Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Blaðsíða 24
io6
ráðsmannsdœmi Hólastaðar heima og annarsstaðar á
búum um Fljót og Skaga og sömuleiðis norðr undan
um allar inntektir og útgjöld, en fyrir kostnað, er
mennLopts hefði gert, lagði liann io hundruð og skip-
brot, er rekið hafði haustið áðr, og tók byskup það
með góðvild og virðing21. J>á er þess getið, að Hrafn
lögmaðr Guðmundarson hafi árið 1432 miðvikudaginn
næstan fyrir I.afranzmessu á Hálsi í Fnjóskadal úr-
skurðað um gjöf Halldóru f>orfinnsdóttur til Lopts
hins ríka Guðormssonar22. Svo er talið, að Loptr
Guðormsson og Ingibjörg Pálsdóttir, kona hans, hafi
bæði andazt 1436 (B. J. Ann.), og er eigi að sjá, að
Loptr hafi þá verið mjög hniginn að aldri, því að bæði
hafði hann sýslur á hendi fram yfir 1430, enda var
Sofía dóttir hans á ómaga aldri, er hann andaðist23.
Hafi Loptr hinn riki andazt um sextugs aldr, sem
varla ferr mjög fjarri lagi, er hann fœddr um 1375—
1376, og eptir aldri skilgetinna barna hans má ætla,
að hann hafi eigi kvongazt fyrr enn skömmu eftir
pláguna. J>annig kemr það vel heim, að J>orvarðr
Loptsson, sem mun hafa verið í eldra lagi skilgetinna
barna hans, hafi eigi kvongazt fyrr enn eptir dráp
21) B. J. Ann., við ár 1429 og 1431 ; J. E. Árb. II, 22, 28,
við ár 1430 og 1432 ; B. B. Sm. æf. I, I, 160—161. bls.
22) Bogi Benediktsson (Sm. æf. 1,1, 157. bls.) nefnir Hall-
dóru þessa ‘þorsteinsdóttur’ og svo gerir einnig Jón Pétrs-
son (s. bls. 1. ath. gr.), en hvort föðurnafn Halldóru er hér
réttara enn í Safni t. s. ísl. þykir óvfst. Á báðum stöðum
segir, að úrskurðrinn sé felldr miðvikudaginn fyrir Lafranz-
messu, og segir Jón Pétrsson, að hann sé felldr um vorið í
marzmánuði, en Jón Sigurðsson í Safni t. s. ísl., að það hafi
verið 6. ágúst, sem virðist rétt vera.
23) B. B. Sm. æf. I, I, 24. bls.: J. P. 4. ath. gr. sbr. 161.
bls.: J. P. 2. ath. gr.