Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Blaðsíða 39
121
að haustið 1398 hafi Jón Hákonarson í Víðidalstungu46
kvittað Halldór prest Loptsson um Grundar verð
og Holt (hálfa Grund: J. E. Árb. I, 121)47. Árið
46) í formála Flateyarbókar (Christ. 1868, V. bls.) er ger
tilraun til þess að sanna, að Jón Hákonarson (Gizurarsonar
galla) hafi eigi búið í Víðidalstungu, og segir þar og, að ekk-
ert sé kunnugt um niðja hans, en Jón Pétrsson hefir (B. B.
Sm. æf. I, 1, 23. bls.: J. P. 3. ath. gr.) leitt full rök að því,
að Jón hafi átt Víðidalstungu og að börn hans, Helgi og
Guðný, er átti Sveinn Bergþórsson, hafi fengið jörðina að
erfðum eftir föður sinn, en síðan eignaðist hana þorleifr
Amason, dóttur maðr Bjarnar Jórsalafara, og er engin á-
stœða til þess að efast um, að Jón hafi búið þar og einnig
Hákon faðir hans eftir föður sinn Gizur galla (Bjamarson
Svarthöfðasonar), er bjó þar á dögum Lafranz byskups
(Lafr. s. bysk. 51. k: Bysk. I, 855).
47. Svo sem kunnugt er, átti þórðr Sighvatsson kakali
Grund, en eftir dauða hans 1256 kallaði Steinvör systir hans,
kona Hálfdanar Sæmundarsonar á Keldum, sér landið, því
að þórðr ætti engin skilgetin börn, og fékk hún síðan þorvarði
þórarinssyni búið á Grand og allar heimildir, er hún þóttist
eiga þar eftir þórð, og eggjaði hann að halda sem hann
væri drengr til (Sturl, 9,44-—45: III, 270-273). En bæði bend-
ir frásögnin til, enda er það auðsætt af skaplyndi Steinvar-
ar, að hún hefir eigi kallað eftir eignum þórðar bróður síns
af áseilni við börn hans, heldr til þess að heiinta þær úr hin-
um áseilnu greipum hins norrœna konungsvalds, er þá var
tekið að skipa ríkjum og eignum á Islandi með hinu mesta
gerræði. En þótt þorvarðr næði eigi að staðfestast þar, þá
hefir hann þó rutt óþægum steini úr götu Steinvarar, er
hann tók af lífi hinn ótrauða og kappsama framkvæmdar-
mann og fulltingjara konungsvaldsins, þorgils skarða (1258).
þegar þorvarðr hélzt þar eigi við eftir þetta lítt þokkaða víg,
tók Loptr Hálfdanarson við búi á Grund næsta vor (Sturl.
9, 55: III, 288). Hvé lengi Loptrhafi búið á Grand, verðr
eigi séð. Eflaust er það Loptr Hálfdanarson, er nefndr er í