Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Síða 40

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Síða 40
232 sögurnar greinast mjög um nafn hennar, því „Dropl.“ kallar hana Droplaugu, „Fld.“ þorlaugu, og „Brandkr.“ Oddlaugu („systur“ Bessa) („Fld.“ kallarlíka Hólmstein Bessason ,,Ormstein“). J>essi ósamkvæmni bendir með öðru á mismunandi sögusagnir og ólíkar sagna upp- sprettur. Litlu meiri líkindi eru til þess, að höf. „Fld.“ hafi þekt „Dropl.“ heldr en „Brandkr.“, því að sögur þess- ar eru í flestum greinum ósamhljóða, þótt einstök at- riði séu svipuð. Vil eg nú taka fram ýmislegt, sem mér finst benda til þess, að höf. „Fld“ hafi ekki þekt „Dropl.“ heldr farið eptir öðrum frásögnum. — Frá ætt og uppruna Droplaugar er sagt alt öðruvísi í „Fld.“ en í „Dropl.“, og er þar varla annað sameiginlegt með þeim, en að frændi Droplaugar býr að Giljum á Jökul- dal, og heitir Grimr eptir „Fld.“, þar sem hann erlát- inn vera móðurbróðir hennar, en J>orgrímr eptir „Dropl.“, sem kallar hann föður hennar1. En af þessu atriði er ekki hægt að ráða, að höf. „Fld.“ hafi þekt „Dropl.“, því að lengi gátu haldist munnmæli um það, að Drop- laug hefði verið ættuð frá Giljum („Gilsá“ eptir ,,Brandkr.“), en þegar æfintýrið um hinn útlenzka upp- runa hennar myndaðist, hafa hin óvanalegu og æfintýr- legu nöfn Grímr Mardallarson (í ,,Brandkr.“) og Grímr Hallernuson (í ,,Fld.“) komið fram af hinu óbreytta nafni J>orgríms bónda að Giljum. 011 frásagan í „Fld.“ um J>iðranda gamla og syni hans, utanför J>orvalds og jheimkomu, er einkennileg fyrir „Fld.“, og miklu líkara til, að hún sé rituð eptir munnlegri sögusögn, heldr en spunnin út úr þeim fáu orðum í „Dropl.“ um J>iðranda og syni hans, sem eigi eru henni ósamhljóða. „Fld.“ lætr Arneiði vera tengda- móður Þorvalds, en eptir „Dropl.“ er hún amma hans, x) í „Brandkr.“ er faðir Droplaugar nefndr Grxmr.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.