Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Qupperneq 31

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.04.1883, Qupperneq 31
Jón Pétrsson rekr svo ætt Lopts hins ríka: 1. Loptr Guðormsson, hinn ríki, er dó 1436; hans ro 2 faðir 2. Guðormr Örnólfsson í pykkvaskógi; hans faðir 3. Örnólfr Jónsson að Staðarfelli; hans faðir 4. Jón [ Örnólfsson].—Við þetta bœtir hann þeirri at- hugasemd: „Ætt þessi mun runnin úr Eyjafirði og kynni að mega rekja hana betr“ (Tímar. I, 19). Ættin er hér án alls efa rétt rakin, það sem hún nær. Gísli Brynjólfsson32 hefir ætlað ættina innlenda í Dölum, og gizkar á, að Örnólfr Jónsson, faðir Guð- orms í J>ykkvaskógi, hafi verið kominn af Örnólfi Ár- móðssyni í 'þykkvaskógi, er getr í Laxdœla sögu (33. k., Khafnar útg., 124 bls.), og að faðir hans Ármóðr (hinn gamli?), mágr Gests Oddleifssonar hins spaka, hafi verið sonr Örnólfs, sonar Ármóðs hins rauða land- námsmanns á Rauðasandi J>orbjarnarsonar (skúmu? Böð- varssonar Blöðruskalla: Landn. 2, 26: ísl. s. I, 139). En slíkt hefir eigi annað enn nafnlíkindi við að styðjast, þótt vera megi, að Loptr hinn ríki sé í einhvern lið kom- inn af þeirri Örnólfs-ætt. Örnólfr hét maðr, þorgíls- son, er bjó að Kvennabrekku um 1120 (Sturl. 1, 6, 18: I, 9, 32)33, en af því verðr eigi annað leitt, enn að Örnólfs nafnið, sem eigi er óalmennt, hefir þá átt heima þar vestra. Flestir hafa ætlað, svo sem Jón Pétrsson gefr í skyn, að ætt Lopts hins ríka væri eyfirzk í beinan karllegg, og er svo víða talið í nýlegum ættartölum. Ástœðan fyrir þeirri ætlun mun einkum vera sú, að 32) ‘Om Haavard og hans Viser’ í Hávarðar sögu ísfirð- ings, Khvn. 1860. 64. bls. 33) Hér er hvervetna vísað til Kaupmannahafnar útgáf- unnar af Sturlungu (1817—1820), með því að annarrar hefir eigi verið kostr.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.