Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Side 13

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Side 13
95 smáagnir, er verða eptir á brautinni, en fara sama hring og móðir þeirra; þetta sést af því, að brautirnar eru sameiginlegar fyrir stjörnuhröpin og halastjörnurnar. þ>egar halastjörnur eyðast, er mjög líklegt að þær verði að eintómum smáögnum, og svo hefir efalaust verið með Biela’s stjörnu. Stundum eru tvær halastjörnur á sömu braut, og á eptir þeim og milli þeirra margir slíkir hópar af smáögnum; upprunalega hefir alt verið ein stór halastjarna, sem síðan hefir klofnað og part- arnir orðið hver fyrir utan annan; alt er þó á sömu brautinni, en í mismunandi fjarlægð hvert frá öðru. 12. febr. 1875 féllu margir meteorsteinar í Iowa í Norður- Ameríku; ransakaði náttúrufræðingurinn Artfmr Wright þá og fann í þeim mjög mikið af loptkynjuðum efnum, er voru alveg hin sömu, sem menn hafa séð í hala- stjörnunum með ransóknum á ljósi þeirra, eða með öðrum orðum, ljósband þessara efna er alveg eins og í halastjörnunum. þessi gufukendu efni hafa menn á seinni árum fundið í mjög mörgum meteorsteinum. þ>ó geta menn naumlega haldið, að halastjörnur og hópar af meteorsteinum séu fullkomlega hið sama; þau standa í nánu sambandi, það er víst. í halastjörnunum sjálf- um er efnablöndunin og ásigkomulag þeirra töluvert annað en það, sem menn sjá á meteorsteinum, þau þurfa að öllum likindum minni hita til þess að verða hvít- glóandi en þau sem eru í loptsteinunum. Uppruni og eðli halastjarnanna er enn að mestu ráðgáta; hvort þær eru leifar af gömlum eyddum hnetti eða eigi, vita menn eigi með vissu. Margir halda að þær séu hnatt- leifar, og Zöllner segir, að stjörnuhröpin muni vera úr hinum föstu efnum hnattarins, en sjálfar halastjörnurn- ar séu hin fljótandi og gufukendu efni. Menn sjá að í kjörnum halastjarnanna er sífeld hreifing á efnunum og órói; hitabreytingar verða og á þeim fjarska mikl- ar, eptir því hvort þær eru fjær eða nær sólu. Eigi

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.