Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Side 2

Eimreiðin - 01.05.1906, Side 2
Svartidauði. — Pestin. Latneska orðiö pestis þýðir drepsótt og var áður viðhaft um alls konar sjúkdómsfaraldur, er olli miklum manndauða; en nú á tímum táknum vér með því orði sérstakan sjúkdóm, og er það næstum óbreytt notað í flestum tungumálum. Pestin er austurlenzkur sjúkdómur, sem frá eimuna tíð hefur gjört vart við sig austur í Asíu, einkum sunnan við Bajkalvatnið og í Suður-Thíbet. Frá þessum aðalheimkynnum sínum hefur hún svo lengi sem sögur fara af létt sér upp við og við og farið út yfir löndin til að fækka fólkinu. Indland, Persía og Kína verða árlega fyrir heimsóknum hennar, og um langan tíma hefur hún legið í landi á Indlandi og aldrei horfið þaðan aftur til fulls. Einkum hefur mikið borið á henni síðustu árin, og það svo, að stjórnin á Indlandi ræður ekkert við og veit eigi hvernig alt ætlar að lenda, ef veikin heldur áfram með álíka hraða og hingað tií; því að manndauðinn af pest, sem árið 1900 var aðeins rúmlega 90,000 árlega, hefur smámsaman aukist, svo að síðasta árið -j- 1904 var hann orðinn rúml. ein miljón, og er það feikilega mikið á Indlandi einu.1 Á fyrri öldum gjörði pestin oft vart við sig í Evrópu, en nú má heita að menn þekki hana aðeins að nafninu til. Fyrsta skifti sem vér höfum áreiðanlega vissu um að pestin hafi gengið um Evrópu, var á dögum Justiníans keisara, á sjöttu öld e. Kr. En langmerkasta farsóttin var sú, sem gekk yfir alla álfu vora á 14. og 15. öld og var kölluð Svartidauði og ýmsum 1 Dauði af pest á Indlandi: Ár 1900 dóu 91,627 manns. — 1901 — 282,497 — — 1902 — 574,893 — Ár 1903 dóu 853,573 manns. — 1904 — 1,040,423 — Brit. med. Journal 1905, No. 2322.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.