Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1896, Blaðsíða 7

Eimreiðin - 01.05.1896, Blaðsíða 7
§7 »Svo það heldur þú, karl minn?« sagði Sigvaldi þá og komst tafarlaust í hita. »rað voru ónytjungarnir og eyðsluseggirnir, sem hrundu niður, skal jeg segja þjer. En það var af því, að ekki voru allir látnir eyða og spenna í alla bölvaða vitleysu, að ekki hrundu allir niður. Það er meiningin, karl minn. Eað er munurinn á forfeðrum okkar og okkur. Já, víst hrundu þeir niður, ónytjung- arnir og eyðsluseggirnir, og strádrápust, náttúrlega. Er það ekki það sem jeg hef ævinnlega sagt?« Og svo var hann vanur að reka upp háan og langan hlátur, eins og það væri ein allra-ánægjulegasta sönnunin fyrir hans máli, að fólk hafði hrunið niður og strádrepizt. En á siðari tímum var farið að bóla á allmegnri mótspyrnu gegn Sigvalda og skoðunum hans, og það bætti ekki skap hans. Einkum hafði hann nýlega átt í allharðri rimmu út af brú, er hina yngri menn langaði til að fá komið á vatnsmikla á, illa yfir- ferðar, sem rann um sýsluna, á, sem meðal annars var hvimleið fyrir það, að aldrei mátti reiða sig á ís á henni, heldur hafði hún til að ryðja sig, hvernig sem veður var. Þeim hafði hugkvæmzt að fá landssjóð til að borga helminginn; og með því að áhugi hafði komið fram i þinginu síðustu árin á því, að brúa stórár landsins, þá voru miklar líkur til, að þingið mundi ekki láta standa á sjer. En svo ætluðu þeir sýslubúum að standast hinn helming- inn af kostnaðinum. Að þessari á lá aukalæknisumdæmi Sveins Sveinssonar, en eigi alllangt frá henni hinum megin hafði hjeraðs- læknirinn aðsetur sitt. Móti þessari 'fyrirhuguðu brú hafði Sigvaldi barizt af megnasta ofurkappi bæði heima í sveit sinni og í sýslu- nefndinni. Hann vildi hvorki að landssjóður nje sýslan færi að kosta til hennar — hún væri ekkert annað en óþarfi, ekkert annað en eyðsla. Menn gætu riðið ána, eins og að undanförnu, og farið hana á ferju, þegar hún væri óreið, og setið heima á rassinum, þegar hún væri ófær á ferju — og það ættu menn langoptast að gera, bara sitja heima á rassinum, karl minn, eins og menn hefðu gert í gamla daga. Honum hafði tekizt að fá brúarmálið fellt í sýslunefndinni, en með mestu herkjum, því að ekki munaði nema einu atkvæði. Hann gekk þess vegna að því vísu, að brúarmennirnir mundu byrja af nýju. Og þá var vansjeð, hvernig fara mundi. Brúar- málið hjekk yfir höfði hans eins og sverð, eða öllu heldur vofði yfir honum eins og eldgos yfir höfðum manna, sem við eldfjalla-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.