Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Page 2

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Page 2
84 inn og fegurstur í sólnánd, og minkar því fjær sem dregur sólu, og loks er halastjarnan írá oss séð, áður hún hverfur út f geiminn, að eins lítill, halalaus þoku- blettur með daufu ljósi. Halastjörnurnar 1585 og 1763 voru halalausar, halastjarna er sázt 1807 hafði einn hala, en hann var klofinn i tvo að framan. Næst stjörnunni erhalinn alveg eins og kjarninn, en utan eru randirn- ar bjartari. Stundum hafa menn séð í kjarnanum mörg lög, hvert utan um annað; í halastjörnunni 11860 voru tveir kjarnar og höfuðið á Borelly’s halastjörnu 1873 var beill kjarnaklasi. Halastjörnur fara, eins og kunnugt er, í mjög víð- um sporbaugum kringum sólina, eru ýmist mjög nærri henni eða mjög fjarri. í sólnánd fara þær mikluharð- ara en í sólfjærð; halastjarnan 1680-81 fór, eptir reikn- ingi Enckés, meðan hún var næstsólu, 53 mílur á sek- úndu, en er hún var fjærst, að eins rúm 10 fet. pegar halastjörnur nálgast sólina, stækka þær mjög af hitan- um, en dragast meir og meir saman við kuldann, ept-' ir því sem þær fjarlægjast hana meir. Um nýár 1880 sást á suðurhveli jarðar í sjónpípum dálítil halastjarna; húnkom 27. janúar svo nálægt sólu, að hún nærri snerti hana, og um nokkrar klukkustundir varð hún fyrir svo miklum hita, að hefði jörðin verið á sama stað, mundi hún hafa orðið að gufu. . Nú þekkja menn mjög marg- ar halastjörnur, en flestar eru svo litlar og ljósdaufar, að þær sjást eigi með berum augum, en að eins í beztu sjónpípum. Með því að ransaka ljóseðli halastjarnanna (spektral- analýsis), hafa menn fundið, að aðalefni í þeim er kola- vatnsefni. 1881 sáust tvær halastjörnur, og voru þær skoðaðar eins nákvæmlega og unt var. Af ljósi þeirra sást, að töluvert af því er aðeins endurskin frá sólunni, en þó er nokkuð þeim sjálfum eiginlegt og ber með sér, að það sumpart streymir frá heitum gufum. f>að sást

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.