Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Blaðsíða 38
230
sonr hans eptir hann. Enn segfir „Brandkr.“, að Ás-
björn hafi byggt „þann bæ, er kallaðr var að Lok-
hellum, en nú heitir á Hrafnkelsstöðum11, og kynni
að mega ráða af þessu, að höf. „Brandkr.“ hafi eigi
vitað um hrakning Hrafnkels úr Hrafnkelsdal, því að
svo virðist, sem hann eigni Ásbirni fyrstu byggingu
Hrafnkelsstaða. En bæði „Hrk.“ og „Fld.“ láta þ>óri
búa á Hrafnkelsstöðum eptir föður sinn. Af þessum
missögnum er að vísu eigi hægt að draga þá álykt-
un, að höf. „Fld.“ hafi eigi þekt „Brandkr.“, því að
hér gat hann fundið ástæðu til að fylgja fremr „Hrk“.
En nú segir „Brandkr.“ ennfremr, að Ásbjörn hafi átt
Hallberu, dóttur Hrollaugs Rögnvaldssonar Mærajarls1,
og að Helgi sonr þeirra hafi farið utan nokkru eptir
lát föður síns, og verið um hríð í Orkneyjum og Nor-
egi hjá frændum sínum. Hér greinast sagnirnar al-
gjörlega, því að „Fld.“ getr um ekkert af þessu, þótt
höf. hennar gjöri annars ekki minna úr Helga en
„Brandkr.“, og mundi því varla vísvitandi dylja ætt-
göfgi hans, heldr segir „Fld.“ svo frá, að Ásbjörn
hafi átt Oddbjörgu Glúmsdóttur frá þ>uríðarstöðum í
Fljótsdal, og nefnir móður hennar J>uríði Hámundar-
dóttur sunnan úr þjórsárdal, en þetta virðist vera
sprottið af sagnablendingi, nl. örnefnasögum úr Fljóts-
dal og aflagaðri sögusögn um ætt Oddbjargar, konu
Hrafnkels Freysgoða, sem eptir „Hrk.“ var dóttir
Skjaldúlfs úr Laxárdal (=Skjöldólfs frá Skjöldólfsstöð-
um á Jökuldal ?). Frásagan í „Brandkr.11 um það,
hvernig Oddsstaðir urðu eign Helga, er alveg ósam-
hljóða þeirri, sem stendr í „Fld.“, því að þótt eigandi
Oddsstaða heiti í báðum sögunum Oddr, þá er hann
kallaðr „sindri11 í „Brandkr.“, en hefir ekkert auknefni
í „Fld.“; en sonr Odds er nefndr Ósvffr í „Brandkr.“,
I) Líklegra er, að hún hafi verið dóttir Hróalds Hrollaugssonar,