Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 24.11.1968, Side 55

Verkamaðurinn - 24.11.1968, Side 55
★ Undarlegt, hve lítil athöfn, getur orðið mikill örlagavaldur. ÞaS eru ekki hin stóru stökkin, sem breyta sköpum einstaklinga og þjóða. Nei, miklu fremur smátilhlaup, nauðaómerkileg at- höfn eða orð. Þvílík ósköp! Eg var búinn að vera bæjar- póstur til margra ára, næstum allt mitt líf. Ég þekkti hvurja manneskju í bænum og var allra vinur. Ógiftur, hæglátur og ástríðulítill bæjarpóstur. Hvers er af slíkum að vænta? Einskis. Hver veitir honum sér- staka athygli? Enginn. Það er að segja, ef hann gengur ekki 'upp úr hjólfarinu. Ef hann er altaf svona eins og ég var. Þang- að til.... Ó, enginn skilur hjartað, eins og kellingin sagði. Hús nr. 13. (Einkennilegt nr. 13). Ég hafði borið þangað almennar rukkan- ir og fundarboð. Ekki oft, ekki regluíega. En alltaf þetta brúna umslag frá bankanum í hverjumj mánuði. Ég taldi það víxil. Og ég var oft að hugsa með mér: Skyldi ekkjan alltaf framlengja hann óbreyttan og aðeins um mánuð í senn. Það var tíma- sóun, já, skrítið. Ég hugsaði „ekkjan“, því það var hún, kon- an í nr. 13. Hún leit ekki út fyr- ir að vera blásnauð. En því þá að framlengja endalaust? Því ekki greiða víxilinn niður, Ijúka þessu af? Nema ég er að fara heim að 13, með eitt þetta brúna um- slag.... (Hugsið ykkur: Ef hún hefði nú greitt upp síðast, þá hefði engin tilkynning verið send nú. Ég aldrei farið heim í 13 þennan dag.... og þá aldrei....) En það gerðu þessi heilabrot tnn víxilinn og allt þetta, sem maður tvinnar utan um náungann í tilgangslausum ferli daganna. Vitlaust að hugsa. ... Ég hringi dyrabjöll- unni. Ekkjan kemur til dyra eins og hún er vön. Falleg kona, þannig. Feitlagin og sæl í hragði eins og hún væri alltaf að baka jólabrauð.... Sko, þetta er ekki sú mynd, sem skáld myndi draga upp af konu, enda segir það ekki neitt. En konur eru öðruvísi þegar þær eru að baka. Heitar í andliti og ábúðarfullar. Það er í fasi þeirra einhverskon- ar sjálfsfómar svipur og einnig verndar-bragur. Þú mátt ekki klípa utan úr skorpunni, skepn- an þín, þá fellur kakan, segir þessi svipur. Það þarf að vemda nýtt brauð, sem kostar fé og fyrirhöfn að baka. Þetta er í isvip konunnar og fasi. Konan kom til dyra, því ég, bæjarpósturinn, kom með til- kynningu frá bankanum eins og vant var í hverjum mánuði. Hún var svona í framan eins og ég sagði. Þess vegna sjáfsagt gerðist það. Ég kleip í þykkva- lærið á henni alveg ósjálfrátt og alls ekki fast, að mér fannst, og ég sagði, Þess vegna sjálfsagt að reyna að losa þig við hann þennan skolla? Ég átti við víxilinn og ekkert annað og það vegna þess, að ég hafði borið hingað tilkynning- una svo oft og fór svo að hugsa um þetta. En maður ætti ekki að hugsa, bara gera sitt verk og þegja svo. En ekkjan umhverfðist alveg gjörsamlega. Það var eins og ósýnileg ban'kastjórahönd stryki af henni jólabaksturs-andlitið og hvolfdi yfir það hræðilegri víxil- grímu. — Hvum sjálfan djöfulinn kemur þér þetta við, maður minn? (Takið eftir úttalinu við mig: Maður minn. . . . í staðinn fyrir Steini póstur.) Og svo klípið þér mig á mddalegasta hátt. Þetta er líkamsárás. Kona, stamaði ég. Ég gat ekkert sagt, ég var svo óskaplega hræddur. Sko, þetta offors fer kannski í vana hjá giftu fólki, en ég var óvanur því, hafði raunar aldrei orðið fyrir neinu, menn verða það ekki ógiftir. — Til lögreglunnar skal það. Ekki nema það þó, fertugur kall- skrattinn. Hún skrækti þetta framan í mig. (Þið sjáið að hún var þá þegar komin í mikla geðs hræringu, fyrst hún lét svona, jafn róleg kona.) En það get ég sagt, að þó ég óskaði mér burt, eitthvað langt, langt burt — og alveg sama hvurt, þá gat ég ekki hreyft mig úr stað. Það var eins og einhver hefði tekið fast utan urn hjartað í mér. Ég gat ekki flúið, máttlaus eins og ég var. Ég stóð þarna í dyrunum og fann að þetta var örlagastund. Martröð var þetta þá strax. Þeir voru ekki svifaseinir þá. Ég efast um hún hafi verið búin að hringja þegar þeir komu brunandi í lögreglubílnum, með fullum sírenum, þrír boltar. (Þið sjáið sjálf að þeir hafa brugðið við, fyrst mér fannst það stuttur tími, í því ástandi, sem ég var.) Hún kom í dyrnar að innan um leið og þeir að utan. Ég var á milli og sá hana svona upp- tendraða og þá eins og þrjá hunda, sem bíða spenntir skip- unar húsbónda síns. . . . Og ég sá fleira, úr þessu skrúfstykki sem ég var í, þar sem hún var annar kjafthelmingurinn en þeir hinn. f svona bæ, þið vitið, má aldrei lögreglu, sjúkra, né bruna trog hreyfa sig svo allur lýður- inn fylgi ekki eftir. Það var strax kominn hópur gapandi krakka og hlustandi kellinga. þetta hékk við girðinguna, tútn* - ALLT MEÐ EIMNKIP - Um 11 þúsund ísiendingar eiga EIMSKIP. Þeir sem vilja kaupa hlutabréf í félaginu snúi sér til aðalskrifstofunnar í Reykjavík eða umboðsmanna félagsins úti ó landi. Árið sem leið fóru skip félagsins og leiguskip þess 192 ferðir milli landa, og komu við 739 sinnum ó 93 höfnum í 20 löndum og 990 sinnum ó 48 höfnum ó íslandi, til þess að koma framleiðsluvörum fró landinu og sækja nauðsynjavörur. HRAÐFERÐIRNAR fryggja örugga og fljóta jjjónustu. H.F. EIMSKIPAFÉL4G ÍSLAIVDS Verkamaðurinn 50 óra — 57

x

Verkamaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.