Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1884, Page 61
fundust, lenti tal þeirra allt í sögum og fróðleik, sem biskup
unni svo mjög. Er mælt að biskup hafi skorað á Kolbein,
að yrkja rímur út af einhverri þeirri sögu, sem hann hefði
aldrei heyrt, en það efni hefir naumast verið auðvalið, er
biskup þekkti ekkert; kvað þá Kolbeinn rímur af Sveini
Múkssyni og sendi Brynjólfi biskupi, en heyrt hefi eg að
biskup hafi þá gefið honum 10 hundruð í Brimilsvöllum, en
ekki lO dali, og þar var Kolbeinn síðast og mun hafa dáið
þar. Ókunnugt er mér, nær hann hefir dáið, en svo er að sjá,
sem hann væri enn á lífi 1682, því það ár voru prentaðir:
«Nockrer Psalmar, sem syngiast meiga Kvölld og Morgna vm
alla vikuna, orðter af Kolbeine Grijmssyne, wt af Bænabók D.
Johannis Havennan. þryckter á Hoolum í Hialltadal Anno
1682». Eg hygg, að hefði Kolbeinn þá verið andaður, þá
hefði verið prentað: «af Kolbeine sál.», því svo mun optast
standa á fornprentuðum bókum, þegar höfundarnir voru
dauðir. Sálmar þessir eptir Kolbein eru 14 að tölu. Hann
hefir og orkt kvæði, sem enn eru til í handritum, Dýrðar-
dikt, Skilnaðarskrá o. fl.
þeir tvennir rímnaflokkar eptir Kolbein, Sveins rímur
og Grettis rímur, eru enn til; þær hefi eg að eins sóð á einu
handriti sem eg á, og hvergi heyrt um aðrar getið.
Jeg skal í fáum orðum, að síðustu, lýsa handritinu.
Bókin er í arkarbroti, og eru á henni alls 7 rímnaflokkar.
1. Haralds rímur Hrings bana, 12 að tölu. 2. Rímur af Grími
jarlssyni, 4 að tölu. 3. Rímur af Fljótsdælu, eða Droplaugar-
sonasögu hinni lengri, 22 að tölu. 4. Rímur af Brávalla-
bardaga, 10 að tölu, með útleggingu höfundarins á íslenzku
og latínu. Allir þessir fernir flokkar eru orktir af Arna
Böðvarssyni á Ökrum, og skrifaðir með hans eigin hendi 1762.
5. flokkurinn er: Rímur af Rollant, 18 að tölu, orktar af
þórði Magnússyni á Strjúgi, einnig með hönd Árna Böðvars-
sonar. Aptan við þær hefir Jón Espólín skrifað grein, 1819,
og hrósar hann þar rímunum. 6. flokkurinn er: Rímur af
Sveini Múkssyni, einnig með hönd Arna; er svo að sjá, sem
af síðustu rfmunni vanti eitthvað lítið af niðurlaginu, því höf-