Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Side 16

Eimreiðin - 01.05.1906, Side 16
96 veikina strax og einangraði sjúklinginn vandlega. Veikin hafði verið 14 daga í aðsigi, og er það óvanalega langur tími. Hér á landi hefur ekki orðið vart við pest síðan plágan gekk 1496, og vonandi verður þess langt að bíða, að sá óheillagestur heimsæki oss. Vér höfum engin bein viðskifti við Austurlönd og erum að því leyti betur settir en flestar aðrar þjóðir. En vér megum ekki þess vegna telja oss örugga og skáka í því skjóli, að aðrar þjóðir verndi oss með sínu vandlega eftirliti og sótt- varnarráðstöfunum. Kaupmannahöfn 23/8 1905. Steingrímur Matthíasson. Bernskuheimilið mitt. »Eg man kvernig fávizku hégóminn hckk í hugskotum manna, þar sat ég á bekk í œsku, hjá bábilju blekking. Pað var ekki kveikt við þá g'átu er ég gekk. O, gefðu inum Ijós, sem ég þráði’, en ei fékk: mannvitsins þroska og þekking!« Af því að ég hvergi hef séð líka heimilisháttu og á heimili foreldra minna, kemur mér til hugar, að það kunni að geta haft þýðingu fyrir þá, sem menningarsögu semja, að ég reyni að færa í frásögu, það sem mér er minnisstæðast af háttsemi og högum okkar, svo það ekki glatist. Og þó mér og ættmönnum mínum verði iítil frægð að frásögu minni, þá tel ég mér skylt að segja satt og rétt frá og fegra hvorki né ófegra sannindin. Eg fæddist 1857 á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu. Þegar ég man fyrst eftir, bjuggu foreldrar mínir á ofurlitlu koti fremst í dalverpi litlu. í því bygðarlagi var menning mjög lítil, og við enn afskektari en aðrir, svo enginn minsti menningargeisli hafði áhrif á okkur. Móðir mín hafði gifzt tvisvar, eignast 16 börn og var ég næst því yngsta. io urðum við full- orðin, 9 ólust upp heima, eitt annarstaðar með fullri meðgjöf frá for- eldrunum. Fátækt var mikil meðan börnin voru ung, en allgóður efna- hagur síðan. Börnin vóru látin burtu jafnskjótt og þau gátu fengið vist og unnið fyrir sér. Nú skal þá frá sagt heimilisháttum ýmsum, fyrst þegar ég man eftir. Heimilisstjórn og úrræði voru að mestu í höndum moður minnar. Hún var kvenskörungur, kjarmikil, ráðrík, heilsugóð og fyrirtaks dugleg. Alt var venjufast, reglubundið á heimilinu. Engin tilbreyting eða nýjung

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.