Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Blaðsíða 47
129
ups, en þeir þórðr Hallsson og Jón Einarsson lögmaðr
vörzlumenn Hrafns og „lézt þá hvárr þeirra tíunda fimm
hundruð hundraða56“. Sama haust fór Árni byskup ut-
an að Gásum f Eyafirði og dvaldist áðr um hríð með
J>órði á Möðruvöllum (Árna s. bysk. 65. og 69. k.:
Bysk. I, 770—771, 775).
J»órðr Hallsson mun, svo sem íslenzkum höfðingj-
um var títt um þær mundir, einart hafa verið í förum
milli íslands og Noregs. Eigi verðr sagt, nær hann
hafi herraðr verið07. Árið 1292 getr útkomu Jörundar
byskups, og herra J>órðar Hallssonar og Pétrs af Mói,
norrœns manns, með boðskap Eiriks konungs um
kirknamál (ísl. ann.). Árið r303 getr og útkomu herra
þórðar og sama ár var honum utan stefnt og mörgum
höfðingjum öðrum lærðum og leikum, og mun það
hafa verið að undirlagi Álfs úr Króki, er farið hafði
utan árið áðr, og „sagði Hákoni konungi margar ný-
ungar af íslandi11 (ísl. ann.). Álfr úr Króki kom aftr
út 1305, og hafði þá margar nýungar og fáheyrðar
beiðslur, og kallaði alla þá útlaga, er eigi vildu undir
ganga. Gerðu þá Norðlendingar för að honum á Hegra-
nesþingi, svo að hann varð ákaflega hræddr, en herra
J>órðr á Möðruvöllum og aðrir herrar létu bera skjöldu
fyrir hann, og varð það hjálp hans (Lafr. s. bysk. 17.
k.: Bysk. I, 807; ísl. ann., við ár 1305). Tveimr ár-
um síðar komu út visitatores eða erindsrekar (umboðs-
menn) Jörundar erkibyskups, síra Lafranz Kálfsson,
56) þessi orð sýna, að söguritarinn hefir verið meiri vinr
Arna byskups enn mótstöðumanna hans í staðamálum, en
eigi verðr af þeim leitt, að þeir herra þórðr og Jón lög-
maðr hafi mishermt um eign sína, þó að slíkt muni snemma
hafa við brunnið.
57) Hann er nefndr ‘herra þórðr’ í Arna s. bysk. 13. k.
(ár 1274), en ‘þórðr bóndi’ í 18. k. (ár 1276).