Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Blaðsíða 34
116
líklegt, að hann með henni hafi hlotið staðfestu og
eignir þar vestra, er lagt hafi grundvöll til auðs þeirra
feðga. Herdísar nafn var ættgengt í kyni Hrafns
Sveinbjamarsonar á þrettándu öld, ogkynni nafn hús-
frú Herdísar, konu Örnólfs, að eiga þangað kyn sitt að
rekja. Guðorms nafn kemr og fyrir í þeirri ætt (Guð-
ormr körtr Helgason Sveinssonar og þórríðr Hrafns-
dóttir Sveinbjarnarsonar: Hrafns s. Sveinbj. 20. k.:
Bysk. I, 676). Um Örnólf er fátt kunnugt. Svo er
sagt, að þá er Gyrðir byskup fór um vestrland 1354,
gerði hann máldaga kirkjunnar undir Staðarfelli með
samþykki Örnólfs Jónssonar, og hafi síðan Örnólfr og
Guðormr sonr hans gefið þeirri kirkju (J. E. Árb. I,
85). í>ess er áðr getið, að Örnólfr og húsfrú Herdís
seldu Guðormi syni sínum Staðarfell hálft 1382, og
kvittuðu þau hann fyrir tveim árum síðar37.
til móts við Snorra Sturluson 1239 (Sturl. 6, 9, 26: II, 204,
234). Hvort sonr hans hafi verið Guðmundr prestr undan
Felli, sem nefndr er í Sturlungu 5, 34 : II, 162, er eigi alveg
víst, því að hann kynni að vera ‘Guðmundr prestr’, sonr
Guðríðar Narfadóttur, systur skarðs-Snorra, þótt líkara þyki,
að hann hafi verið sá Guðmundr prestr Ólafsson, er getr í
Sturlungu 9, 39: III, 263 (og vlðar). Snorri undan Felli
(eða Fjalli), er síðan sór Kolbeini Amórssyni 1242 og síðan
reið vestan til brullaups á Flugumýri með þeim Sturlu þórð-
arsyni 1253 og enn var gerðarmaðr í Bjarnardal 1258 (Sturl.
6, 36 : II, 259 ; 8, 52 : III, 177 ; 9, 2 : III, 181 og 9, 47 :
III, 275—276), og sem stundum er nefnðr ‘fellsprestr’ til að-
greiningar frá Snorra ‘Skarðspresti Narfasyni’ (skarðs-Snorra),
hefir eflaust verið sonr þórðar undir Felli og bróðir Guðmund-
ar. Sonr Guðmundar undir Felli kann að hafa verið þor-
leifr Guðmundarson, er var með Sturlu þórðarsyni í brúðför á
Flugumýri (Sturl. 8, 52 : III, 177). þeirrar ættar kynni Her-
dís, kona Ömólfs að hafa verið.
37) B. B. Sm. æf. I, 1, 157. bls.: J. P. 2. ath. gr. — í