Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Side 47

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Side 47
239 þótt „Dropl.“ of stuttorð ogf sundrlaus, og viljað gjöra hana greinilegri og skemtilegri, þá hefði hann samt mátt fylgja þræðinum í henni, og er bágt að skilja, hvað honum hefði getað gengið til að víkja svo mjög frá henni bæði að efni og niðrskipun, ef hann hefði haft hana fyrir sér, og engin önnur rök haft fyrir að- ferð sinni en eigin hugþótta. Meiri ástæða er til að halda, að höf. „Fld.“ hafi þekt þáttinn af Gunnari fiðrandabana, heldr en „Brandkr.“ og „Dropl.“, því að frásögn „Fld.“ um Gunnar er eigi mjög ósamkvæm því, sem sagt er frá í þættinum, og niðrröðun viðburð- anna hér um bil hin sama. En þó bendir margt til þess, að höf. „Fld.“ hafi ritað það, sem hann segir af Gunnari, eptir alþýðlegum munnmælasögum, en ekki eptir þættinum í þeirri mynd, sem hann er nú í, og varla mun hann heldr hafa haft Laxdælasögu fyrir sér, er hann reit „Fld.“, því það er í beinni mótsögn bæði við „Laxd.“ og „Gþ>iðr.“, að „Fld.“ lætr Gelli þorkels- son vera í förum landa á milli1, þegar Gunnar kemr til 'Helgafells, enda getr það miklu síðr komist heim við tímatal heldr en hitt, er bæði „Laxd.“ og „Gf*iðr.“ segja, að Gunnar hafi verið nýkominn til Helgafells, þegar brúðkaup þeirra forkels Eyjólfssonar og Guð- rúnar var haldið, og er það því ólíklegra, að höf. „Fld.“ hefði breytt þessu með ásettu ráði, sem hann setr víg jpiðranda miklu fyr en það varð, eða lætr það verða, meðan Helgi Droplaugarson var á lífi, sem líka er gagnstætt frásögninni í „Gþiðr.2“. Að vísu finnast megnar timatalsvillur annarstaðar í „Fld.“, en þó sýnist það ólíklegt, að nokkur sagnaritari mundi 1) Mundi þetta geta verið sprottið af óljósri endrminningu um, að porkell hafi bjargað Gunnari, þá er hann var sjálfr í förum ? 2) Reyndar er Brodd-Helga getið i „Gf>iðr.“, beint á móti réttu tímatali, en hann kemr ekkert við aðal-söguna, og er að eins nefndr í sambandi við póri Englandsfara, sem „Fld.“ getr als ekkert um.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.