Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Blaðsíða 54
Loptsson hefir heitið eftir afa móður sinnar, J>orvarði
föður Páls á Eiðum68.
JÓn, faðir Örnólfs, er andaðist 1197, er með öllu
ókunnr.
Sonr Örnólfs Jónssonar annarr enn Jón á Möðru-
völlum var þorvarðr Örnólfsson í Miklagarði í Eya-
firði, er þar hefir farið að búa, er Jón bróðir hans
fluttist á Möðruvöllu. Hann virðist hafa verið talsvert
yngri maðr enn Jón, en nokkru eldri enn Hallr sonr
hans. J>orvarðs getr fyrst að þvi, að Sturla Sighvats-
son veitti honum áverka, er þeir fegðar voru fyrir
skömmu komnir á Grund (um 1218), en J>orvarðr
J>órðarson í Saurbœ sætti þá (Sturl. 4. 29: II, 37—38).
J>á er hans getið í vestrför að Tuma Sighvatssyni með
Kolbeini 1244 og síðast í brullaupi Halls Gizurarsonar
og Ingi /jargar Sturludóttur á Flugumýri 1253 (Sturl.
68) Almennt er talið, að Sesilía Jorsteinsdóttir, kona
Páls J>orvarðssonar á Eiðum, en móðir Ingibjargar, konu
Lopts hins ríka, hafi verið dóttir Jorsteins lögmanns Ey-
ólfssonar (Safn t. s. Isl. II, 77), og að Sumarliði, sonr
Lopts (og Kristínar) hafi borið nafn Sumarliða Jorsteins-
sonar, bróður Sesilíu, er. þótti hinn mannvænlegasti maðr,
en varð eigi gamall (J. E. Árb. II, 3, sbr. ísl. ann. við ár
1387, 1391 og 1393). En Jorsteinn lögmaðr Eyólfsson
átti Arnþrúði, dóttur Magnúsar á Svalbarði Brandssonar,
systur Eiríks hins ríka á Möðruvöllum, svo að þau Loptr
hinn ríki og Ingibjörg kona hans, hafi Sesilía Jorsteins-
dóttir, móðir hennar, verið dóttir Jorsteins lögmanns og
Amþrúðar, hefði verið fjórmenningar þannig:
__ , _ . I Eiríkr—Sofía,—Loptr hinn ríki—
Magnus Brandsson j Arnþrúðr_Sesilí^_Sofía)
en þá myndi böm þeirra eigi hafa verið álitin skilgetin,
svo að, hafi Sesilía, amma Lopts, verið dóttir J>orsteins lög-
manns, hefir hún varla verið sammœðra við önnur börn
J>orsteins og dóttir Jarðþrúðar Magnúsdóttur.