jónsson, seinasti maður Bjargar Grímsdótfur, var fæddur að Skarði í Gnúpverjahreppi í Arnes- sýslu 5. nóvember 1839. Foreldrar hans voru Arn- dís Höskuldsdóttir og Jón Gíslason, hjón búandi að Skarði. Jón, faðir Jósefs, var albróðir Gests Gísla- sonar, bónda að Hæli í Gnúpverjahreppi, föðurafa Gests Einarssonar frá Hæli og Eiríks Einarssonar, fyr bankastjóra að Selfossi. Foreldrar Jósefs áttu margt barna, bæði syni og dætur, komust flest af þeim á fullorðinsaldur, voru öll mannvænleg og vel gefin. Munu albræður Jósefs hafa verið 6. Elstur þeirra var Höskuldur, er dvaldi lengst af æfi sinnar á Hrauni í Grindavík, var formaður og aflamaður mik- ill. Þá þeir Skarðsbændur Gísll og Jón, Jóakim fyr bóndi að Selfossi, og Jóhannes. Hálfbróðir þeirra var Guðmundur, Giftist hann í Vtri-Njarðvík, og flutti suður á Miðnes í Gullbringusýslu, og andaðist nokkru síðar. Jósef ólst upp hjá móðurbróður sínum, Ólafi Hösk- uldssyni, bónda að Haga í Gnúpverjahreppi. Varheim- ili hans þar alla tíð, þar til hann fluttist vestur í Dala- sýslu, að Lækjarskógi, vorið 1874. Stundaði hann jafnan kaupavinnu að sumrinu, ýmist þar í hreppn- um eða norður í Þingeyjarsýslu, og fór þá jafnan Sprengisand. Á vetrum og vorin stundaði hann sjó- róðra, margar vertíðir hjá Jóni Árnasyni hreppstjóra í Þorlákshöfn, sem var mikill sjósóknari og aflamað- ur á sinni tíð. Ennfremur á Suðurnesjum, lengi hjá Bjarna Oddssyni, hafnsögu- og útgerðarmanni í Garð- húsum við Reykjavík, sem einnig var mikill sjósókn- ari og aflamaður, Jósef þótti afburða sjómaður, sem og til allrar vinnu, er hann gekk að. Var með allra mestu þrekmönnum, rammur að afli, svo að hann mun hafa átt fáa sína líka. Eru til ýmsar sagnir um hreysti hans. Jón bróðir Bjarna Oddssonar í Garð- húsum, hafnsögumanns, og fleiri, sem honum voru samtíða, sögðu svo frá, að afl Jósefs hefði verið meira en annara manna, sem þeir hefðu þekt, og að gam- an hefði verið að sjá handatiltektir hans við verk, sem mikið afl á reyndi, t. d. þá þeir voru að bera af skipi, salt eða aðra þungavöru, hefði komið ljett á þann, sem rjetti upp úr skipinu, að lyfta á Jósef, hann hafði vanalega tekið pokann, þó neðarlega hefði verið í skipinu, sem fis væri og svift honum á herð- ar sjer. Margar fleiri sögur sögðu þeir af honum, er lýstu miklu afli hans. Hann hafði gaman af að þreyta aflraunir, t. d. taka upp steina og aðra hluti, sem öðrum var um megn, þó miklir burðamenn væru á- litnir. Jósef sagði svo frá, að eitt sinn, þá hann var á ferð yfir Sprengisand, ásamt frænda sínum, Jóni bróð- ur Brynjólfs frá Minna-Núpi, sáu þeir hesta í fjar- lægð á Sandinum, undir kletti eða hæð nokkurri. Þeir vissu ekki til, að þar um slóðir gætu hestar verið og lögðu Ieið sína í áttina til hestanna, að ganga úr skugga um, hvernig á því stæði að þeir væru þar. En þá þeir áttu allskamt til þeirra, spruttu upp tveir risavaxnir menn, er stigu í flýti á bak hestunum og riðu sem af tók á burtu. Þeir frændur hvöttu einnig sporið og eltu þá lengi. Virtist hestur Jósefs draga uppi hesta þessara óþektu manna. En hestur Jóns frænda hans drógst aftur úr, og því meira sem sprett- inn lengdi. Jósef sá sitt óvænna, annað en gefa upp eftirförina, áleit hæpið fyrir sig einann að eiga við mennina, ef ósáttir yrðu, þó að hann kynni með tím- anum að draga þá uppi, þá öll von var úti um að frændi hans gæti fylgst með honum, sem einnig hafði verið vel að manni. En þess gat Jósef, að sjer hefði þótt mjög fyrir að verða að hætta við eftirförina, og verra en margt annað, sem fyrir sig hefði komið. Hann hjelt því fram, að þetta hefðu útilegumenn ver- ið, sem auðsjáanlega hefðu ekki girnst fund þeirra frænda, sem bygðamenn hefðu vafalaust æskt og þótt vænt um. Þetta mun hafa verið á árunum 1862 til 1866. Jósef var mikill hestamaður, átti jafnan fallega hesta og góða reiðhesta. Mun þó einn þeirra hafa borið af hinum, sem Auri var kallaður. Þann hest átti Jósef þá hann var lausamaður í Haga. Brynjólfur skáld frá Minna-Núpi orti eftirmæli eftir Aura, sem eru í ljóða- bók hans. Eftir þeim að dæma, og umsögn Jósefs, hefur sá hestur verið afburða hestur, ekki aðeins að fjöri og fimleik, heldur einnig að viti. Þessi hest- ur heltist snögglega í kirkjuferð um hásumar, og virtist engu betri um haustið, og var því sleginn

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.