Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Blaðsíða 52
134
getið meðal góðra bónda í Eyafirði, þar er Sighvatr
Sturluson var fyrir skömmu fluttr norðr þangað, og
Sturla sonr hans (fœddr 1199) var sautján eða átján
vetra (um 1218)66. það getr og naumast leikið efi á,
að þessi Jón Örnólfsson á Möðruvöllum sé hinn sami
og Jón Örnólfsson í Miklagarði, er þorsteinn Jónsson
(Loptssonar) dvaldist hjá um hríð, er hann kom sunn-
an til Eyafjarðar til liðs við þorgrim alikarl 1199 (Sturl.
3, 29: I, 176). Hefir þá Jón fyrst farið að búa í
Miklagarði, en síðan flutzt á Möðruvöllu, hvort sem þeir
hafa verið föðurleifð hans eða eigi. Jón Örnólfsson
andaðist 1222 (ísl. ann.). Dóttir Jóns Örnólfssonar og
systir Halls á Möðruvöllum hefir verið Herdís, er átti
Jón, bróðir þorgeirs í Holti undir Eyafjöllum og Holm-
steins. föður Gríms prests, er skipaðr var Oddi 1274 (Á.
s. Bysk. 14. k.: Bysk. I, 697) og hafa þá fyrst, svoaðséð
verði, hafizt tengdir með þeim Möðruvellingum og Holts-
mönnum, en endrnýazt aftr, er þórðr Hallsson fékk
Guðnýar, dótturdóttur þorgeirs úr' Holti, sem fyrr
segir.
Faðir Jóns Örnólfssonar á Möðruvöllum hefir ver-
ið Ornólfr Jónsson, er andaðist tveim vetrum fyrr enn
Jón sonr hans kemr við sögur, eða 1197 (ísl. ann.),
og hafa þeir feðgar eflaust verið merkir menn, er
þótt hefir hlýða að rita andlátsár þeirra. Hvort Örn-
ólfr hefir búið á Möðruvöllum eða annarsstaðar, verðr
66) Sturl. 4, 19: II, 37.—í lesmáli Sturlungu (Khafnar
útgáfunnar) stendr á þessum stað ‘Halldórr’ (Ornólfsson)
fyrir ‘Jón’, sem til er fœrt í mismunargrein neðanmáls, og
mun það svo til komið, að ritari einhvers handrits hefir haft
Hall, son Jóns í huganum, og verið búinn að rita ‘hallr’, en
áttað sig þegar og skrifað ‘jón’, en gleymt að draga eða punkta
út ‘Hallr’, og svo hefir sá, er næstr ritaði, úr ‘hallr jón’,
gert ‘halldórr’.