Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Side 18

Eimreiðin - 01.05.1906, Side 18
98 þannig gerð: Digrir fjalldrapaleggir voru höggnir í smábúta, gryfja grunn og víð gjörð í jörð niður og eldur látinn í hana, kuriunum síðan fleygt þar ofan á í stóran bing, -— þar af mun orðtækið: hvort öll kurl séu komin til grafar. — Lygnt veður þurfti að vera, svo kolin yrðu jafnbrend Gaman þótti okkur krökkum að vaða reykinn, þétta, þykka svæluna, áður enn loginn komst upp úr. Þegar loga tók, var yztu kol- unum mokað upp á miðjan binginn, unz þau voru orðin dökk að utan, þá var votu torfi fleygt ofan á og allur eldur kæfður. Viðarkol voru höfð í stað steinkola. Vinnufólk héldum við aldrei, en oftast kaupamann part af slætt- inum. Ákafinn við heyvinnuna hjá okkur var meiri en ég veit dæmi til, oftast unnið 16—17 tíma af miklu kappi, étið í ógna flýti, annars engin hvíld nema svefninn. Börnin fóru að vinna heyvinnu 7— 8 ára, stúlk- urnar slógu jafnt og drengirnir, eftir því sem hentaði, bundu votaband, létu upp þunga bagga, fóru með o. s. frv. Móðir mín sló ekki, en hún stóð oft mála milli hjá bónda sínum til að brýna fyrir hann, ef vott var, því aldrei var rakað í votviðri. Tvö orf hafði hann þá til skiftis. Börnin, sem þóttu of ung til heyvinnu, voru heima til að gæta þeirra yngstu, búa til flatbrauð, — brauð alt var flatt út á rúmfjöl, hvorki borð né bekkur til, —- berja harðfisk og »breiða svo á«x fyrir fólkið, þegar mið- degisverðartími var kominn. Matarverk og barnagæzlu höfðu drengir jafnt sem stúlkur á hendi hjá okkur. Svo mikið var eftir okkur rekið með vinnu, að ekki máttum við greiða okkur né þvo nema á sunnu- dögum. Við, sem endilega vildum vera að því tilhaldi, urðum þá að gjöra það meðan við tugðum harðfiskinn. Einu sinni vorum við tveir krakkar að rifja flekk, masandi um ljóð. «Ykkur væri nær að lesa bænirnar ykkar,« sagði faðir minn byrstur. Hann unni lítið tögrum listum, hafði um annað að hugsa. Mestallan veturinn vorum við börn iðjulaus. Oft grét ég þegjandi af leiðindum og löngun eftir að fá að læra einhvern »hégómann«, sem kallað var. »Leikið þið ykkur«, var svarið. þegar við sögðum að okkur leiddist og spurðum að, hvað við ættum að gera. Þau léku sér þá, en ég þráði og grét, vildi endilega líkjast prestsdætrunum, þó ég þyrði ekki að segja það, því öllum þótti ég afvæli mikið og táplaust afstyrmi. Álíka kapp var í fullorðna fólkinu við ullarvinnuna eins og við hey- vinnuna. Bóndinn kembdi og prjónaði öllum stundum, sem hann var inni. En hvað allir voru fljúgandi fljótir að prjóna! Ullarvinnan var gróf og sterk, allar voðir úr tómri vorull, altvinnaðar, oftast upp með öllu saman — með toginu nefnilega — og svo svellþæft, að hvergi sá fyrir lykkju né gára. Velflest af fatnaði var prjónað, svo vefnað þyrfti sem minst að kaupa. Næstum óslítandi sterk voru fötin okkar öll, en sterkust voru brekánin. Þau entust meir en mannsaldur. Vefnaður þeirra var þannig, að þráðurinn sást ekki, fyrirvafið var því Iitað, þráðurinn ekki. Dökk voru þau oftast að undirlit — aðallit — með þverröndum indígóblám, kúahlandsrauðum — lituð í eintómu, köldu kúahlandi, heldur fallega dumb- rauður litur og varanlegur — mosalituðum, grasagulum. sóleyjagulum — 1 0: breiða hvítan dúk á bæinn eða þar sem hátt bar á, svo fólkið við hey- vinnuna gæti séð hann, og komið ]tá heim til borðunar.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.